Fréttablaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 66
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 54
Theódór Sveinjónsson,
annar af þjálfurum 2. og 3. flokks kvenna
Fjórtán ára lykilmaður
í tveimur flokkum
Stórefnileg fjórtán ára stúlka spilar með Breiðabliki. Þrátt
fyrir að vera gjaldgeng í 4. flokk æfir hún eingöngu með 2.
og 3. flokki félagsins. Í sumar spilaði hún líka nánast alla
leiki beggja flokka.
„Þótt það sé skráður á hana leikur þá spilaði hún stundum
hálfleik í einum leik og annan hálfleik í þeim næsta,“ segir
Theódór Sveinjónsson, annar af þjálfurum 2. og 3. flokks
kvenna. Ekkert félag á Íslandi getur keppt við Breiðablik
þegar kemur að iðkendafjölda. Þó virðist vanta upp í vissa
árganga hjá Blikum og á það við um 2. flokk félagsins.
„Okkur reyndist erfitt að manna leikina og þurftum að
leita til stelpna úr 3. flokki,“ segir Theódór. Hann segir
pressu koma frá hinum og þessum stöðum um að leik maður
fái að spila sem flesta leiki. Aðspurður hvort það sé ekki
aðallega frá foreldrum á Theódór erfitt með að neita því.
Samstarf við foreldra hafi verið gott en þeir reyni oft og
tíðum að hafa áhrif á ákvarðanir þjálfara.
„Við megum ekki halda leikmönnum niðri og
þurfum að finna verkefni við hæfi,“ segir Theódór.
Leikmaðurinn hafi sloppið við meiðsli í sumar þrátt
fyrir mikið álag.
„Við þjálfararnir þurfum að ráða þessu og bera
hag leikmannsins fyrir brjósti.
Magnea Guðlaugsdóttir, þjálfari
meistaraflokks og 2. flokks Skagamanna
Stelpurnar urðu snarvitlausar
Kvennalið ÍA tryggði sér sæti í efstu deild eftir
nokkra fjarveru í sumar. Meistaraflokkur félagins var
að mestu leyti skipaður uppöldum stelpum sem margar
hverjar eru enn gjaldgengar í 2. flokk félagsins. Ein
þeirra, á sautjánda ári, var í algjöru lykilhlutverki á
hvorum tveggja vígstöðvunum. Í júlí spilaði hún einu
sinni fjóra leiki á sex dögum. Í ágúst spilaði hún leiki
tvo daga í röð. Í september voru leikirnir eitt sinn þrír
á fimm dögum. Magnea Guðlaugsdóttir er þjálfari
meistaraflokks og 2. flokks Skagamanna.
„Þetta var rosalegt vandamál hjá bæði meistaraflokki
og 2. flokki í sumar,“ segir Magnea og bendir á að fjórir til
fimm leikmenn hafi spilað alltof marga leiki í sumar. Lagt
hafi verið upp með að hafa mun minna álag á leikmenn en
það einfaldlega ekki gengið eftir.
„Þetta var skelfilegt og ég er búin að setja svart strik yfir
að þetta verði svona aftur á næsta ári.“
Magnea segir fámenni í flokkum eina ástæðu fyrir því
hvernig fór. Auk þess hafi verið erfitt að koma leikmönnum í
skilning um að best væri að þær spiluðu ekki.
„Við tókum þetta fyrir í einum bikarleik í sumar hjá 2.
flokki. Við tókum meistaraflokksstelpurnar úr byrjunar-
liðinu og ætluðum að hvíla þær. Þá urðu hinar í liðinu snar-
vitlausar. Hvers konar vanvirðing væri það að ætla að
tapa leiknum með engar drottningar inni á vellinum?“
Þá hafi einnig tekið á þegar leikmenn hafi verið tekn-
ir snemma af velli til að hvíla. Stelpurnar vilji spila
alla leiki en hún hafi meðal annars reynt að benda
þeim á sín eigin hné til að útskýra ákvarðanir sínar.
„Ég er með slitin krossbönd og ónýt hné báðum
megin. Ég hef farið í fullt af aðgerðum. Samt voru
leikirnir miklu færri þegar ég var að spila en í
dag.“
FÓTBOLTI Er eðlilegt að stelpa á fjórtánda ári spili 34 leiki
með tveimur flokkum yfir sumarið? En að lykilmaður í
meistaraflokksliði spili sömuleiðis 16 leiki með 2. flokki
félagsins um sumarið? Hvað með að aðalframherji meistara-
flokks sé látinn spila leiki með 2. flokki þegar á þarf að
halda? Skiptir máli að strax daginn eftir sé leikur með
meistaraflokki? Ýmsar aðstæður geta komið upp en ljóst er
að heilsa og framtíðarhagur efnilegustu knattspyrnukvenna
landsins er ekki hafður að leiðarljósi í fyrrnefndum dæmum.
