Fréttablaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 22
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI 22
Viðskiptakjör inn- og útflutnings
Íslands eru í sögulegu lágmarki
og ráð gert fyrir áframhald-
andi rýrnun þeirra á næstu ár.
„Aðallega vegna lægra sjávar-
afurðaverðs,“ segir Þórarinn G.
Pétursson, aðalhagfræðingur
Seðlabankans. Hann kynnti þjóð-
hagsspá bankans á fundi í Seðla-
bankanum í gær.
„Viðskiptakjörin hafa verið
okkur afar óhagstæð og hafa
nú rýrnað um 17 prósent frá
árinu 2007,“ sagði Þórarinn og
kvað kjörin ekki hafa verið jafn-
slæm síðan 1964. „Eftir að efna-
hagskreppan skall á núna fyrir
nokkrum árum þá hafa þau nán-
ast samfellt verið að rýrna.“
Í umfjöllun í Peningamálum
kemur fram að í fyrra hafi við-
skiptakjör landsins verið um sjö
prósentum undir því sem þau
hafa að meðaltali verið frá lokum
seinni heimsstyrjaldar. Bankinn
gerir ráð fyrir að viðskiptakjör
haldi áfram að rýrna á spátíma-
bilinu sem nær til ársins 2016,
og verði þá komin ellefu prósent
undir langtímameðaltal. Rýrn-
unina megi fyrst og fremst rekja
til slaks hagvaxtar í helstu við-
skiptalöndum Íslands og mikillar
lækkunar á verði sjávarafurða.
Þróun viðskiptakjara segir
Þórarinn að skýri að nokkru leyti
hvers vegna efnahagsbati hér hafi
verið jafnhægur og raun ber vitni.
Þróunin hafi grafið undan gengi
krónunnar og gert úrlausn nú-
verandi greiðslujafnaðarvanda
erfiðari en ella. - óká
FARIÐ YFIR PENINGAMÁL Þórarinn
G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðla-
bankans, kynnir Peningamál, efnahags-
rit bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Frá byrjun alþjóðlegu fjármálakreppunnar 2007 hafa viðskiptakjör út- og innflutnings versnað um 17%:
Viðskiptakjör landsins ekki verri síðan 1964
Icelandair flutti um 185 þús-
und farþega í millilandaflugi
í síðastliðnum októbermánuði.
Farþegar voru þá átta prósentu-
stigum fleiri en í sama mánuði
árið 2012.
Farþegum flugfélagsins
fjölgaði mest í ferðum á milli
Norður-Ameríku og Evrópu, eða
um 17,8%, að því er fram kemur í
tilkynningu Icelandair. Þar segir
einnig að farþegum í innan lands-
og Grænlandsflugi hafi fækkað
um 8%. - hg
Flutningatölur Icelandair:
Farþegum fjölg-
aði milli ára
Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá
Seðlabankans eru horfur á að hag-
vöxtur í ár verði nokkru meiri en
bankinn spáði í ágúst, eða 2,3 pró-
sent. Næstu tvö ár gerir bankinn
engu að síður ráð fyrir svipuðum
vexti og áður hafði verið spáð.
Kynnt var í gær ákvörðun
Peningastefnunefndar Seðla-
bankans um að halda stýrivöxtum
bankans enn óbreyttum og efna-
hagsritið Peningamál með nýrri
þjóðhagsspá.
Vöxtum Seðlabankans var síð-
ast breytt í nóvember í fyrra.
„Er þetta lengsta samfellda tíma-
bil óbreyttra stýrivaxta bankans
síðan 2004,“ segir í umfjöllun
Greiningar Íslandsbanka.
Í yfirlýsingu Peningastefnu-
nefndar kemur fram að verðbólgu-
horfur hafi batnað nokkuð frá síð-
ustu spá bankans. „Eftir að hafa
aukist nokkuð á þriðja fjórðungi
ársins hefur verðbólga minnkað
á ný,“ sagði Már Guðmundsson
seðlabankastjóri við kynningu á
ákvörðun peningastefnunefndar
í gær.
„Samkvæmt spá bankans eru
horfur á hægfara hjöðnun verð-
bólgu á næstu misserum. Hún
verður minni á næstunni en áður
var reiknað með en verðbólgu-
horfur til ársins 2016 eru í stórum
dráttum svipaðar.“ Már segir ráð
gert fyrir að verðbólga hnígi að
markmiði undir lok árs 2015.
