Fréttablaðið - 03.10.2013, Qupperneq 32
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Þetta láta tískuhönnuðir ekki fram hjá sér fara og framleiða alls kyns flott símahulstur fyrir
þennan vinsæla síma. Helstu tísku-
merki heims bjóða frumleg hulstur
fyrir iPhone, jafnt fyrir dömur sem
herra. Sumum finnst iPhone-síminn
svo flottur að það þurfi ekki að klæða
hann í búning. Öðrum finnst gaman að
hafa hann í flottu hulstri og eiga jafn-
vel fleiri en eitt. Sumir safna meira að
segja mismunandi litum. Á tískuvikum
hafa frumleg iPhone-hulstur verið hluti
af fylgihlutum fyrirsætanna.
IPHONE Í
TÍSKUBÚNINGI
SMART iPhone-símar seljast sem aldrei fyrr um allan heim.
Þeir virðast vera orðið stöðutákn og enginn er maður með
mönnum nema vera með iPhone.
1 Til minningar um
Steve Jobs.
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
2 Dior.
4 Burberry.
5 Chanel.
7 Gucci.
9 Kate Moss.
8 Kenzo.
10 Marc By Marc
Jacobs.
6 Ralph Lauren.
3 Handgerð hulstur
með perlum og
Hello kitty.
Guðrún Bergmann Franzdóttir, for-maður Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna, þekkir þörfina
fyrir nýtt hjartaþræðingartæki betur
en margir. Dóttir hennar, Anney Birta
Jóhannesdóttir, fæddist með alvarlegan
hjartagalla árið 2002 og hefur farið í
fjölda hjartaþræðinga og hjartaaðgerða á
stuttri ævi. Móðir Guðrúnar fór í hjarta-
þræðingu fyrir nokkru og faðir hennar er
á biðlista.
Í dag eru 260 manns á biðlista og alls
óvíst hvenær faðir Guðrúnar kemst að.
„Þetta eru börn, fólk með meðfædda
hjartagalla og aðrir hjartasjúklingar,“
segir Guðrún.
Hjartaheill og Neistinn hrundu um
helgina af stað átaki til söfnunar fyrir
nýju hjartaþræðingartæki á hjartadeild
Landspítala. „Elsta hjartaþræðingar-
tækið á deildinni er 16 ára gamalt en það
yngsta fimm ára. Erlendis er venjan að
nota þessi tæki í sex til átta ár og ljóst
að löngu er kominn tími á endurnýjun.
Það er mikil nákvæmnisvinna unnin með
þessum tækjum og vitanlega best að
nota nýjustu tæki og tækni.“
Hjarta- og æðasjúkdómar eru skæð-
ustu sjúkdómar veraldar. Hjartaþræðing
er mikilvægur liður í rannsókn og með-
ferð við þessum mikla vágesti en hátt
í 2.400 hjartaþræðingar eru gerðar á
hjartadeild Landspítalans á ári hverju.
Til að ráða við verkefnin þarf þrjú góð
þræðingartæki. Með nýju tæki myndi
biðtíminn auk þess styttast verulega.
Dóttir Guðrúnar hefur nokkrum
sinnum farið í hjartaþræðingu hérlendis
til að kanna ástand hjartans en auk þess
hefur hún farið í þrjár opnar aðgerðir og
þrjár aðgerðir í gegnum hjartaþræðingu
í Boston. „Ég veit að hún kemur til með
að þurfa að fara í fleiri hjartaþræðingar
til að fylgjast með ástandinu í framtíð-
inni. Þær eru mikilvægur liður í eftirliti
þótt aðgerðirnar séu oftast nær gerðar
erlendis.“
Nýtt hjartaþræðingartæki kostar
170 milljónir. Með átakinu vilja sam-
tökin leggja sitt lóð á vogarskálarnar
til að koma því til landsins. Stefnt er að
því að það verði fyrir áramót. Stofnuð
hefur verið valgreiðsla á hverja fjöl-
skyldu í landinu en auk þess er hægt
að hringja í styrktarnúmer eða leggja
upphæð að eigin vali inn á reikning.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.hjartaheill.is
LÍFSINS NAUÐSYN
HJARTAHEILL Guðrún Bergmann Franzdóttir er umkringd fólki sem hefur
farið í hjartaþræðingu eða þarf á henni að halda.
LÍFSGLÖÐ STÚLKA
Anney Birta Jóhannes-
dóttir fæddist með
alvarlegan hjartagalla og
hefur farið í allmargar
hjartaþræðingar og
hjartaaðgerðir þrátt fyrir
ungan aldur. „Hún þekkir
ekki annað,“ segir móðir
hennar, Guðrún Berg-
mann Franzdóttir. Anney
er þrátt fyrir allt lífsglöð
og kát stúlka.
VONAST EFTIR TÆKINU FYRIR ÁRAMÓT Guðrún ásamt Guðmundi
Bjarnasyni, stjórnarformanni Hjartaheilla.
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ SENDING!
AF VINSÆLU KULDASKÓNUM
MEÐ MANNBRODDUNUM
VETRAR-
ÚLPURNAR
KOMNAR!FYRIR DÖ
MUR
OG H
ERRA
Verð
:24.0
00.-
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 11–16.
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Stærð 34 - 48.
Verð 11.900 kr.
Með skrauti á vösum.
Litur: svart
Með rennilásavasa
og leðurlíkisrönd niður skálm.
Litur: svart og vínrautt
Stretch og háar í mittið