Aldís Kara Lúðvíksdóttir, Elín Metta Jensen, Fjolla Shala,
Guðrún Arnardóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir, Sandra
María Jessen og fleiri mætti nefna. Stelpurnar tilheyra gull-
kynslóð úr árgöngum 1994 og 1995 sem hafa gert frábæra
hluti á erlendri grundu með yngri landsliðum þjóðarinnar.
Allar eru þær lykilmenn í liðum sínum í efstu deild kvenna
þrátt fyrir að vera enn á táningsaldri. Þær eiga það einnig
allar sameiginlegt að hafa lent í erfiðum meiðslum sem að
miklu leyti má rekja til alltof mikils álags.
Hér á síðunni má sjá nokkur dæmi um efnilegar fótbolta-
stelpur sem segja má að líði fyrir það hve góðar þær eru.
Þær líða kannski ekki fyrir það í dag. En þegar ekki verður
vart við framfarir og krossbönd slitna undan álagi ætti eng-
inn að koma af fjöllum. Samantektin miðast við fjölda leikja
þar sem leikmennirnir tóku þátt. Vissulega spiluðu allar
stelpurnar ekki allar mínúturnar í öllum leikjum. Sem betur
fer. Hverjum leik fylgir þó álag og stundum langt ferðalag.
Tími sem leikmenn ættu allajafna að nota í hvíld til að safna
orku fyrir næstu átök.
Verðum að passa gullmolana okkar
Efnilegustu knattspyrnustelpur landsins verða margar hverjar fyrir erfi ðum meiðslum á táningsárum. Álagið á leikmennina er mikið
og virðist sem hagur leikmanns sé óþarfl ega oft virtur að vettugi til að þjóna hagsmunum félags. Þjálfarar segjast vera í erfi ðri stöðu.
EFNILEGAR Leikmenn úr 17 ára landsliði Íslands sem komst í undanúrslit á Evrópumótinu sumarið 2011. MYND/ÍRIS BJÖRK EYSTEINSDÓTTIR
Hvers vegna er leikjaálag
svo slæmt?
➜ Leikmenn fá lítinn tíma til að jafna sig á milli leikja.
➜ Talað er um að fullorðnir einstaklingar þurfi 48-72 klukku-
stundir til að ná sér að fullu á milli leikja.
➜ Orka leikmanna fer í leiki þar sem snerting við bolta er mun
minni en á æfingum.
➜ Leikmenn meiðast frekar í leikjum þar sem ákefð er mikil.
➜ Spili leikmenn þreyttir stóreykst meiðslahættan.
➜ Besti tíminn til að auka færni er á unglingsárum. Mun betra
tækifæri fæst til að vinna í sérstökum þáttum á æfingum en í
leikjum sem þó þurfa að fylgja með.
➜ Fái leikmenn ekki tíma til æfinga er hætt við að þeir
staðni, taki ekki framförum og efnilegir leikmenn verði aldrei
að framúrskarandi leikmönnum.
Kolbeinn Tumi
Daðason
kolbeinntumi@frettabladid.is
Björgvin Karl Gunnarsson,
þjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR
Það vantar fleiri stelpur
Stórefnileg sextán ára stúlka hjá KR var í lykilhlutverki
hjá meistaraflokki félagsins í 1. deild í sumar. Auk þess
spilaði hún töluvert með 2. flokki félagsins og varði einnig
markið hjá 3. flokki þegar mikið lá við. Við bætist að hún
var í stóru hlutverki með 16 ára og 17 ára landsliðinu á
árinu en landsleikirnir urðu tólf á árinu.
„Það vantar mannskap. Það er ástæða númer eitt, tvö og
þrjú,“ segir Björgvin Karl Gunnarsson, þjálfari meistara-
flokks kvenna hjá KR. Hann segir mikil-
vægt að hafa í huga að þótt leikirnir séu
margir þá séu fjölmargir leikir þar
sem leikmaðurinn efnilegi spili ekki
heilan leik. Mínútur séu að einhverju
leyti betra viðmið þótt hann taki undir
að um vandamál sé að ræða.
„Þess vegna var farið í sameiningu
hjá KR og Gróttu í þessum erfiðu flokk-
um,“ segir Björgvin Karl og á við 2.,
3. og 4. flokk.
Þrátt fyrir mikið álag segir
hann að vegna ástandsins hafi
leikmaðurinn spilað minna
með meistaraflokki í sumar
en hann hefði viljað. Geta
hennar sé það mikil að hún
ætti að óbreyttu að spila 90
mínútur í hverjum leik.