Hjöðnun verðbólgunnar sagði
Már auðvitað mjög hægfara og
um margt óásættanlega hæga,
auk þess sem hún væri næm fyrir
þróun gengis og launa á næstu
misserum. „Hafa verður í huga
að í spánni er gert ráð fyrir því
að launahækkanir verði nokkuð
umfram það sem samrýmist verð-
bólgumarkmiði,“ sagði Már, en í
yfirlýsingu peningastefnunefndar
kemur fram að verði launhækk-
anir í komandi kjarasamningum
í samræmi við spána þá sé lík-
legt að nafnvextir bankans muni
að óbreyttu hækka í framhald-
inu. „Launahækkanir umfram
það auka líkur á vaxtahækkunum
enn frekar,“ sagði Már, en árétt-
aði um leið að launahækkanir
sem samrýmdust verðbólgumark-
miði hefðu þau áhrif að verðbólga
hjaðnaði hraðar en spá bankans
gerir ráð fyrir og vextir gætu þar
af leiðandi orðið lægri en ella.
Þá hafi áhrif stefnan í ríkisfjár-
málum. „Mikilvægt er að eftir
meðferð Alþingis á frumvarpi til
fjárlaga verði aðhald í ríkisfjár-
málum að minnsta kosti jafn mikið
og boðað er í frumvarpinu.“
Auk óvissu vegna komandi
kjarasamninga, nefndi Már að
viðskiptakjör Íslands hefðu versn-
að á undanförnum misserum og
það rýrt viðskiptaafgang og sett
þrýsting á gengi krónunnar. Þá sé
enn óvissa um hvaða áhrif þung
greiðslubyrði erlendra lána, upp-
gjöra búa föllnu bankanna og losun
fjármagnshafta hafi á gengi krón-
unnar. olikr@frettabladid.is
Hagvöxtur er
umfram spár
Stýrivextir Seðlabankans eru óbreyttir. Þeir hafa ekki
verið óbreyttir jafnlengi síðan 2004. Horfur á mjög
hægfara verðbólguhjöðnun. Seðlabankinn hækkar
vexti ef launahækkanir þrýsta um of á verðbólgu.
SEÐLABANKASTJÓRI Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynnti ákvörðun
peningastefnunefndar um óbreytta stýrivexti á kynningarfundi í húsakynnum Seðla-
banka Íslands í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Mikilvægt er að eftir
meðferð Alþingis á frum-
varpi til fjárlaga verði
aðhald í ríkisfjármálum
að minnsta kosti jafn
mikið og boðað er í frum-
varpinu.
Már Guðmundsson
seðlabankastjóri.
7. – 11. 2. 2014
Á Ambiente má sjá allan heiminn. Þar má sjá
möguleikana, tækifærin og alþjóðlega strauma
og stefnur kynnt af fl eiri en 4.700 sýningaraðilum.
Á áherslusviði Giving má fi nna fjöldan allan af
hugmyndum að gjafavöru. Líta má til nýrra tíma,
til framtíðar.
Hvenær sjáum við þig á sýningunni?
Upplýsingar og aðgöngumiðar á forsöluverði á
ambiente.messefrankfurt.com
dimex@dimex.dk
Sími: +45 39 40 11 22
the show
Ambiente 201
4
Samstarfsland
„Þegar skýrslan er skoðuð má sjá hægan
bata á þessum helstu sviðum atvinnulífs-
ins,“ segir Viðar Ingason, hagfræðingur
hjá Viðskiptaráði Íslands.
Ráðið birti í gær skýrslu þar sem svo-
kölluð heilbrigðisvísitala atvinnulífsins
er tekin saman. Vísitölunni er skipt í sex
undirvísitölur sem saman eiga að veita
einfalt yfirlit yfir getu íslensks atvinnulífs
til aukinnar verðmætasköpunar.
„Ef við skoðum þessar sex vísistölur þá
hafa þær undanfarin ár þróast með mis-
munandi hætti og þegar heildarvísitalan
er tekin saman er vöxturinn ekkert gríðar-
lega mikill,“ segir Viðar.
Hann segir að heilbrigðisvísitalan frá
árinu 2009 hafi sýnt ákveðinn viðsnúning
en að spá Viðskiptaráðs fyrir næstu tvö ár
geri áfram ráð fyrir hægum bata.
„Á heildina litið gefur þessi vísitala til
kynna að heilbrigði atvinnulífsins sé nú
um sjö prósentustigum lakara en það var
árið 2003.“ - hg
Viðskiptaráð birti skýrslu um getu atvinnulífsins til verðmætasköpunar:
Spá hægum bata næstu árin
BATAMERKI Viðskiptaráð segir heilbrigði atvinnulífsins hafa batnað
síðustu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM.