Fréttablaðið - 03.10.2013, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 03.10.2013, Blaðsíða 70
3. október 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 58 BÍÓMYNDIN „Þetta er samvinnuverkefni Meistarafélags hársnyrta og Inter- coiffure, alþjóðlegra samtaka sem hafa stofnað hárgreiðsluskóla hér og þar um heiminn, meðal annars þrjá í Brasilíu, einn í Rúmeníu og núna einn í Suður-Afríku. Mér þótti tilvalið að fá íslenskt hár- greiðslufólk til að gefa gömlu skærin og senda þau út því unga fólkið þarf verkfæri til að geta sinnt iðju sinni,“ segir Arnar Tómasson, hárgreiðslumeistari og varaformaður beggja samtakanna. Hann tók á móti gömlum skærum sem send voru út til Suður-Afríku í gærmorgun. Þar verða þau afhent suðurafrískum götubörnum sem hafa hug á að nema háriðn. „Skólarnir er ætlaðir götu- börnum sem hafa komist í kast við lögin. Intercoiffure gerir þeim kleift að læra iðn og þannig finna sér starf til að hafa í sig og á,“ segir Arnar sem hefur starfað sem hárgreiðslumaður frá árinu 1987. Söfnunin hófst á mánudaginn fyrir viku og lauk í gær. „ Meðlimir beggja félaga skiluðu skærum inn til mín, þau voru síðan send til Danmerkur í morgun [gær] og fara þaðan áfram til Suður-Afríku. Þar verða skærin yfirfarin, brýnd og gerð nothæf að nýju. Það muna flestir eftir sínum fyrstu skærum og það er gaman að geta gefið áfram.“ Aðspurður segist Arnar ekki hafa getað látið fyrstu skærin sín af hendi til verkefnisins. „Meistari minn gaf mér mín fyrstu skæri, en því miður á ég þau ekki lengur. Það var brotist inn á stofuna mína fyrir þremur árum síðan og öllu rænt, þar á meðal umræddum skærum,“ segir hann að lokum. - sm Safnaði skærum fyrir götubörn Arnar Tómasson hárgreiðslumeistari stóð fyrir söfnun götubörnum til handa. SAFNAÐI SKÆRUM Arnar Tómasson hárgreiðslumeistari stóð fyrir söfnun á skærum. Skærin voru send til Suður- Afríku í gær og eru ætluð götubörnum sem hafa hug á að stunda hárgreiðslu- iðn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Jóhann Jóhannsson hefur fengið mjög góða dóma fyrir tónlist sína í Hollywood-spennumyndinni Prisoners sem var tekjuhæsta myndin í Bandaríkjunum um þarsíðustu helgi. „Tónlistin eftir íslenska tón- skáldið Jóhann Jóhannsson slær hárréttu sorglegu tónana,“ segir í dómi kvikmyndablaðsins fræga Variety. Gagnrýnandi Associated Press er einnig hrifinn: „Tónlistin eftir Jóhann Jóhannsson lætur þig skjálfa. Reyndu bara að ná henni út úr höfðinu á þér þegar þú yfir- gefur bíóið.“ Í dómi Filmmusicmag. com segir: „Tónlistin við Prisoners er ein sú áhugaverðasta síðan hin snilldarlega skrítna tónlist við There Will Be Blood eftir Jonny Greenwood kom út.“ Jóhann samdi tónlistina í Kaup- mannahöfn þar sem hann býr. Hún var tekin upp í London, Berlín og París. Jóhann vann m.a. með Hildi Guðnadóttur sem spilaði á selló, Norðmanninum Erik Skodvin sem sá um rafhljóð og Thomas Bloch sem spilaði á glerhljóðfæri sem kallast cristal baschet. Einnig spil- aði Bloch á ondes Martenot, sem er franskt rafhljóðfæri frá 1930. Jóhann var viðstaddur frum- sýningar Prisoners í Toronto og Los Angeles, þar sem hann hélt einnig tónleika. Með aðalhlutverk í mynd- inni fara Hugh Jackman og Jake Gyllenhaal. Hún verður frumsýnd hér á landi í dag. Jóhann slær hárréttu sorlegu tónana Jóhann Jóhannsson tónskáld fær góða dóma fyrir tónlist sína við spennumyndina Prisoners. GÓÐIR DÓMAR Jóhann Jóhannsson hefur fengið mjög góða dóma fyrir tónlist sína. ➜ Í viðtali við Fréttablaðið í apríl sagðist Jóhann vera mikill aðdáandi leikstjóra Prisoners, Denis Villeneuve. skæri voru gefi n í söfnunina. 