Fréttablaðið - 07.11.2013, Page 1
EFNAHAGSMÁL Aðeins möguleikinn
á olíufundi á Drekasvæðinu felur í
sér mikil sóknarfæri fyrir Austur-
land, og reyndar landið allt. Þetta er
mat Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar forsætisráðherra. Að setja
undirbúningsvinnu af stað vegna
hugsanlegs olíufundar leiðir til
jákvæðrar keðjuverkunar og gæti
jafnvel bætt lánstraust Íslands.
„Ég hef mikla trú á framtíð
Íslands og hún byggist ekki hvað
síst á þessum risastóru tækifærum
sem við erum að ræða hér í dag,“
sagði Sigmundur á atvinnumálaráð-
stefnu Austurbrúar á Hallormsstað
í gær, en hugsanlegt olíuævintýri á
Drekasvæðinu og norðurslóðamál
voru þar í forgrunni á öðrum degi
ráðstefnunnar. Hann sagði reyndar
að „norðurslóðamál væru ofarlega,
jafnvel efst á lista, í forgangsröðun
ríkisstjórnarinnar – sérstaklega í
utanríkismálum. Á hverjum einasta
fundi sem ég hef átt með fulltrú-
um erlendra ríkja hefur þetta verið
eitt aðalmálið – og ekki endilega að
mínu frumkvæði.“
Sigmundur sagði að útlendingar
hefðu orðið fyrri til að sjá um
hversu stórt tækifæri sé um að
ræða og því megi Íslendingar
engan tíma missa við að hefja
undir búning. Ekki síst í ljósi þess
að ráðamenn annarra þjóða, ekki
síst Kínverja, séu afar áhugasam-
ir um norðurslóðir og hlutverk
Íslands í því samhengi.
Sigmundur sagði reyndar að
trúin ein gæti dugað til að mikilla
áhrifa. Undirbúningsvinna og rann-
sóknir hafi áhrif á fjárfestingu og
uppbyggingu og jafnvel fjárhag
ríkisins. „Þau vaxtakjör sem bjóð-
ast á þessar skuldir sem við erum
að reyna að greiða niður, þau ráð-
ast af framtíðarhorfum í íslensku
atvinnulífi. Og það að 320 þúsund
manna þjóð væri komin með sterk
rök fyrir því að verulegar olíu- og
gaslindir væri að finna í lögsögunni
myndi væntanlega auka lánstraust
Íslands til mikilla muna og hefði
þannig strax mikil bein fjárhagsleg
áhrif. Bara það að menn hafi trúna
og setji vinnuna af stað getur leitt
til jákvæðrar keðjuverkunar.“ - shá
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
24
ENGIN
TÍSKUFRÍK„Ég er agalega léleg í því að til-einka mér ríkjandi
FJÓRÐA BARNIÐ Á LEIÐINNI
Rússneska fyrirsætan Natalia Vodianova (31) á von á sínu
fjórða barni. Þetta er fyrsta barn hennar með kærastanum
Antoine Arnault en fyrir á hún tvo syni og eina dóttur.
V eðurfræðingurinn og flug-maðurinn Birta Líf Kristinsdóttir birtist landsmönnum í fyrsta sinn á sjónvarpsskjánum í vikunni þegar hún flutti veðurfréttir í Ríkissjónvarpinu. Hún vakti strax mikla athygli og virðist starfið liggja vel fyrir henni. „Já þetta hefur bara gengið ágætlega hingað til,“ segir Birta og neitar því ekki að hafa orðið vör við aukna athygli. „Það hefurverið aðeins meir ð
vera í henni á köldum vetrardögum og
ylja mér um leið við góðar minningar.“
Aðspurð segist Birta ekki velta sér
mikið upp úr fötum og tísku. „Ég er aga-
lega léleg í því að tileinka mér ríkjandi
tískustrauma og er lengi að taka eitthvað
sem er öðruvísi í sátt. Ég er með mjög
einfaldan stíl og heillast aðallega af ein
litum flíkum Pe
VEKUR UPP GÓÐAR MINNINGARBESTA VETRARFLÍKIN Veðurfræðingurinn Birta Líf Kristinsdóttir er með ein-
faldan smekk og er ekki mjög upptekin af tískunni. Hnausþykk vetrarpeysa af
föðurömmu hennar er í uppáhaldi en auk þess er hún veik fyrir kjólum.
HLÝ OG GÓÐBirta hrífst
mest af ein-litum fötum. Peysan af
föðurömmu hennar er
ein af fáum undan-
tekningum.MYND/GVA
TÆKIFÆRISGJAFIRTILBOÐ
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
pHnífa aratöskur – 12 manna
14 tegundirVerð frá kr. 24.990
Léttir og hollir réttir Morgunmatur Kaffitárs-kaffi Happy Hour
Úrvals aðstaða fyrir mannfagnaði og kynningar
Volcano House I Tryggvagata 11 I Tel. 555 1900
www.volcanohouse.is I info@volcanohouse.is
DY
N
AM
O
R
EY
KJ
AV
ÍK
ELDSTÖÐIN
Opið 9.00 – 22.00 alla daga.
