Fréttablaðið - 03.10.2013, Síða 4
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Flokkaskipting öldungadeildar
Öldungadeildin
321 þingsæti
Aðrir flokkar
16 þingsæti
Norðurbandalagið
36 þingsæti
Beppe Grillo
5-stjörnu hreyfingin
50 þingsæti
Silvio Berlusconi
Frelsisflokkurinn
91 þingsæti
Mario Monti
Borgaralegur valkostur
20 þingsæti
Enrico Letta forsætisráðherra
Lýðræðisflokkurinn
108 þingsæti
Stjórnarandstaðan
Stjórnarmeirihlutinn
ÍTALÍA, AP Silvio Berlusconi tefldi
á tvær hættur þegar hann hugðist
efna til uppgjörs við þingið og
knýja fram þingkosningar, með
því að skipa flokksfélögum sínum
að slíta ríkisstjórnarsamstarfi.
Flokksfélagarnir tóku margir
hverjir heldur dræmt í þetta
frumkvæði leiðtoga síns, og um
þriðjungur þeirra gerði honum
ljóst að þeir myndu styðja trausts-
yfirlýsingu við stjórnina í atkvæða-
greiðslu á þingi í gær.
Þegar Berlusconi varð ljóst að
stjórnin myndi halda velli sneri
hann við blaðinu og lýsti því yfir
að hann sjálfur og allur flokkurinn
myndu greiða atkvæði með stjórn-
inni.
Þetta verður að teljast einn
stærsti ósigur sem Berlusconi
hefur beðið á skrautlegum stjórn-
málaferli sínum. Skammt er þó í
annað uppgjör, en á föstudaginn
verður atkvæðagreiðsla á þinginu
um það hvort hreinlega eigi að reka
Berlusconi af þingi. Allt bendir til
þess að sú verði niðurstaðan, enda
hefur dómstóll á Ítalíu bannað
honum að gegna opinberu embætti
næstu árin.
Þar með er stjórnmálaferli hans
í reynd lokið.
Enrico Letta forsætisráðherra
stendur hins vegar eftir sem
sigurvegari. Ráðamenn í fleiri
Evrópulöndum anda sömuleiðis
léttar, því óttast var að fall stjórn-
arinnar gæti haft alvarlegar afleið-
ingar í för með sér fyrir efnahag
Ítalíu, sem þó er bágborinn fyrir,
og slæm áhrif á stöðu efnahags-
mála í fleiri evruríkjum, sem mörg
hver hafa árum saman glímt við
afar erfiða skuldakreppu.
Svo fór að Letta vann auðveldan
sigur. Stuðningsyfirlýsingin var
samþykkt með 235 atkvæðum
gegn sjötíu. Nokkrir þingmanna úr
flokki Berlusconis voru hins vegar
engan veginn sáttir við þessa þróun
mála og stormuðu út úr þing salnum
án þess að taka þátt í atkvæða-
greiðslunni. gudsteinn@frettabladid.is
Uppgjör rann út í sandinn
Silvio Berlusconi sat eftir með sárt ennið þegar flokksfélagar hans neituðu að segja skilið við stjórn Enricos
Letta forsætisráðherra. Skrautlegur stjórnmálaferill Berlusconis er líklega á enda kominn því á föstudag tekur
þingið afstöðu til þess hvort svipta eigi hann þingsæti í samræmi við nýlegan dómsúrskurð.
LETTA HAFÐI BETUR Enrico Letta forsætisráðherra í ræðustól. FRÉTTABLAÐIÐ/APBERLUSCONI VARÐ UNDIR Silvio Berlusconi tók áhættu en sat eftir með sárt
ennið. NORDICPHOTOS/AFP
LANDBÚNAÐUR „Við höfum nú
þegar sent um 140 tonn af lamba-
kjöti til Bandaríkjanna og stefnum
á að senda 110 tonn til viðbótar,“
segir Magnús Freyr Jónsson,
framkvæmdastjóri Sláturhúss
KVH á Hvammstanga.
Sláturhúsið hefur frá árinu 2007
selt bandarísku matvæla keðjunni
Whole Foods Market ófrosið
íslenskt lambakjöt. Kjötið er selt
sem hágæðavara í verslunum
keðjunnar og er merkt íslenska
þjóðfánanum í bak og fyrir.
„Árið 2007 fóru um 25 tonn frá
okkur en í fyrra fluttum við út um
190 tonn af kjöti,“ segir Magnús.
