Fréttablaðið - 03.10.2013, Qupperneq 35
Kynningarblað Innrömmun, upplímingar,
forvarsla, viðgerðir, Feng Shui og góð ráð.
SPEGLAR
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 2013
&INNRÖMMUN
Innramma rinn ehf. hef ur starfað um þrettán ára skeið en f yrirtækið f lutti í eigið
húsnæði við Rauðarárstíg árið
2007 og hefur verið þar síðan. Á
síðasta ári tóku nýir eigendur við
fyrirtækinu og er það nú rekið í
samvinnu við Gallerí Fold sem
stendur einnig við Rauðarárstíg.
Georg Þór Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Innrammaranns,
segir fyrirtækið vera búið öllum
fullkomnustu tækjum sem völ er
á, svo sem sjálfvirkum neglingar-
vélum og loftknúnum glerskerum.
„Fyrirtækið getur því boðið upp á
mikla framleiðslugetu á mjög hag-
stæðu verði auk þess sem starfs-
menn fyrirtækisins eru reynslu-
miklir og leggja mikla áherslu á
persónulega og góða þjónustu.“
Georg er með alþjóðlega gráðu
í innrömmun auk þess sem Inn-
rammarinn er eina rammaverk-
stæðið hér á landi sem er með-
limur alþjóðlegu samtökunum
Fine Art Trade Guild. Fyrirtækið
starfar því samkvæmt ströngum
gæðastöðlum sem samtökin setja.
Fullkomin kartonskurðvél
Innrammarinn fjöldaframleiðir
karton og fékk nú í október tölvu-
stýrða kartonskurðarvél sem er
sú fullkomnasta sem flutt hefur
verið til landsins. „Auk þess bjóð-
um við upp á lagerhald á karton-
um fyrir ljósmyndara og versl-
anir sem geta þannig gengið að
tilbúnum kartonum án þess að
þurfa að sitja með fjármuni fasta
í birgðum.“
Innrammarinn býður upp á
alla almenna innrömmun auk
þess að bjóða upp á upplímingar
á myndum. Innrammarinn hefur,
auk þess að þjónusta almenna
viðskiptavini með ýmiss konar
innrömmunarverkefni, tekið að
sér stærri og viðkvæmari verk-
efni fyrir listasöfn, listamenn og
ljósmyndara. „ Innrammarinn
er búinn öllum fullkomnustu
tækjum, svo sem sjálfvirkum
neglingavélum og tölvustýrðum
kartonskurðarhnífum þar sem
afkastagetan er nokkur hundruð
karton á dag. Þannig getum við
boðið upp á mikla framleiðslu-
getu á mjög hagstæðu verði en við
gerum tilboð ef um stærri verk-
efni er að ræða. Einnig getum við
gert karton með mörgum götum
sem getur komið skemmtilega út
fyrir fjölskyldumyndirnar.“
Auk hefðbundinnar innrömm-
unarþjónustu selur Innrammar-
inn tilbúna ramma, bæði úr áli
og tré. Viðskiptavinurinn getur
komið með mynd á staðinn, valið
ramma og beðið á meðan karton
er skorið í rammann. „Þá bjóðum
við upp á sérsmíði á speglum.
Hægt er að velja rammaefni sem
fólki líkar og búa til spegil í þeirri
stærð sem hentar. Einnig tökum
við að okkur að ramma inn ýmsa
muni svo sem íþróttatreyjur og
aðra söfnunarmuni sem hafa til-
finningalegt gildi fyrir fólk. Einn
stærsti hluturinn sem við höfum
rammað inn var rafmagnsgítar
sem áður tilheyrði frægum ein-
staklingi.“
Hágæða karton verndar listaverkið
Innrammarinn notar einungis
hágæðakarton frá Nielsen Bain-
bridge. Kartonin þola dagsbirtu
einstaklega vel og liturinn í þeim
dofnar ekki með árunum. Kartonin
eru sýrufrí og smita því ekki út frá
sér yfir í viðkvæman pappír sem
listaverkin eru unnin á. „Það gerir
einnig að verkum að liturinn í
skurðinum helst í upprunalegum
lit. Þá draga kartonin í sig súrefnis-
agnir með sérleyfisháðri tækni
sem nefnist „Micro- Chamber“.
Listaverkið er þannig varið hættu-
legum mengandi efnum sem eru í
loftinu.“
Innrammarinn býður upp á
glampafrítt gler sem ver listaverkin
gegn áhrifum sólarljóss. Glerið er
framleitt af Nielsen Bainbridge
með sérstakri blöndu af vörn gegn
útfjólubláum geislum og spegil-
vörn sem gerir glerið sérstaklega
gegnsætt þannig að vart er hægt að
sjá að gler er yfir listaverkinu. „Öll
verðmæt listaverk sem unnin eru
á pappír ættu að vera undir slíku
gleri því það dregur verulega úr
áhrifum sólarljóss og listaverkið
dofnar síður.“
Fullkomin tæki og góð þjónusta
Viðskiptavinir Innrammaranns geta stólað á frábæran tækjakost og reynslumikla starfsmenn. Fyrirtækið býr yfir fullkomnustu
tækjum sem völ er á og býður upp á alla almenna innrömmun auk upplímingar á myndum. Einungis hágæðakarton eru notuð.
Innrammarinn er eina rammaverkstæðið
hér á landi sem er meðlimur alþjóðlegu
samtökunum Fine Art Trade Guild.
Innrammarinn býður líka upp á glampafrítt gler og úrval ramma úr áli og tré. MYND/GVA
Innrammarinn
er búinn öllum
fullkomnustu
tækjum sem völ
er á, að sögn
Georgs Þórs
Ágústssonar,
framkvæmda-
stjóra Inn-
rammaranns.
MYND/GVA