Fréttablaðið - 03.10.2013, Side 20
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 20
Stýrivextir Evrópska seðla-
bankans (ECB) haldast óbreytt-
ir í 0,5 prósentum. Ákvörðun
þar að lútandi var kynnt í gær.
Í umfjöllun Breska ríkis-
útvarpsins, BBC, segir að
ný haggögn bendi til þess að
efnahagsbati sé að ná fótfestu
í evrulöndunum. Hagvöxtur
hafi aukist í september, þriðja
mánuðinn í röð.
Í fyrri yfirlýsingum hefur
Seðlabanki Evrópu sagt lága
stýrivexti styðja við efnahags-
bata og að lönd evrunnar þurfi
nú að stokka upp hagstjórn sína
og draga úr skuldabyrði sem sé
allt of mikil.
Mario Draghi seðlabanka-
stjóri Seðlabanka Evrópu hefur
sagt líklegt að vöxtum verði
haldið óbreyttum í lengri tíma
til að ýta undir efnahagsbata.
- óká
Óbreyttir vextir í Evrópu:
Stýrivöxtum
haldið í 0,5%
SAKRET ZM múrblanda
Alhliða múrblanda sem hentar til
múrhúðunar og viðgerða á múrhúð,
jafnt úti sem inni.
Blandan inniheldur kvartssand
með hámarks kornastærð 2 mm.
Einungis þarf að blanda í hana réttu
magni af vatni.
MÚRVIÐGERÐAREFNI
w
w
w
.e
xp
o.
is
/
E
XP
O
au
gl
ýs
in
ga
st
of
a
w
w
w
.e
xp
o.
is
/
E
XP
O
a
Vnr. 0225334
SAKRET ZM
múrblanda, 25 kg.
990kr.
SAKRET ZM múrblandan hefur
fengið frábærar viðtökur fagmanna.
„Þetta er spor í rétta átt,“ sagði
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri um nýframkomið fjárlaga-
frumvarp ríkisstjórnarinnar að
lokinni kynningu á stýrivaxta-
ákvörðun í gær.
Már sagði jákvætt að frumjöfn-
uður (afgangur á jöfnuði fyrir fjár-
magnstekjur og -gjöld) hafi aukist
á milli ára, þótt aukningin hafi
ekki verið jafnmikil og að hafi
verið stefnt. Um leið áréttaði hann
mikilvægi þess að heildarafgangur
náist sem fyrst á ríkissjóði.
„Það er afgangur á rekstrar-
grunni, en hann er mjög lítill
og má lítið út af bera til að hann
hverfi,“ sagði Már. Aukinheldur
ætti eftir að skoða að hve miklu
leyti hann byggði á athugun á því
að breyta fyrirkomulagi varðandi
fjárhagsleg samskipti Seðla-
bankans og ríkissjóðs. „Mikilvægt
er samt að leggja áherslu á að til-
færslur milli Seðlabanka og ríkis-
sjóðs eru ekki að hafa þau áhrif
á efnahagslífið sem við erum að
sækjast eftir,“ sagði Már. Hann
teldi alla sammála um að ríkis-
sjóð ætti ekki að fjármagna með
peningaprentun, það væri þekkt
uppskrift að óstöðugleika. - óká
Í SEÐLABANKANUM Þórarinn G. Péturs-
son aðalhagfræðingur og Már Guðmunds-
son seðlabankastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tilfærslur milli Seðlabanka og ríkissjóðs hafa ekki þau áhrif sem sóst er eftir:
Frumvarpið sagt skref í rétta átt
Verði launahækkanir í komandi
kjarasamningum umfram það sem
samræmist verðbólgumarkmiði
Seðlabanka Íslands segir peninga-
stefnunefnd bankans að líklegt sé
að nafnvextir bankans hækki að
óbreyttu í framhaldinu.
Fram kemur í umfjöllun grein-
ingardeildar Arion banka að
Seðlabankinn spáir fimm til sex
prósenta árlegri hækkun nafn-
launa, sem sé umfram það sem
sam rýmist verðbólgumarkmiði,
jafnvel þótt hækkunin sé undir
sögulegri meðalhækkun launa og
töluvert undir launahækkunum
síðustu tveggja ára.
Á kynningarfundi stýrivaxta-
ákvörðunar peningastefnunefndar
Seðlabankans í gær áréttaði Már
Guðmundsson þó að málið snerist
ekki um að taka til baka ávinning
launafólks í kjarabaráttu.
„Okkur er gert að beita okkar
stjórntækjum til að halda verð-
bólgu sem næst markmiði,“ sagði
Már. Bankinn hefði hins vegar
ákveðinn sveigjanleika varðandi
hversu hratt sú þróun ætti sér
stað. „Við setjum ekki raunhag-
kerfið á hliðina bara til þess að
keyra verðbólguna niður í mark-
mið, hvað sem það kostar.“
Um leið sagði hann fyrir því
sögulega reynslu að væru launa-
hækkanir umfram framleiðni-
aukningu og þá verðbólgumark-
mið þá myndi það ekki skila sér að
lokum í raunávinningi fyrir fólk.
„Við verðum líka að tala skýrt
svo allir aðilar geri sér grein fyrir
hvað okkur ber samkvæmt lögum
að gera og taki það þá með í reikn-
inginn í sínum eigin ákvörðunum,“
bætti Már við.
Í umfjöllun greiningardeilda
bæði Arion og Íslandsbanka er
haft orð á því að um töluvert harð-
ari vaxtahækkunartón sé að ræða
hjá Seðlabankanum en verið hafi.
Skoðun greiningardeildar Arion
banka er að ekki hafi verið jafn-
líklegt að vextir hækki á næstu
mánuðum „síðan hlé var gert á
vaxtahækkunarfasa bankans
undir lok síðasta árs“.
Greining Íslandsbanka telur
enn að stýrivextir bankans verði
óbreyttir út árið, en segir yfir-
lýsingu peningastefnunefndar
benda til þess að stýrivextir
verði hækkaðir snemma á næsta
ári. „Reiknum við með tveimur
0,25 prósentustiga hækkunum
stýrivaxta á næsta ári.“ Vöxtum
var haldið óbreyttum núna í 6,0
prósentum, en færu við slíka hækk-
un í 6,5 prósent. olikr@frettabladid.is
Líklegt að
vextir hækki
með launum
Stýrivextir Seðlabankans eru óbreyttir samkvæmt
ákvörðun peningastefnunefndar. Nefndin boðar
hærri vexti hækki laun í komandi kjarasamningum
umfram það sem samrýmist verðbólgumarkmiði.
KYNNIR VAXTAÁKVÖRÐUN Már Guðmundsson seðlabankastjóri fór yfir ákvörðun
peningastefnunefndar um óbreytta stýrivexti í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Við setjum ekki
raunhagkerfið á hliðina
bara til þess að keyra verð-
bólguna niður í markmið
Már Guðmundsson
seðlabankastjóri