Fréttablaðið - 03.10.2013, Síða 62

Fréttablaðið - 03.10.2013, Síða 62
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50 visir.is Allt um leiki gærkvöldsins MEISTARADEILDIN A-RIÐILL SHAKHTAR - MAN. UNITED 1-1 0-1 Danny Welbeck (18.), 1-1 Taison (76.) LEVERKUSEN - REAL SOCIEDAD 2-1 1-0 Simon Rolfes (45.), 1-1 Carlos Vela (52.), 2-1 Jens Hegeler (90.+2) B-RIÐILL REAL MADRID - FCK 4-0 1-0 Cristiano Ronaldo (21.), 2-0 Cristiano Ronaldo (65.), 3-0 Ángel di María (71.), 4-0 Ángel di María (90.+1). Ragnar Sigurðsson og Rúrik Gíslason léku allan leikinn með FCK. JUVENTUS - GALATASARAY 2-2 0-1 Didier Drogba (36.), 1-1 Arturo Vidal (78.), 2-1 Fabio Quagliarella (87.), 2-2 Umut Bulut (88.). C-RIÐILL ANDERLECHT - OLYMPIAKOS 0-3 0-1 Konstantinos Mitroglou (17.), 0-2 Mitroglou (56.), 0-3 Mitroglou (72.). PARIS SAINT-GERMAIN - BENFICA 3-0 1-0 Zlatan Ibrahimović (5.), 2-0 Marquinhos (25.), 3-0 Zlatan Ibrahimović (30.). D-RIÐILL MAN. CITY - BAYERN MÜNCHEN 1-3 0-1 Franck Ribéry (7.), 0-2 Thomas Müller (56.), 0-3 Arjen Robben (59.), 1-3 Álvaro Negredo (80.) CSKA MOSKVA - VIKTORIA PLZEN 3-2 BÆJARAR FRÁBÆRIR David Alaba og Franck Ribery fagna marki þess síðarnefnda í 3-1 sigri Bayern München á Manchester City á Emirates-leikvangi- num í gærkvöldi. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Þrír leikir fara fram í Olís-deild karla í kvöld. HK tekur á móti ÍR í Digranesi og Fram heimsækir Val í Vodafone- höllina. Þessir leikir hefjast klukkan 19.30. Stórleikur kvöldsins er aftur á móti seint á ferðinni eða klukkan 20.30. Þá mætast Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH. Leikir Hafnarfjarðarliðanna í hand- boltanum eru með best sóttu íþrótta- viðburðum hvers árs enda mikill rígur og stemning alltaf fyrir leikj- unum í Firðinum. Komið hefur fyrir að upp úr sjóði jafnt uppi í stúku sem inn á vellinum. Báðum liðum var spáð góðu gengi í vetur enda tefla þau fram afar frambærilegum liðum líkt og síðustu ár. FH situr á toppi deildarinnar eftir tvær umferðir með þrjú stig. Engu liði tókst að vinna fyrstu tvo leiki sína í deildinni og FH er eina ósigraða liðið í deildinni. FH gerði jafntefli við HK í fyrsta leik og skellti svo Val í þeim næsta. Haukar töpuðu aftur á móti fyrir Val í fyrsta leik en fóru síðan til Eyja þar sem þeir unnu stórsigur á liði ÍBV. Verður áhugavert að sjá hvað gerist í kvöld. - hbg Hafnarfj arðarslagur á Ásvöllum BARÁTTA Þegar FH og Haukar mætast eru átökin mikil. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Meistarakeppni KKÍ fer fram í kvöld þegar Ís- landsmeistarar Grindavíkur og bikarmeistarar Stjörnunnar mætast í Röstinni í Grindavík en þessi árlegi leikur fer alltaf fram á heimavelli Íslandsmeistaranna. Grinda- vík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir 79-74 sigur á Stjörnunni í oddaleik í úrslitaeinvíginu en áður hafði Stjarnan tryggt sér bikarinn með því að vinna 91-79 sigur á Grindavík í bikarúrslitaleiknum í Laugardals- höllinni. Það má því alveg líta á þetta sem loka- uppgjör liðanna tveggja í baráttu um titlana á árinu 2013. Leikurinn hefst klukkan 19.15. Lokauppgjör Grindavíkur og Stjörnunnar á árinu 2013 NÚ MEÐ AFSLÆTTI 20.000 kr. KOMINN AFTUR Í DORMA SPORT FÓTBOLTI Framtíð framherjans Garðars Bergmanns Gunnlaugs- sonar er í óvissu eftir að knatt- spyrnudeild ÍA sagðist ekki hafa áhuga á að nýta hans krafta í fram- tíðinni. „Lokaleikurinn í deildinni fór fram á laugardag en ég fékk að vita á föstudeginum að minnar þjónustu væri ekki óskað lengur. Bjarki bróðir fór þá á fund með knattspyrnudeildinni þar sem frá þessu var greint. Mér fannst mjög ófaglegt að gera þetta dag- inn fyrir síðasta leik. Ég get ekki útskýrt þetta öðruvísi en að þetta var kjaftshögg fyrir mig,“ segir Garðar ósáttur en áhöld eru að hans mati um hvort ÍA geti sagt samningnum upp. Hann spilaði samt allan leik- inn fyrir ÍA daginn eftir að hann fékk þetta kjaftshögg eins og hann orðar það. „Ég ákvað að gefa allt í leik- inn og reyna að troða sokk upp í þessa stjórnarmenn. Því miður fór leikurinn eins og hann fór. Ég var samt stoltur af minni frammi- stöðu og þjálfarinn hrósaði mér fyrir að sýna karakter eftir leik- inn. Ég sagði þjálfaranum frá þessu en hann hafði ekki hugmynd um þetta. Hann vissi samt að ég myndi spila. Það er þjálfarinn sem ræður.“ Bíð eftir nýjum þjálfara Framherjinn er ekki alveg á því að hann sé hættur að spila fyrir ÍA þrátt fyrir þessi tíðindi frá stjórn- inni. „Ég ætla að bíða eftir því hver verður ráðinn þjálfari. Ég held að það ætti að vera hans ákvörðun en ekki ákvörðun stjórnar hverjir spila fyrir ÍA næsta sumar. Ég bý uppi á Skaga og ætlaði að vera hér næstu árin. Það getur vel verið að ég verði hér áfram. Geri bara eins og Grétar Sigfinnur,“ sagði Garðar léttur og vitnaði þar í KR- inginn sem neitaði að fara er KR vildi ekki hafa hann lengur. Hann svaraði því með að fara á kostum í sumar og spila allar mínútur fyrir liðið. „Mér er eiginlega alveg sama þótt stjórnin vilji losna við mig. Það að þjálfarinn vilji halda mér skiptir mestu máli. Ég er til í að spila með ÍA í 1. deildinni næsta sumar og hjálpa liðinu við að kom- ast aftur upp. Ég vildi strax hjálpa liðinu að komast upp er við féllum. Ég hef metnað fyrir því að spila í Pepsi-deildinni en ef ég þarf að bíða í eitt ár eftir því að spila þar aftur er það ekkert mál.“ Garðar hefur verið mikið meiddur síðustu tvö ár og byrjaði tímabilið í ár meiddur. Hann hefur þurft að fara í aðgerðir síðustu tvö ár en sér nú fram á bjartari tíma í þeim efnum. „Ég er heill og gat spilað þrjá leiki síðustu vikuna í mótinu og ekkert mál. Nú fæ ég loksins undirbúningstímabil og get þar af leiðandi komið til leiks næsta sumar í formi en það hefur ekki gerst í mörg ár. Þess vegna er ég líka svekktur með þetta því nú er tækifæri til að kýla almennilega á þetta. Ég er líka Skagamaður, vil hjálpa liðinu og ég hélt að menn vildu byggja þetta upp á heima- mönnum.“ Skagamenn urðu neðstir í Pepsi- deildinni og svolítið síðan liðið féll. ÍA náði sér í raun aldrei á strik í sumar. „Ég á enga skýringu á þessu gengi. Við byrjuðum hrikalega og náðum okkur ekkert upp úr því. Æfingar og mórall var samt góður í allt sumar. Taflan lýgur samt ekkert,“ segir Garðar en bætir við að það hafi komið nokkuð ferskir straumar með Þorvaldi Örlygs- syni er hann tók við liðinu af Þórði Þórðarsyni. „Það varð aftur gaman að mæta á æfingar er hann kom. Það var orðið svolítið þunglyndi er hann kom inn. Hann reif þetta upp en árangurinn lét á sér standa. Það hefur oft gert gæfumuninn að skipta svona um þjálfara en gerði það ekki núna.“ henry@frettabladid.is ÞETTA VAR KJAFTSHÖGG Stjórn knattspyrnudeildar ÍA tjáði Skagamanninum Garðari Gunnlaugssyni daginn fyrir lokaleik í Pepsi- deildinni að hans þjónustu væri ekki lengur óskað hjá ÍA. Tíðindin komu Garðari í opna skjöldu og hann segir vinnubrögð stjórnar vera ófagmannleg. Hann vill hjálpa ÍA við að komast upp úr 1. deildinni. SVEKKTUR Garðar var markahæsti leikmaður ÍA í fyrra en næstmarkahæstur í sumar. Þrátt fyrir það telja Skagamenn sig ekki hafa not fyrir hann. Garðar skorar hér í leik gegn Stjörnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.