Fréttablaðið - 03.10.2013, Side 34
FÓLK|| FÓ K | TÍSKA4
TAYLOR SWIFT Hispurslaus og beinn
toppur Swift fer vel við sporöskjulaga
andlitsfall hennar. NORDICPHOTOS/GETTY
MICHELLE OBAMA Síður toppurinn gefur forseta-
frúnni nútímalegt en fágað útlit.
EMMA STONE Fisléttur toppur-
inn á Emmu Stone er líflegur og
skemmtilegur.
JESSICA BIEL Leik-
konan með þráðbeinan
topp við sítt liðað hár.
HANNAH SIMONE Þungur toppurinn
er einkennismerki leikkonunnar úr
New Girl.
ZOOEY DESCHANEL Úfinn toppurinn á
Deschanel fer vel við líflegan persónuleika
hennar.
TOPPAÐU ÞETTA!
TÍSKA Fjölmargar leikkonur, söngkonur og aðrar stjörnur hafa skartað toppi í
ár. Toppar fara vel við ýmsar greiðslur, bæði hrokkið hár, slétt og uppsett.
Handtöskur kvenna eru dularfull
djásn og halda utan um þeirra
allra heilagasta. Það kemur því á
óvart að margar þeirra eru undir-
lagðar óheilnæmum óhreinindum
og bakteríum.
Í nýlegri könnun Mentos Pure
Fresh Gum var tekið strok úr
handtöskum kvenna og sýndu
niðurstöður að þriðjungur
kvenna hreinsar aldrei hand-
töskuna og þaðan af síður snyrti-
budduna, sem þó er útsettari
fyrir bakteríum.
Með því að viðhafa reglulegt
hreinlæti mætti koma í veg fyrir
fjölda sýkinga af völdum klasa-
gerla sem valda kvefpestum
og hita, saurgerla sem valda
niðurgangi og baktería sem valda
augnsýkingum.
Besta ráðið
er að venja
sig á að þvo
hendur áður
en seilst er
ofan í snyrti-
budduna
því óhreinir
fingur skilja
eftir sig bakteríur.
Þá er mikilvægt að
fleygja varalitum eftir kvef-
pestir því bakteríurnar lifa áfram.
Sama á við um augnsnyrtivörur
komi upp augnsýking. Þvoið alla
bursta með hársápu einu sinni
í mánuði og strjúkið innan úr
snyrtibuddunni með spritti.
Hafið hugfast að snyrtivörur
hafa stuttan líftíma. Almenna
reglan er að maskari endist í tvo
til þrjá mánuði, farði í hálft til
eitt ár og varalitur,
augnskuggar
og kinnalitur
í tvö ár. Séu
snyrtivörur
notaðar um-
fram geymslu-
tíma eykst
hætta á bólum
og sýkingum í húð
þar sem innihalds-
efni skemmast. Hafið
augun opin fyrir merkingum um
geymslutíma. 6M þýðir að varan
endist í sex mánuði eftir að inn-
sigli hefur verið rofið.
ER VESKIÐ SKÍTUGT?
Tískuhönnuðurinn Karl
Lagerfeld hefur mikið á sinni
könnu. Hann hannar fjölda
tískulína fyrir merkin Fendi,
Chanel og undir eigin nafni.
Hann gaf sér þó tíma til að
hanna 75 risastór listaverk
sem byggð voru á munum
sem Chanel hefur framleitt
í gegnum tíðina. Listaverkin
voru sýnd á tískuvikunni í
París í tengslum við sýningu
á vor- og sumarlínu Chanel.
Munirnir voru af ýmsum
toga. Allt frá abstrakt eftir-
mynd af Chanel-jakka og
risastórri mynd skreyttri
með merkjum Chanel,
tvöföldu c-i í perlum og til
risastórs marmaraskúlptúrs
í líki Chanel no. 5 ilmvatns-
ins fræga.
LIST LAGERFELDS
Karl Lagerfeld hannaði 75 listmuni fyrir tísku-
vikuna í París.
VIÐ LISTAVERK Karl Lagerfeld við risa-
stóran skúlptúr í líki Chanel no. 5 ilmvatnsins.
NORDICPHOTOS/GETTY
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
dVerslunin Bella onna
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
30% afsláttur
Sjá fleiri myndir á
Dömudagar í Flash
áður 14.990
nú 9.990
áður 11.990
nú 8.390
áður 16990
nú 11.990
Mussur