Fréttablaðið - 17.09.2013, Page 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
14
M atarsagan er samofin öþ
MATARSAGAN ER ALLT Í KRINGÁ SÖGUSLÓÐUM Gangan Fæðuhringurinn í miðborg Reykjavíkur, saga matar frá landnámi til okkar daga, verður farin laugardaginn 21. september
MÁLÞING
Embætti landlæknis stendur fyrir málþingi um geðrækt þann 20. september. Tilefnið er að margir framhaldsskólar hefja nú þemaár geðræktar á vegum verkefnisins Heilsueflandi framhaldsskóli.ÚRVAL AF FALLEGUM YFIRHÖFNUM! ERUM MEÐ ÚLPUR Í MÖRGUM LITUMOpið laugardaga 12:00-15:00
Skipholti 29b • S. 551 0770
stækkar þig um númer,
fæst í 70-85B OG 75-85C á kr. 5.800,- buxur við á kr. 1.995,-
FLOTTUR!
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga. lokað á laugardögum í sumar
BÍLARÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2013
2 SÉRBLÖÐ
Bílar | Fólk
Sími: 512 5000
17. september 2013
218. tölublað 13. árgangur
SKOÐUN Konur eru hlunnfarnar um
tugi milljóna á starfsævi sinni, skrifa
Heiða Björg og Margrét Lind. 14
SPORT Vanda Sigurgeirsdóttir lýsir
Eddu Garðarsdóttur sem drottning-
unni á miðjunni. 26
MENNING Þorsteinn Jakobsson
göngugarpur gengur á fjöll og skrifar
bókina Íslensk bæjarfjöll. 30
Verndar glerunginn
Félag íslenskra tannfræðinga mælir
með Zendium tannkremi.
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
RISAlagersala Forlagsins
er á Fiskislóð 39
90%
afslát
tur
Allt a
ð
Yfir
3500
titlar
VEÐUR „Til er dæmi um að ferða-
maður hafi þurft að borga yfir millj-
ón vegna sand- og öskufoks,“ segir
Gunnar Valur Sveinsson, verkefna-
stjóri hjá Samtökum ferðaþjón-
ustunnar. Ferðamenn bera sjálfir
ábyrgð á skemmdum á bílaleigu-
bílum í þeirra umsjá skemmist þeir
vegna óveðurs.
Hátt í tugur bílaleigubíla stór-
skemmdist í Öræfasveit um helgina.
Mynd af einum þeirra fylgir frétt-
inni en björgunarsveitin Kári
bjargaði tveimur ferðamönnum úr
honum nærri Skaftá í Öræfasveit.
Einu viðvaranirnar á vegunum voru
á íslensku en að sögn björgunar-
sveitarmanns sem Fréttablaðið
ræddi við stóð einfaldlega „ófært“
á tveimur skiltum við tvo vegi.
Gunnar Valur segir að sumar
bílaleigur bjóði upp á viðbótar-
tryggingu þar sem leigurnar bera
hluta af fjárhagsskaðanum sem
verður vegna veðurs.
Gunnar Valur segir svona tjónum
hafa fjölgað mikið, sérstaklega með
auknum straumi ferðamanna til
landsins. Hann segir að bæta þurfi
merkingar á vegum landsins, en það
sem mestu máli skipti sé góð upp-
lýsingagjöf til ferðamanna.
Bergþór Karlsson, formaður
bílaleigunefndar Samtaka ferða-
þjónustunnar, segir ástandið síðustu
daga með því verra sem upp hafi
komið. „Í svona aðstæðum vildi ég
bara sjá þessum vegum lokað, hvort
sem það er af björgunarsveitum eða
öðrum,“ segir hann. Tjón vegna
óveðurs ins gæti hæglega hlaupið á
tugum milljóna. - vg / sjá síðu 6
Tugur bílaleigubíla er stórskemmdur eftir óveður en ferðamenn eru ábyrgir:
Borgaði milljón vegna óveðurs
ÓTRÚLEGAR SKEMMDIR Þessi bílaleigubíll er bókstaflega sandblásinn á annarri hliðinni eftir storminn. Tveir ferðamenn voru í
bílnum en þeir flúðu eftir að hliðarrúðurnar brotnuðu. Þeir lágu svo í vegarkantinum og héldu í girðingu þar.
MYND/EYRÚN HALLA JÓNSDÓTTIR
Í svona aðstæðum
vildi ég bara sjá þessum
vegum lokað, hvort sem
það er af björgunar-
sveitum eða öðrum.
Bergþór Karlsson
formaður bílaleigunefndar SAF
Bolungarvík 5° N 7
Akureyri 2° NV 9
Egilsstaðir 4° NV 12
Kirkjubæjarkl. 8° NV 8
Reykjavík 6° N 10
HVASST EYSTRA Í dag verða víðast 10-
20 m/s, hvassast A-til. Rigning eða slydda
með köflum NA-til en bjart S- og V-lands.
Hiti 2-10 stig. 4
INNLENT Í óefni stefnir í grunn-
skólum landsins verði ekki brugð-
ist við fjölgun barna sem eru með
annað tungumál en íslensku.