35 Fiskikóngurinn Sogavegi 3 fiskikongurinn.is s. 587 7755 STÓRBÆTTU LÍF ÞITT með breyttu mataræði! Sannkölluð fróðleiksnáma fyrir alla þá sem vilja bæta líf sitt með aukinni vitund um mataræði og sjúkdóma og taka upp hollari lífshætti. „Jóhanna hefur skrifað merkilegt rit um leiðir til betra lífs og hvet ég fólk til að lesa bókina og íhuga efnið.“ SIGMUNDUR GUÐBJARNAS ON FYRRVERANDI REKTOR HÍ 1. SÆTI BÓKSÖLULISTINN ALLAR BÆKUR 09.09.13 til 22.09.13 „Heiðdís kom með hugmyndina um að hanna bleika slaufu handa karlmönnum í sumar. Við vorum með ákveðna slaufu í huga, fyrir- myndin kallast „Kentucky bow tie“, og svo útfærðum við slauf- una í sameiningu,“ segir Svandís Gunnarsdóttir. Hún og vinkona hennar, Heiðdís Inga Hilmars- dóttir, hönnuðu bleika þverslaufu til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Heiðdís Inga hefur áður lagt Krabbameinsfélaginu lið því hún hannaði herðatréð Herra Tré, til styrktar átakinu Mottumars sem fram fór fyrr á árinu. Herðatréð hannaði hún í minningu afa síns, Þóris Þórðarsonar, er lést fyrir ári síðan eftir erfið veikindi. „Hún seldi herðatré fyrir hálfa milljón og hana langaði að halda áfram að leggja málefninu lið. Það er gott að geta lagt sitt af mörkum því það eru margir sem hafa glímt við krabbamein,“ segir Svandís. Þverslaufurnar eru handsaum- aðar af vinkonunum og bera nafnið Bóthildur. „Nafnið var mikill hausverkur. Við vildum fá sterkt, íslenskt kvenmannsnafn á slauf- urnar og duttum niður á nafnið Bóthildur. Nafnið merkir „sú sem baráttuna bætir“ og var eitthvað svo ótrúlega viðeigandi.“ Svandís og Heiðdís hafa þekkst frá því þær voru börn að aldri og stunda báðar nám við Tækni- skólann. „Ég er í fatahönnun og hún stundar nám á almennri hönn- unarbraut. Við erum búnar að vera bestu vinkonur alla okkar skóla- göngu, ef menntaskólaárin eru frá- talin. Ég fór í Versló og hún í MH og vinskapurinn stóðst þá raun,“ segir Svandís og hlær. Þverslaufurnar fást í verslun- unum Hrími og Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar á Laugavegi og að auki á vefsíðunni Krabb.is. Slaufan kostar 3.000 krónur og rennur ágóði sölunnar til Krabba- meinsfélagsins. sara@frettabladid.is Bleikar slaufur í anda Kentucky-manna Vinkonurnar Heiðdís Inga Hilmarsdóttir og Svandís Gunnarsdóttir hönnuðu bleikar þverslaufur á karlmenn til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. BESTU VINKONUR Heiðdís Inga Hilmarsdóttir og Svandís Gunnars dóttir hönnuðu bleika þver- slaufu handa karlmönnum. Slaufurnar eru seldar til styrktar Krabba- meinsfélagi Íslands. ➜ Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini í konum. Love Story. Þegar ég leigði hana í ellefta skiptið spurði gaurinn af hverju ég keypti hana ekki. Núna á ég hana og ég græt alltaf frá upp- hafi til enda. „Love means never having to say you‘re sorry!“ Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður heil- brigðisnefndar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.