Það hafi ekki verið hægt
vegna aukins álags með 2.
flokki þar sem stundum
var erfitt að ná í ellefu manna lið.
Helena Ólafsdóttir,
þjálfari meistaraflokks Vals
Hóuðu í þær bestu
á ögurstundu
Lið Vals/ÍR í 2. flokki kvenna var í bull-
andi fallbaráttu þegar fjórar umferðir
voru eftir af móti og góð ráð dýr.
„Við funduðum út af þessu. Við
vorum komin í fallhættu og tekin sam-
eiginleg ákvörðun um að aðstoða
annan flokkinn við að halda sér
uppi,“ segir Helena Ólafsdóttir,
þjálfari meistaraflokks Vals.
Aðstoðin fólst í því að lykilmenn
úr meistaraflokknum spiluðu
með liðinu í næstu leikjum. Hildur
Antonsdóttir og Svava Rós Guð-
mundsdóttir spiluðu í 3-1 tapi fyrir
Stjörnunni/Álftanesi. Í næsta leik
var markadrottningin sjálf, Elín Metta
Jensen, einnig mætt til leiks og skoraði
þrennu í 5-1 sigri á ÍA. Aftur skoraði Elín
Metta þrennu í 3-2 lykilsigri á ÍBV í Vest-
mannaeyjum og sætið tryggt. Daginn eftir
var Elín Metta svo í byrjunarliði meistara-
flokks og skoraði tvö mörk í 6-0 sigri á HK/
Víkingi. Tveir leikir á tveimur dögum auk
ferðalagsins til Vestmannaeyja.
„Ég hefði alveg getað hvílt hana hefði ég
viljað. Allur mannskapurinn í meistara-
flokki var kominn í lag á þessum tíma eftir erfiðan fyrri
hluta sumars,“ segir Helena. Elín Metta spilaði þó allan
leikinn.
Helena segir að aldrei hefði komið til greina að láta
leikmennina spila fyrrnefnda leiki með 2. flokki hefði
meistaraflokkur átt möguleika á titlinum. Staða liðsins
bauð upp á þetta en áhætta fylgdi vissulega ákvörðuninni.
„Svava tognaði meira að segja í einum leiknum með 2.
flokki. Ég var ekki ánægð með það,“ segir Helena. Hún
telur að breyta þurfi fyrirkomulagi 2. flokks á þann veg
að eldri leikmenn megi líka spila með flokknum.
„Þegar félög eins og Breiðablik, með allan þennan
fjölda, eru í vandræðum með að ná í lið er þetta orðið
athyglisvert.“
Janus Guðlaugsson, MEd-íþróttafræðingur og
lektor við íþrótta- og heilsubraut Háskóla Íslands
Maður á að fara vel með gullið sitt
„Heilsan er það dýrmætasta sem hver einstaklingur á
og því þurfa bæði þjálfarar, foreldrar og stjórnarmenn
félaga að hafa heilsu og velferð hvers einstaklings í huga,
bæði við skipulag á mótum og æfingum – og samspili
þessara þátta,“ segir Janus Guðlaugsson, MEd-íþrótta-
fræðingur og lektor við íþrótta- og heilsubraut Háskóla
Íslands.
Janus bendir á að tími til uppbyggingar á afkastagetu
nái til 18-20 ára aldurs og haldi áfram í áratug. Góð
þjálfun afreksmanna skili sér meðal annars í því að ein-
staklingar séu farnir að leika svo lengi sem raun ber
vitni.
„Því þurfa langtímamarkmið að ráða för en ekki
skammtímamarkmið einstakra leikja eða móta þegar
börn og unglingar eiga í hlut. Knattspyrnuferill ungra
leikmanna getur orðið að engu á nokkrum vikum með illa
skipulögðu æfinga- og leikjaálagi.“
Janus bendir á hve vel sé staðið að þjálfun Anítu
Hinriksdóttur, hlaupakonunnar stórefnilegu, hvað tíðni
æfinga, æfingamagn og ákefð á æfingum snerti.
„Hvað gerir maður með gullið sitt? Fer vel með það.“
Janus segir að æskilegt væri að fleiri þjálfarar og
stjórnendur tækju sér slíkt til fyrirmyndar því álag á
mörg efnileg börn og unglinga sé allt of mikið. Sérstak-
lega hjá mörgum af efnilegustu knattspyrnukonum lands-
ins þegar leikjaálagið er skoðað á heimasíðu KSÍ.
„Eftirlit er lítið og allt traust lagt á þjálfara að sinna hlut-
verkinu. Ábyrgðin er einnig á þeim sem skipuleggja mót
og keppni á vegum sambanda og félaga.“