Hann segir að um tíu prósent af
framleiðslu sláturhússins fari til
Bandaríkjanna og að Whole Foods
kaupi alla hluta af lambinu.
„Við hættum að senda út í byrjun
nóvember en einhverjar verslanir
eru með kjötið í sölu yfir þakkar-
gjörðarhátíðina í lok mánaðarins.“
Fyrr í þessum mánuði kom
hópur starfsmanna Whole Foods
til landsins í árlegri haustferð
fyrirtækisins. Tilgangur ferðanna
er að sögn Magnúsar að leyfa því
starfsfólki sem kemur að sölu á
lambakjötinu að kynnast landi og
þjóð.
„Verkefnið er í heild góð land-
kynning, byggð á heilnæmri
vöru úr hreinu umhverfi,“ segir
Magnús. - hg
Sláturhús KVH á Hvammstanga hefur selt matvælakeðjunni Whole Foods lambakjöt síðastliðin sex ár:
250 tonn af lambakjöti til Bandaríkjanna
FÓRU Í RÉTTIR Starfsmenn Whole
Foods komu hingað til lands fyrr í haust
og fóru meðal annars í réttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
30% þjóðarinnar á aldrinum 25-46 ára
var aðeins með grunnmenntun
árið 2012.
Á sama tíma höfðu 35% Íslendinga á
sama aldursbili lokið háskólanámi.
Heimild: Hagstofa Íslands.
DÓMSTÓLAR Hæstiréttur Íslands
staðfesti dóm Héraðsdóms Reykja-
víkur þar sem kröfu karlmanns
um að fá til baka 3 milljónir, sem
lögreglan lagði hald á vegna hús-
leitar á heimili hans, var hafnað.
Við húsleitina fundust milljónir-
nar þrjár í reiðufé ásamt skjölum
í læstu öryggishólfi á heimili
mannsins. Við húsleitina fundust
einnig fíkniefni og tól til fram-
leiðslu þeirra. Maðurinn hélt því
fram að féð væri hans eigið sparifé
en ekki ágóði af fíkniefnasölu.
Dómari Héraðsdóms Reykjavíkur
taldi ekki sýnt nægilega vel fram á
uppruna peninganna. - vg
Hæstiréttur hafnar kröfu:
Fær ekki meint
fíkniefnafé
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS Dómarar
höfnuðu kröfu mannsins um að fá fé
sitt til baka.
DANMÖRK Mögulegt er að danskir
bíleigendur fái hraðasektir vegna
umferðarlagabrota sem þeir hafa
ekki framið. Dönsk stjórnvöld
vilja nefnilega fara að tillögu
umferðaröryggisráðs og sekta
bíleigendur vegna hraðaksturs
þótt aðrir hafi verið undir stýri
á bílum þeirra. Talið er að slíkt
muni auka umferðaröryggi.
Á fréttavef Politiken segir að
lögreglan verji miklum tíma í að
komast að því hver öku maðurinn
var þegar brot hefur verið
framið. - ibs
Íhuga lagabreytingu:
Sekta bíl-
eigendur í stað
ökumanna
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
Strekkingur allra vestast og með S-
strönd annars hægari.
KÓLNAR NÆSTU DAGA og má búast við að norðanlands verði slydda og snjókoma
til fjalla á föstudag. Á sama tíma styttir upp sunnan til og má búast við að mestu leyti
þurru og nokkuð björtu veðri þar næstu daga.
4°
8
m/s
6°
6
m/s
8°
3
m/s
8°
3
m/s
Á morgun
Strekkingur með ströndum á Vest-
fj örðum en annars víða hægari.
Gildistími korta er um hádegi
6°
1°
5°
2°
1°
Alicante
Aþena
Basel
28°
18°
18°
Berlín
Billund
Frankfurt
12°
13°
16°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
17°
13°
13°
Las Palmas
London
Mallorca
26°
19°
26°
New York
Orlando
Ósló
24°
30°
12°
París
San Francisco
Stokkhólmur
23°
21°
12°
9°
3
m/s
9°
6
m/s
5°
3
m/s
5°
5
m/s
4°
4
m/s
6°
6
m/s
6°
2
m/s
7°
2°
8°
6°
3°
HAFÐU BÍLINN
KLÁRAN FYRIR
VETURINN!
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, Funahöfða 13
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL