Fréttablaðið - 03.10.2013, Blaðsíða 58
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
Vinkonusýning í bíó
Sérstök vinkonusýning var haldin í Smárabíói á dögunum. Þar var kvikmyndin
Málmhaus í leikstjórn Ragnars Bragasonar sýnd við góðar undirtektir gestanna.
SÁU MÁLMHAUS Anna, Kristín, Sigrún og Gunný kíktu í bíó.
SAGA OG VIGDÍS Leikkonan Saga Garðarsdóttir og Vigdís
Perla voru á meðal gesta.
KÍKTU Í BÍÓ Guðbjörg Ása og Anna Soffía kíktu í bíó.
MEÐ POPP OG KÓK Guðrún, Rósa Björg, Málmfríður og Þor-
gerður fengu sér að sjálfsögðu popp og kók.
RAGGA OG BIRKIR Söngkonan Ragnhildur Gísladóttir og
maðurinn hennar Birkir Kristinsson fóru í bíó.
GAMAN Sigríður Hanna og Ebba Guðný skemmtu sér vel í bíó.
FJÓRAR FÍNAR Rósa María, Lína, Eva og Margrét voru flottar
í tauinu.
SYSTUR Í BÍÓ
Systurnar Eva
Laufey og Edda
Hermannsdætur
mættu á vinkonu-
sýninguna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
„Ég ákvað að flytja hingað til lands árið 2006 með
kærastanum mínum, Einari Johnson. Hann hafði
þá þýtt hluta bókarinnar Lovestar eftir Andra Snæ
og lesið fyrir mig. Það málaði svo góða mynd af því
hvernig Íslendingar hugsa,“ segir Fiona Cribben,
fata- og skartgripahönnuður.
„Við ætluðum bara að koma í heimsókn, en svo
festumst við. Ég elska að vera hérna,“ útskýrir
Fiona, en hún leggur nú stund á meistaranám við
Listaháskóla Íslands. Til hliðar rekur hún fata- og
skartgripahönnunarfyrirtæki undir nafninu Fiona
Cribben.
„Ég byrjaði að vinna hjá Baugi þegar ég kom
hingað fyrst, sem verslunarstjóri Top Shop. Svo
fór ég að vinna hjá CCP þar sem ég var að hanna
fyrir Eve Online og World of Darkness,“
segir Fiona, sem er ættuð frá litlu þorpi
á vesturströnd Írlands sem heitir
Rathfarnham.
Hún segist lengi hafa látið sig dreyma
um að tálga skó úr viði. „Einn daginn var ég að
horfa á sjónvarpið og sá mann sem var að vinna
með við, tennur og horn. Ég hringdi í hann og
bað hann um að koma með mér í samstarf. Við
byrjuðum á því að hreinsa horn og tálga úr þeim
alveg fáránlega skrítið skópar,“ útskýrir Fiona.
„Við bjuggum til einhver fimm skópör en sáum þá
að ferlið var alltof langt. Þá byrjaði ég að pæla í
minni hlutum, eins og skartgripum. Ég sá að
við gátum notað hornin og hvaltennur til
þess að búa til skartgripina. Svo fékk ég
hvaltennur algjörlega á heilann. Hval-
tennur eru fjársjóður hafsins, að mínu
mati,“ bætir hún við.
Hvaltennurnar sem Fiona notar í
hönnun sína segir hún vera úr dýri sem rak
á fjöru í Hvalfirði einhvern tímann á áttunda
áratugnum. „Þannig að mín hönnun er dálítið
„pönk“ – ætli það sé ekki anarkistinn í mér,“
segir Fiona að lokum. olof@frettabladid.is
Býr til skart úr horni
og hvaltönnum
Fiona Cribben, hönnuður, hannar skart úr horni og tálgar skrítin skópör.
HANNAR
ÚR HVAL-
TÖNNUM
Fiona
Cribben
hannar skart
úr hval-
tönnum og
tálgar skópör
úr viði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ópera fólksins,“ kallaði stofnandi
óperunnar, Fiorello La Guardia,
framtakið þegar hann stofnaði The
New York City Opera fyrir um það
bil sjötíu árum.
Í áratugi hélt The New York
City Opera úti starfsemi sinni í
Lincoln Center þar í borg. En árið
2011 byrjaði að halla undir fæti og
þurfti óperan að flytja sig um set, í
ódýrara húsnæði.
Opnunarverk óperuhússins í ár,
Anna Nicole eftir Richard Thomas
og Mark-Anthony Turnage, stóð
ekki undir væntingum. Sýningin
heillaði hvorki gagnrýnendur né
gesti, og áhorfendatölur voru langt
undir settum markmiðum.
Í síðasta mánuði var tilkynnt að
starfsemin þyrfti innspýtingu upp
á sjö milljónir dollara til að geta
haldið áfram. Söfnunarátak var sett
af stað en komst ekki nálægt því að
ná markmiðinu. Á þriðjudaginn var
tilkynnti óperuhúsið að starfsemin
yrði lögð niður. - ósk
Starfsemi The New
York City Opera hætt
Þurft u innspýtingu upp á sjö milljónir dollara.
KAUP
HLAUP
HJÁ OPTICAL STU
DIO
SMÁRALIND
3.–7. október
20% afsláttur af