Fréttablaðið - 17.09.2013, Side 18
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson,
sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
NÝFÆDDUR
Konur í Bretlandi eru
hvattar til að huga fyrr
að barneignum og helst
fyrir 35 ára aldur.
Ebba Margrét Magnúsdóttir, sérfræð-ingur á Kvennadeild Landspítala, segir að þessi tilhneiging sé einnig
hér á landi og reyndar um alla Evrópu.
„Við höfum verið að upplifa þetta hér.
Konur eru uppteknar við að mennta sig
og huga að metnaði í starfi en barns-
fæðingar hafa þurft að bíða,“ segir hún.
„Meðganga og fæðing gengur betur
hjá yngri konum og þess vegna er það
ákjósan legra að koma með fyrsta barn
fyrir 35 ára aldur. Frjósemin minnkar auk
þess með aldrinum og líkur á litninga-
göllum aukast, auk þess sem meiri hætta
er á meðgöngukvillum á borð við há-
þrýsting og sykursýki,“ upplýsir Ebba.
„Við höfum reyndar góða tækni til
að fylgjast með þessu eins og fóstur-
greiningar, hnakkamælingar og legvatns-
stungur. Hins vegar er það staðreynd að
ef kona er með einhvers konar heilsu-
vandamál, háan blóðþrýsting eða hún er
of þung, verður meðgangan erfiðari eftir
því sem hún er eldri,“ segir Ebba.
EIGA BÖRN YFIR FIMMTUGT
Því eldri sem konan er, þeim mun meiri
hætta er á ófrjósemi. „Ófrjósemi eykst
með aldrinum. Konur hafa engu að síður
verið að eiga börn fram yfir fimmtugt.
Það er orðið nokkuð algengt að konur
gangi með börn á aldrinum 40-45 ára
og mér virðist vera aukning í barnsfæð-
ingum á þeim aldri þótt ég sé ekki með
neinar tölur um það,“ segir Ebba, en vel
er fylgst með þeim konum á meðgöngu.
Konur undir fertugu geta farið á breyt-
ingaskeið, það er ótímabær tíðahvörf, en
Ebba segir það ekki algengt.
Þegar Ebba er spurð hvort hún hvetji
konur til að eiga börnin yngri, svarar
hún: „Ég held að það sé mikilvægt fyrir
fólk að gera ráð fyrir barneignum í lífi
sínu. Ef konur vilja eiga tvö börn eða
fleiri er ekki gott að byrja seint. Það
gengur ekki alltaf að verða barnshafandi
þegar fólk óskar þess og ófrjósemi tekur
mjög á fólk. Þegar konur eru orðnar 35
ára hefst líka baráttan við klukkuna.“
AUKIN HÆTTA
Mary Herbert, sem er líffræðingur, segir
að það sé nauðsynlegt að upplýsa kon-
ur um þá áhættu sem þær taka með því
að seinka barneignum. „Starfsferillinn
á ekki að vera afsökun,“ segir hún. „Ég
myndi að minnsta kosti hafa áhyggjur af
dóttur minni ef hún væri ekki komin með
barn 35 ára. Konur þurfa að eiga börn
áður en klukkan slær 12,“ segir Mary og
bætir við að ófrjósemi aukist mikið með
aldrinum. Fæðingar kvenna sem eru hátt
á fertugsaldri hafa þrefaldast í Bretlandi
á undanförnum árum. „Á þeim aldri er
hættan meiri á að börn fæðist andvana
eða með litningagalla eins og Downs-
heilkenni,“ segir Mary.
■ elin@365.is
BEST AÐ EIGNAST
BÖRN FYRIR 35 ÁRA
ÓFRJÓSEMI Breski prófessorinn Mary Herbert hefur vakið mikla athygli í heima-
landinu eftir að hún hvatti konur til að huga að barnsfæðingum fyrir 35 ára aldur-
inn. Helmingur nýfæddra barna í Bretlandi á móður sem er komin yfir þrítugt.
SAMMÁLA
Ebba Margrét segir að
hér á landi hafi aldur
verðandi mæðra hækk-
að eins og annars staðar
í Evrópu.
ÚTSÖLU
MARKAÐUR
Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum.
Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.
-Flest stéttarfélög styrkja nemendur til náms.
-Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu
Helstu námsgreinar:
- Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum.
- Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga.
- Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
- Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni og margt fleira.
Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði.
Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða.
Umsögn:
Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á
landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman
á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik
og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa,
frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé
nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem
skapaði gott andrúmsloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tíma var
mjög vel varið hvort sem maður hyggur á ferðaleiðsögn eða ekki.
LEIÐSÖGUNÁM
VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU
Opið 8-22
Magnús Jónsson
fv. veðurstofustjóri
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Save the Children á Íslandi