Fréttablaðið - 17.09.2013, Side 6
17. september 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu stöðvaði kanna-
bisræktun á þremur stöðum á
höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn
föstudag.
Fram kemur í tilkynningu lög-
reglu að lagt hafi verið hald á
samtals um 150 kannabisplöntur
á ýmsum stigum ræktunar, auk
lítilræðis af öðrum fíkniefnum.
„Tvær ræktananna voru mjög
umfangsmiklar og var búnaður-
inn eftir því,“ segir á vef lög-
reglunnar. Fimm karlar á þrí-
tugsaldri voru handteknir vegna
ræktunarinnar. - óká
Fimm handteknir í rassíu:
150 kannabis-
plöntur fundust
VEISTU SVARIÐ?
- snjallar lausnir
Wise býður fjölbreyttar
viðskiptalausnir fyrir fólk
með mismunandi hlutverk.
Gold Enterprise Resource Planning
Silver ndependent Software Vendor ( SV)
Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 102, Akureyri
sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is
VEÐUR „Þetta er með því verra
sem við höfum lent í svona fljótt
á litið,“ segir Bergþór Karlsson,
formaður bílaleigunefndar Sam-
taka ferðaþjónustunnar. Rúður
brotnuðu í sandfokinu auk þess
sem miklar skemmdir eru á lakki
leigubifreiðanna. Þá fauk sandur
inn í bílana sem olli hugsanlega
meira tjóni.
Aðspurður um umfang tjónsins
segir Bergþór að það sé erfitt að
meta það á þessari stundu, enda
ekki búið að skila bílunum. „En
ef rúðurnar fara, þá fer lakkið og
ljósin einnig. Heildartjónið getur
hlaupið á alveg skelfilegum tölum,
tugum milljóna,“ segir Bergþór.
Spurður hver sé ábyrgur er
svarið einfalt: „Það er því miður
þannig að ferðamennirnir bera
ábyrgð á skaðanum.“
Bergþór segir það þó slæmt enda
illt afspurnar fyrir ferðamanna-
iðnaðinn á Íslandi. Merkingum sé
ábótavant, það sé ekkert nýtt. „Í
svona aðstæðum vildi ég bara sjá
þessum vegum lokað, hvort sem
það er af björgunarsveitum eða
öðrum,“ segir Bergþór.
Ármann Guðmundsson hjá
björgunarsveitinni Kára kom
frönskum ferðamönnum til hjálp-
ar seint í gærkvöldi. Rúður í bíla-
leigubíl þeirra höfðu brotnað
í óveðrinu og sandur fauk inn.
Ferðamennirnir þorðu ekki að
vera inni í bílnum né nærri honum
af ótta við að hann fyki á hliðina.
Þess vegna lágu þau í vegarkant-
inum og ríghéldu sér í girðingu.
„Einn okkar fór með spotta til
þeirra og þannig fikruðu þau sig
að bílnum,“ lýsir Ármann sem
segir að ferðamennirnir hafi ótt-
ast um líf sitt. „Þau voru alveg í
sjokki,“ bætir hann við. Þeim var
svo ekið að hóteli sem var nærri.
Ármann segir að vegamerking-
ar hafi verið lélegar og því varla
við ferðamenn að sakast að vera
á ferð um svæðið. „Það stóð bara
ófært á skiltunum, ég efast um að
ferðamenn skilji það,“ segir hann.
Björgunarsveitin kom 70 ferða-
mönnum til bjargar á sunnudaginn
og var þeim flestum ekið í félags-
heimilið í Hofgarði. Ármann segir
hátt í á annan tug bíla hafa eyði-
lagst í veðrinu, nær allir á vegum
bílaleiga.
G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar,
segir það viðvarandi vandamál að
vara ferðamenn við óveðri. „Það
eru engar einfaldar lausnir í þessu
og upplýsingagjöfin getur brugðist
í svona öfgakenndum aðstæðum,“
segir hann. „Þetta er til skoðunar
og við gerum okkur grein fyrir
vandamálinu,“ bætir hann við.
valur@frettabladid.is
Tjónið gæti hlaupið
á tugum milljóna
Formaður bílaleigunefndar Samtaka ferðaþjónustunnar segir tjón vegna óveðurs á
Öræfum hugsanlega hlaupa á tugum milljóna. Ferðamennirnir sjálfir bera ábyrgð
á tjóninu. Franskt par lenti í lífshættu á svæðinu en bíll þeirra eyðilagðist mikið.
LÍMT FYRIR RÚÐIR Ferðamenn gerðu sitt besta til þess að gera bíla sína ökufæra.
MYNDIR/EYRÚN HALLA JÓNSDÓTTIR
Þegar ferðamenn taka bíl á leigu fá þeir miða með upplýsingum um helstu
vefsíður til þess að kanna færð og veður. Þar eru þeir að auki hvattir til
þess að leita sér upplýsinga um veður á hverjum degi áður en haldið er út
á land. Allir aðilar ferðaþjónustunnar og Vegagerðarinnar eru þó sammála
því að vegamerkingum er ábótavant.
Ferðamenn varaðir við
DÝRALÍF „Refirnir eru ekki að færa
sig nær byggð heldur er farið að
byggja meira á þeirra svæði. Það
hafa alltaf verið refir í Heiðmörk
og á Urriðaholtinu. Ég ólst upp í
Garðabænum og þvældist þarna
um sem krakki. Þá varð ég af og til
vör við refi,“ segir Ester Rut Unn-
steinsdóttir, forstöðumaður Mel-
rakkaseturs.
Hún segir refastofninn hafa
stækkað og þess vegna ekki óeðli-
legt að menn verði varir við refi í
borgarlandinu. Refir hafa sést við
Reykjanesbrautina og dæmi eru
um að ekið hafi verið á þá.
„Það er mikilvægt að setja ekki
út æti fyrir refina og lokka þá
þannig til sín. Þá hætta þeir að
vera hræddir og koma nær. Þetta
eru villt dýr sem eiga ekki að vera
í byggð,“ segir Ester Rut.
Hún tekur það jafnframt fram
að afar mikilvægt sé að gengið
sé vel frá matarleifum. „Þeir sem
búa nálægt þeim svæðum þar sem
refir halda sig þurfa að hafa það
sérstaklega í huga að ganga vel frá
sorpi svo að refir komist ekki í það.
Hið sama gildir um sumarbústaða-
eigendur.“ - ibs
Byggðin hefur færst nær heimkynnum refanna í Heiðmörk:
Refum fjölgar í borgarlandinu
REBBI Refir eru ekki farnir að færa sig
nær byggð. MYND/LUCIE ABOLIVIER
EFNAHAGSMÁL
Kröfugerð BSRB undirbúin
Samningshópar Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja (BSRB) ræddu í gær kröfu-
gerð og helstu áherslur fyrir komandi
kjarasamninga. „Talsvert var fjallað um
mikilvægi kaupmáttaraukningu launa,
hækkun lægstu launa umfram önnur,
stöðu millitekjuhópa og gerð stuttra
kjarasamninga,“ segir á vef BSRB.
FLUGVÖLLUR 71,8 prósent íbúa
Reykjavíkur vilja flugvöllinn
áfram í Vatnsmýri samkvæmt
könnun sem MMR gerði fyrir
verkefnið Hjartað í Vatnsmýri.
Könnunin fór fram 9. til 11.
septem ber. Voru 330 íbúar höfuð-
borgarinnar spurðir og svarhlut-
fallið var 87 prósent.
Stuðningur við flugvöllinn er
mestur meðal framsóknarmanna,
89,2 prósent, og minnstur meðal
fylgjenda Samfylkingar, 44,9 pró-
sent. - ebg/hrs
72 prósent vilja völlinn burt:
330 íbúar borg-
arinnar spurðir
SJÁVARÚTVEGUR „Við höfum lengi
velt fyrir okkur að uppfæra flot-
ann og á endanum fannst okkur
það koma betur út að kaupa ný
skip en notuð,“ segir Vilhjálmur
Vilhjálmsson, forstjóri HB
Granda. Ákveðið hefur verið
að semja við skipasmíðastöðina
Celiktrans Denis Insaat í Tyrk-
landi um smíði tveggja uppsjáv-
arveiðiskipa fyrir HB Granda.
Samkvæmt samningnum mun
HB Grandi greiða um 7,2 millj-
arða króna fyrir skipin. Þau
verða afhent árið 2015, annað í
upphafi ársins og hitt um haustið.
- hg
HB Grandi kaupir 2 ný skip:
Kaupverð nem-
ur 7 milljörðum
UPPFÆRA FLOTANN Nýju skipin verða
eins og þetta fyrir utan rýmið ofan á
brúnni. MYND/HB GRANDI
SÝRLAND, AP Efnavopnaeftirlit
Sameinuðu þjóðanna ætlar að
bregðast snöggt við og hjálpa til
við að eyða efnavopnum Sýrlend-
inga. Þetta sagði Ahmet Uzumcu,
yfirmaður efnavopnaeftirlitsins,
í gær eftir að rannsóknarteymi
frá Sameinuðu þjóðunum hafði
staðfest að eiturgasið sarín hafði
í raun verið notað á almenning í
úthverfum Damaskusborgar í síð-
asta mánuði.
Meðal sönnunargagna eru
sprengjubrot sem innihalda
sarín, umhverfissýni og lífsýni úr
34 sjúklingum. - gb
Notkun eiturgass staðfest:
Efnavopnum
eytt með hraði
SKÝRSLAN AFHENT Åke Sellström, yfir-
maður rannsóknarteymis Sameinuðu
þjóðanna, ásamt Ban Ki-moon fram-
kvæmdastjóra. NORDICPHOTOS/AFP
SAMGÖNGUR
Ófært á hálendisvegum
Í gærkvöldi var búið að loka vegum um
Mývatns- og Möðrudalsöræfi vegna
ófærðar. Vegagerðin varaði jafnframt
við hálku á Vestfjörðum og krapa og
skafrenningi Norðaustanlands. Ófært
var sagt orðið á flestum hálendisvegum.
1. Hvaða fyrirtæki vill gefa Reykja-
víkurborg útilistaverk sem á að standa
við Vesturbugt?
2. Hvaða lið fór taplaust í gegnum
Pepsi-deild kvenna í sumar?
3. Hvað heitir ný bók Jónínu Leós-
dóttur um samband hennar við Jó-
hönnu Sigurðardóttir?
SVÖRIN1. CCP 2. Stjarnan 3. Við Jóhanna