Í nýrri skýrslu Fjölmenningar-
seturs kemur fram að metfjöldi
barna með erlent móðurmál sé
í hópi þriggja ára barna, eða 12
prósent. Síðustu ár hafi leikskóla-
börnum með annað móðurmál en
íslensku fjölgað mjög. Alls eru um
11 af hverjum 100 leikskólabörnum
með annað móðurmál en íslensku.
Héðinn Pétursson, aðstoðar-
skólastjóri Austurbæjarskóla, segir
landslagið gjörbreytt frá því sem
áður var. „Við höfum verið lengur
í þessari glímu en flestir. Þegar við
byrjuðum voru þetta örfáir krakkar
í nýbúadeildum. Nú dreifast þessir
krakkar um allt land og það gerir
miklar kröfur á alla skóla. Þótt
flestir séu á höfuðborgarsvæðinu
eru til dæmis hlutfallslega fleiri á
Vestfjörðum og á Suðurnesjum.“
Í skýrslunni er bent á að fjölgunin
sé áskorun fyrir menntakerfið þar
meira muni reyna á þjónustu fyrir
þessi börn í grunnskólum landsins
Undir þetta tekur Héðinn. „Þessu
fylgir aukinn kostnaður fyrir
skólana,“ segir hann. Sérhæfingu
og mannafla þurfi til að fást við
börn með erlent móðurmál. „Það
kosta mikla peninga að gera þetta
almennilega.“
Ari Klængur Jónsson, höfundur
skýrslunnar, segir fjölgunina ekki
stökk frá ári til árs heldur sé um
gríðarlega fjölgun að ræða á um
það bil tíu ára tímabili. „Við sáum
fækkun 2007 til 2008 en það hafði
ekki langvarandi áhrif,“ segir hann.
Gögnin bendi ekki til breyttrar þró-
unar frá því sem nú sé. „Fjöldinn
hefur verið að aukast ár frá ári og
ekkert bendir til að hann sé að fara
að dragast saman,“ segir Ari.
Til annarrar kynslóðar innflytj-
enda teljast þeir sem eiga foreldra
sem eru innflytjendur en hafa þó
sjálfir fæðst hér á landi. Rúmlega
fjórir af hverjum fimm þeirra eru
yngri en tíu ára.
Halldóra K. Magnúsdóttir,
skólastjóri Grunnskólans í Grinda-
vík, segir nemendur með erlent
tungumál fá sérstaka þjónustu í
gegnum stuðningskerfi skólans.
Verkefnið sé fjármagnað í gegn-
um jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
„Það er alveg ljóst að fjármagn
í þessum málum er af skornum
skammti. Sveitarfélögin þurfa að
móta sér heildstæða stefnu í þess-
um málum,“ segir hún.
elimar@frettabladid.is
Eitt smábarn af tíu er
með erlent móðurmál
Börnum með erlend móðurmál fjölgar umtalsvert í grunnskólum landsins á næstu árum. Frá aldamótum
hefur fjöldi leikskólabarna með erlent ríkisfang sjöfaldast. Kostnaður skóla eykst vegna sérhæfðrar þjónustu.
ÍTALÍA Hægt gekk í gær að reisa
við strandaða ítalska skemmti-
ferðaskipið Costa Concordia. Það
hefur legið á strandstað í meira
en hálft annað ár.
Framkvæmdirnar eru viða-
miklar. Þær hafa verið lengi í
undir búningi og enginn vissi í
raun hvort þær myndu heppn-
ast þegar látið yrði til skarar
skríða. „Þetta tekur lengri tíma
en reiknað var með,“ sagði verk-
fræðingurinn Sergio Girotto á
blaðamannafundi síðdegis í gær
en hann er bjartsýnn á að verkið
hafist á endanum.
Skipið sigldi í strand við eyjuna
Giglio í byrjun síðasta árs. Skip-
stjórinn er sakaður um að hafa
sýnt vítavert gáleysi þegar hann
sigldi skipinu í strand og yfirgaf
það áður en búið var að tryggja að
öllum yrði bjargað. - gb / sjá síðu 8
Costa Concordia reist við:
Viðamiklar
framkvæmdir
12%
Í árgangi þriggja ára barna
eru nú 12 prósent með
annað móðurmál en íslensku.
Fimm mínútur á Esju
Skipulagsráð Reykjavíkur segir að
breyta þurfi skipulagi áður en ferðir
upp á Esju í kláfi verða að veruleika.
Leit er hafin að fjárfestum vegna
verkefnisins. 2
Ekkert samráð við fagstéttir Fyrir-
hugaðar breytingar á lyflæknasviði
Landspítalans hafa ekki verið
ræddar við hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða. 4
Ref fjölgar Byggð á höfuðborgar-
svæðinu hefur færst nær heimkynn-
um refsins í Heiðmörk. 6
Fíknefnaakstursslysum fækkar
Slys þar sem akstur undir áhrifum
fíkniefna kemur við sögu eru helm-
ingi færri fyrstu átta mánuði ársins
en meðaltal áranna þar á undan. 12