Fréttablaðið - 03.10.2013, Side 52
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING TÓNLIST | 40
Systrahljómsveitin HAIM hefur
gefið út sína fyrstu plötu, Days
Are Gone, sem beðið hefur verið
eftir með eftirvæntingu.
Í hljómsveitinni eru systurnar
Este, Danielle og Alana Haim
og þær koma frá Los Angeles
í Bandaríkjunum. Tónlistin er
eins konar póstmódernísk sam-
suða af poppi síðustu áratuga, allt
frá Motown-kvennaböndunum til
Fleetwood Mac og þaðan til hipp-
hopptónlistar tíunda áratugarins
og R&B.
HAIM hefur verið áberandi í
umræðunni á meðal tónlistar-
áhugamanna í töluverðan tíma
enda hefur sveitin gefið út eftir-
tektarverðar smáskífur með lög-
unum Forever, Don´t Save Me,
Falling og The Wire. Tímaritin
Rolling Stone og Elle hafa hampað
tónlistinni, auk dagblaðsins The
Los Angeles Times. Í Bretlandi
varð HAIM í byrjun ársins fyrsta
bandaríska kvennahljómsveitin
til að bera sigur úr býtum í hinni
árlegu skoðanakönnun BBC á
„Hljómi ársins 2013“.
Systurnar þykja góðar á tón-
leikum og hefur ítrekað verið upp-
selt á tónleika þeirra á staðnum
Troubadour í Los Angeles og í
Music Hall of Williamsburg í New
York. Einnig hafa þær spilað á
hátíðum á borð við SXSW, Lolla-
palooza, Bonnaroo og Governors
Ball. Það er því engin tilviljun að
þeim hefur verið boðið að hita upp
fyrir Phoenix, Florence and the
Machine, Mumford and Sons og
Vampire Weekend.
Upptökustjórar á nýju plötunni
voru Ariel Rechtshaid, sem hefur
unnið með Usher og Vampire
Weekend, og James Ford, sem
hefur starfað með Florence and
the Machine og Arctic Monkeys.
Days Are Gone hefur fengið
góðar viðtökur. The Guardian,
Allmusic, Consequence of Sound
og Q gefa henni fjórar stjörnur af
fimm mögulegum. Rolling Stone
límir á hana þrjár og hálfa stjörnu
og Pitchfork gefur henni 8,3 af 10.
HAIM hefur verið bókuð í
risastóra tónleikaferð sem hefst
í Texas á morgun. Fyrst spilar
sveitin í Bandaríkjunum og ferðast
svo um Evrópu með Phoenix. Að
því loknu halda systurnar ferða-
laginu áfram einar á báti og hafa
síðustu tónleikarnir verið bókaðir
í Glasgow í mars. freyr@frettabladid.is
Engin dramatík hjá
systrunum í HAIM
Systrahljómsveitin HAIM ætlar ekki að rífast eins og bræðurnir í Oasis.
Tónlistar áhugamenn hafa beðið fyrstu plötunnar með mikilli eft irvæntingu.
HAIM Systurnar í HAIM á Lollapalooza-hátíðinni í sumar. Frá vinstri: Este, Alana og Danielle. NORDICPHOTOS/GETTY
