Fréttablaðið - 17.09.2013, Side 14
17. september 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Sara McMahon sara@frettabladid.is
VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar lýsir
yfir miklum vonbrigðum með niður-
stöður nýlegra kjarakannanna BSRB og
BHM þar sem viðvarandi kyn bundinn
launamunur er enn einu sinni stað festur.
Það er skammarlegt að árið 2013 sé óút-
skýrður kynbundinn launamunur 11
til 15% hjá ríki, 13 til 20% hjá sveitar-
félögum og enn meiri á einka markaði.
Kynbundinn launamunur sem viðgengst
á Íslandi hefur það í för með sér að
íslenskar konur eru á starfsævi sinni
hlunn farnar um tugi milljóna króna.
Mannréttinda brotin sem í þessum tölum
birtast eru óásættanleg.
Ríki og sveitarfélög eiga að vera í
farar broddi í baráttunni gegn kynbundn-
um launamun og skýr fyrirmynd í þess-
um efnum. Því ber að fagna að hjá ríkinu
og einstökum sveitarfélögum hefur á
liðnum árum náðst nokkur árangur í bar-
áttunni.
Tölur Hagstofunnar sýna að milli
áranna 2008 og 2012 hefur launamunur
kynjanna minnkað um fjórðung hjá rík-
inu (farið úr 21,2% í 16,2%) og í könn-
un BSRB kemur fram að milli áranna
2012 og 2013 minnkaði óútskýrður kyn-
bundinn launamunur um ríflega fjórðung
(fór úr 14,1%-10,9%). Þessar tölur sýna
og sanna að launamunur kynjanna er
ekki óviðráðanlegt náttúrulögmál heldur
mannanna verk og að honum má eyða
á skömmum tíma. En betur má ef duga
skal því enn er óréttlætið til staðar.
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar
hvetur öll fyrirtæki og stofnanir á vegum
ríkis og sveitarfélaga til að taka nú til
óspilltra málanna á eigin forsendum og
óska eftir jafnlaunavottun á grundvelli
hins nýja jafnréttisstaðals sem unninn
var í góðu samstarfi stjórnvalda og
aðila vinnumarkaðarins á liðnum árum.
Almenningur ætti að styðja slíkt átak
með því að beina viðskiptum sínum til
fyrirtækja sem slíka vottun hafa.
Þá er mikilvægt að áfram verði unnið
eftir þeirri yfirgripsmiklu aðgerða-
áætlun um launajafnrétti sem ríkisstjórn
jafnaðarmanna samþykkti í lok síðasta
árs. Hið sama á við um jafnlaunaátak
stjórnvalda sem hófst fyrr á þessu ári og
miðaði að því að hækka laun fjölmenn-
ustu kvennastéttanna hjá ríkinu.
Stjórn Kvennahreyfingarinnar hvetur
ríkisstjórnina til að halda markvisst
áfram þeirri vinnu sem fyrri stjórn
lagði grunninn að og leggja allan þunga
í að uppræta það mein sem kynbundinn
launamunur er í okkar samfélagi. Um
þetta mannréttindamál eiga allir flokkar
á Alþingi að geta sameinast.
Hlunnfarnar um tugi milljóna
KJARAMÁL
Heiða Björg
Hilmisdóttir
formaður
Kvennahreyfi ngar
Samfylkingarinnar
Margrét Lind
Ólafsdóttir
varaformaður
Kvennahreyfi ngar
Samfylkingarinnar
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Skrifræðið
Sérkennileg umræða fór fram á
Alþingi í gær um rétt fulltrúa í vel-
ferðarnefnd til þess að ræða þar
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
um Íbúðalánasjóð. Húsnæðismál
heyra undir velferðarnefnd en vegna
einhverra formsatriða hefur nefndin
ekki fengið að ræða skýrsluna, sem
þó er opinber og aðgengileg hverj-
um Íslendingi, af því að skýrslur
rannsóknarnefnda skal ræða í
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Þetta er hressandi skrifræði.
Einar og langa málið
Í þessari sömu
umræðu lauk Árni
Þór Sigurðsson,
Vinstri grænum,
lofsorði á fram-
göngu Einars K. Guðfinnssonar
á forsetastóli. „Ég vil þó þakka
hæstvirtum forseta vorum fyrir
að hafa tekið upp þá nýbreytni
sem er til fyrirmyndar að útskýra í
löngu máli hvað hann hyggst fyrir
og hvernig hann túlkar mál.“ Einar
þakkaði hólið og bætti þessu við:
„Varðandi það að forseti hafi talað
í löngu máli þá þekkja það
þeir sem hafa reynslu af
störfum með forseta að
hann á það til að tala í
nokkuð löngu máli.“
Ekki eitt einasta
orð
En Árni Þór sagði
reyndar fleira,
þegar hann
hrósaði Einari:
„Það er til fyrirmyndar vegna þess
að það hefur oftlega verið hér að
menn spyrja forseta og ekki fengið
eitt einasta orð upp úr forseta
hvað hann hyggst fyrir í tilteknum
málum,“ sagði hann. Síðasti forseti
Alþingis var Samfylkingarkonan
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
sem var hluti af sama
stjórnarliði og Árni Þór.
Má lesa úr orðum
Árna Þórs fast skot á
þennan fyrrverandi
samherja sinn?
stigur@frettabladid.isS
amkvæmt frumvarpi forsætisráðherra um Hagstofu
Íslands sem liggur fyrir septemberþingi á að safna
upplýsingum um öll lán einstaklinga í landinu. Ekki nóg
með það, heldur verður líka skoðað í hvaða tilgangi þeir
tóku lánin og hvað þeir gerðu við peningana, hvernig
sem það á nú að gagnast við hina svokölluðu skuldajöfnun.
Eðlilega hefur frumvarpið
vakið hörð viðbrögð og ótta
um að friðhelgi einkalífsins sé
liðin tíð á Íslandi. Hörður Helgi
Helgason, forstjóri Persónu-
verndar, sagði í fréttum Stöðvar
2 um helgina að með þessari
upplýsingasöfnun væri gengið
ansi nærri persónufrelsi fólks.
Hann telur hættu á að vinnslan misfarist, upplýsingar sem eigi
að vera leyndar afhjúpist eða að upplýsingarnar séu einfaldlega
rangar og telur rökin fyrir þessari skerðingu á friðhelgi einka-
lífsins engan veginn nógu sterk.
Umræða um friðhelgi einkalífsins er ekki ný af nálinni.
Hún blossar upp með reglulegu millibili, oftast vegna þess að
fólki blöskrar yfirgangur stjórnvalda þegar kemur að einka-
lífi þess sjálfs. Undanfarið hefur hún einkum snúist um aðgang
stjórnvalda að Facebook-síðum og Gmail-reikningum fólks sem
þeim þykir af einhverjum ástæðum grunsamlegt og ber flestum
saman um að með þeim aðgangi hafi mörkin færst í ansi óheilla-
vænlega átt. Hinn almenni borgari á sér varla lengur nokkurt
skjól fyrir augum Stóra bróður, en það er við ofurefli að etja og
engin merki um að þessari þróun verði snúið við.
Stjórnvöld eru reyndar ekki ein um það að nýta einkalíf fólks í
vafasömum tilgangi. Listamenn hafa stundað það grimmt í gegn-
um aldirnar og er skemmst að minnast umræðunnar um bók
Hallgríms Helgasonar, Konan við 1000°, sem sætt hefur harðri
gagnrýni fyrir að nýta viðkvæm einkamál raunverulegs fólks
sem efnivið í „skáldsögu“. Sýnist sitt hverjum um siðferðilegt
réttmæti slíks en listamenn bera fyrir sig listrænt frelsi og telja
sig ekki hafa brotið á nokkrum manni. Einkalíf fólks sé hluti af
sammannlegri sögu og því innan marka þess sem leyfilegt sé að
nota til að segja „sannleikann“ um samtímann eða fortíðina.
Stjórnmálamenn og aðrir þeir sem hrærast í kastljósi fjöl-
miðla mega búa við það að einkalíf þeirra sé undir stöðugri
smásjá á þeim forsendum að almenningur hafi „rétt á að vita“
hvað þeir séu að bauka. Spaugstofusketsar og áramótaskaup
ganga út á að gera grín að fræga fólkinu og oftar og oftar er
einkalíf þess dregið inn í það grín svo ekki sé nú minnst á þann
mat sem slúðurdálkar gera sér úr því. Til skamms tíma virtist
nokkuð ljóst hvar mörkin lágu; það var við hæfi að gera grín að
stjórnmálamanninum að störfum, einkalíf manneskjunnar var
yfirleitt ekki dregið inn í grínið. Þau mörk virðast nú að mestu
útmáð, það er skotleyfi á allt sem þekktum manneskjum við-
kemur bæði í grínþáttagerð og slúðurdálkum, ekkert er heilagt.
Aðgátin í nærveru sálar sem Einar orti um forðum er fyrir
bí bæði í einkalífi og opinberum aðgerðum, enda hlýtur þetta
afnám friðhelginnar að virka í báðar áttir, eða hvað?
Friðhelgi prívatlífs í útrýmingarhættu:
Er einkalíf okkar
almenningseign?
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is