EldstöðinKraumandi kaffihús Tryggvagötuvið
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
7. nóvember 2013
262. tölublað 13. árgangur
Á hverjum
einasta fundi
sem ég hef átt
með fulltrúum
erlendra ríkja
hefur þetta
verið eitt aðal-
málið – og ekki endilega
að mínu frumkvæði.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra
MENNING Kristín Gunnlaugsdóttir
fjallar um kvensköp í sýningu sinni í
Listasafni Íslands. 48
SPORT Leikjaálag á efnilegustu
knattspyrnustúlkur þjóðarinnar er
mikið áhyggjuefni. 53
ht.is
ÞVOTTAVÉLAR
Fyrir allt
áhugafólk um
hannyrðir!
Trú á olíufund myndi strax
bæta lánstraust Íslendinga
Sterk rök fyrir olíufundi á yfirráðasvæði Íslands gætu bætt lánstraust þjóðarinnar og því haft meiriháttar áhrif á
fjárhag ríkisins. Forsætisráðherra segir að norðurslóðamál séu efst á lista ríkisstjórnar sinnar í utanríkismálum.
SVÍÞJÓÐ Í líkhúsinu í Kristianstad
í Svíþjóð hefur húsvörður í afleys-
ingastarfi krufið að minnsta kosti
tvö lík. Áður hafði hann tekið líf-
færi og hornhimnur úr látnum
einstaklingum.
Í frétt á vef Sydsvenska
Dagbladet segir að í júlí síðast-
liðnum hafi verið mannekla vegna
sumarfría en í kjallaranum hafi
legið lík sem þurfti að kryfja.
Yfirmenn ákváðu að leita til hús-
varðarins. Honum fannst þetta í
lagi, að því er hann segir í viðtali
á fréttavefnum.
Deildarstjórinn Leif Gillving
kveðst hafa verið efins og leitað
ráða annarra áður en hann tók
ákvörðunina þar sem húsvörður-
inn hafi ekki haft menntun í fag-
inu. Hann hafi hins vegar aðstoð-
að við krufningar um langt skeið.
- ibs
Mannekla í sænsku líkhúsi:
Húsvörðurinn
í krufningum
FÓLK „Lagið heitir Story of My Life og myndbandinu
er leikstýrt af Ben Winston. Hann var svo hrifinn
af myndbandi við lagið When We Were Young sem
ég skaut fyrir hljómsveitina Take That og þannig
var ég fenginn í verkefnið,“ segir Magni
Ágústsson kvikmyndatökustjóri en
hann stjórnaði tökum á nýjasta
myndbandi hljómsveitarinnar One
Direction.
Breska strákahljómsveitin One
Direction er ein frægasta hljóm-
sveit heims um þessar mundir.
„Þessir strákar eru rosalega
ungir, allir um tvítugt. Harry
Styles, sem ég var í mestum sam-
skiptum við, var mjög almenni-
legur og hann spjallaði mikið.
Hann spurði mikið um Ísland,“
segir Magni. „Honum fannst gaman að heyra að
dætur mínar tvær væru aðdáendur númer eitt á
Íslandi,“ útskýrir Magni.
Myndbandið kom út síðastliðinn sunnudag.
„Það er gaman að sjá hvað myndbandinu
gengur vel, það virðist sem einhverjar
milljónir hafi skoðað það fyrsta sólar-
hringinn,“ segir Magni, en rúmar
átján milljónir höfðu séð myndbandið
í gær. - ósk/sjá síðu 58
Magni Ágústsson er reyndur kvikmyndatökustjóri búsettur í Bretlandi:
Skaut One Direction-myndband
SKOÐUN Einar Steingrímsson
skrifar um epli og gerviepli í Háskóla
Íslands. 25
Honum fannst gaman
að heyra að dætur mínur
tvær væru aðdáendur
númer eitt á Íslandi.
Magni Ágústsson
kvikmyndatökustjóri
Bolungarvík -1° NA 13
Akureyri -1° NA 7
Egilsstaðir 0° NA 7
Kirkjubæjarkl. 2° NA 6
Reykjavík 3° NA 8
VÍÐA ÚRKOMA Norðaustan 8-18 m/s,
hvassast á Vestfjörðum. Víða él N-til og
slydda SA-lands, en þurrt að mestu V-til.
Hiti víðast í kringum frostmark en að 5
stigum syðst. 4
KOMIN AÐ BRYGGJU Varðskipið Þór dró fl utningaskipið Fernöndu til hafnar á Grundartanga síðdegis í gær, viku eft ir að
eldur kom upp í skipinu. Þar með lauk afskiptum Landhelgisgæslunnar af Fernöndu en lögregla og slökkvilið koma til með að
ljúka rannsókn á eldsupptökum. Í baráttunni við eldinn um borð í Fernöndu reyndi í fyrsta skipti að fullu á getu varðskipsins til
slökkvistarfs á hafi úti. Sjá bls. 8 FRÉTTABLAÐIÐ/DANIEL
Segir lán
hafa verið mútur
Halldór Bjarkar Lúðvígsson, fyrr-
verandi viðskiptastjóri á útlánasviði
Kaupþings, sagði í héraðsdómi í gær
að 50 milljóna dollara lán bankans til
Al-Thanis hafi verið mútur. 6
Fatlaðir njóta ekki verndar
Ekkert mál hefur borist nefnd sem á
úrskurða um hvort beita megi fatlað
fólk nauðung á því ári sem liðið er frá
því nefndinni var komið á laggirnar.
Ástæðan er fjárskortur. 4
Standa ekki vaktina Keppinautur
Íslandspósts telur Póst- og fjarskipta-
stofnun vanhæfa til að taka á „lög-
brotum“ Íslandspósts og hafi árum
saman engar athugasemdir gert við
brotalamir í rekstri félagsins. 10