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
26.9.2013 ➜ 3.10.2013
1 Lorde Royals
2 Katy Perry Roar
3 Dikta Talking
4 Arctic Monkeys Do I Wanna Know?
5 One Republic Counting Stars
6 Avicii / Aloe Blacc Wake Me Up
7 Kings of Leon Supersoaker
8 Ellie Goulding Burn
9 Taylor Swift / Ed Sheeran Everything Has Changed
10 Lana Del Ray Summertime Sadness
1 Emilíana Torrini Tookah
2 Pálmi Gunnarsson Þorparinn
3 Ýmsir Pottþétt 60
4 Úr söngleik Borgarleikhússins Mary Poppins
5 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
6 Of Monsters And Men My Head Is An Animal
7 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
8 Samaris Samaris
9 Sigur Rós Kveikur
10 múm Smilewound
Í spilaranum
Alana Haim segir enga dramatík vera í gangi í hljómsveitinni og líklega
munu þær starfa saman í langan tíma. „Það er ekkert drama. Við höfum
spilað saman í hljómsveit síðan við vorum örugglega fimm ára. Ef við
ætluðum að fara að rífast eitthvað og eiga okkar Oasis-stund hefði það
gerst fyrir tíu árum. Við erum bara ósammála þegar mig langar að fá
leðurjakkann hennar Danielle lánaðan án þess að hún vilji lána mér. Það
er okkar rifrildi,“ sagði Alana í viðtali við USA Today.
Rífast ekki eins og Oasis
Daníel Bjarnason - Over Light Earth
Drake - Nothing Was the Same
Spaðar - Áfram með smjörið
Það er alltaf jafn ánægjulegt að gefa ákveðnum hljómsveitum, lista-
mönnum og þess vegna lögum langt og gott frí, heimsækja svo aftur og
sjá hvort ógeðið og leiðindin sem höfðu grafið um sig séu enn ríkjandi.
Þannig átti ég til að mynda í mestu vandræðum með R.E.M. og hina
hrjúfu og loðnu en jafnframt skræku og fremur slepjulegu rödd Stæpar-
ans í áraraðir áður en ég tók þá ákvörðun að loka algjörlega á sveitina,
slökkva á útvarpinu ef örlaði á tónlist hennar og gera mitt besta til að
trúa því að hún væri ekki til (sem tókst ágætlega ef frá er talið hið hroll-
vekjandi leiðinlega Everybody Hurts sem
átti til, og á til, að poppa upp í gríð og erg
í lokaatriðum væminna bandarískra sjón-
varpsþátta sem krefjast áhorfs).
En nokkurra ára pása getur reynst
traustur vinur og gert kraftaverk því nú
finnst mér bara notalegt að heyra af og til í
gaurunum frá Georgíufylki, að undanskildu
Everybody Hurts (og jú, líka Losing My Reli-
gion). Sömu sögu má segja af ótal lögum
og lummum, eins og til dæmis (I Can‘t Get
No) Satisfaction með Stóns, Yesterday með
Bítlunum og Light My Fire með Doors.
Þetta eru góð lög en henta síbyljunni illa og
þurfa á mjög reglulegri hvíld að halda.
Ein er þó sú grúppa sem mér hefur hingað til tekist illa að aflétta
nálgunarbanni á, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, eftir að hafa dýrkað og
dáð í frumbernsku. Viðbjóðurinn sem ég fékk á Pixies á sínum tíma var
svo sterkur að enn þann dag í dag rennur mér kalt vatn milli skinns og
hörunds þegar ég heyri lög á borð við Monkey Gone to Heaven, Where Is
My Mind? og sérstaklega Hey og rennur fyrir hugskotssjónum óþolandi
samsöngur drukkinna táninga í gítarpartíum tíunda áratugarins. Það er
helst að ég geti sætt mig við nokkur Havaískotin sörfpopplög á þriðju
stóru plötunni, Bossanova, en þau voru ekki á boðstólum þegar ég sá
Pixies spila í Kaplakrika vorið 2004 og hundleiddist.
Því kom það mér skemmtilega á óvart, eftir að hafa horfst í augu
við hættuna og rennt nýju stuttskífunni með Pixies, EP1, í gegn fyrir
skemmstu, að hún er hreinlega ekki alslæm og rifjar að einhverju leyti
upp fyrir mér hvað það var sem dró mig að Pixies í fyrndinni. Ekki virðast
gagnrýnendur ytra þó vera sammála mér í þeim efnum, því platan
fékk meðal annars heilan einn í einkunn af tíu mögulegum hjá hinni
hættulega skoðanamyndandi tónlistarvefsíðu Pitchfork. En hvað veit
Pitchfork svo sem?
Ég fer í fríið
TÓNNINN
GEFINN
Kjartan Guðmundsson
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t o
kt
ób
er
–d
es
em
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU