Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.11.2013, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 07.11.2013, Qupperneq 66
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 54 Theódór Sveinjónsson, annar af þjálfurum 2. og 3. flokks kvenna Fjórtán ára lykilmaður í tveimur flokkum Stórefnileg fjórtán ára stúlka spilar með Breiðabliki. Þrátt fyrir að vera gjaldgeng í 4. flokk æfir hún eingöngu með 2. og 3. flokki félagsins. Í sumar spilaði hún líka nánast alla leiki beggja flokka. „Þótt það sé skráður á hana leikur þá spilaði hún stundum hálfleik í einum leik og annan hálfleik í þeim næsta,“ segir Theódór Sveinjónsson, annar af þjálfurum 2. og 3. flokks kvenna. Ekkert félag á Íslandi getur keppt við Breiðablik þegar kemur að iðkendafjölda. Þó virðist vanta upp í vissa árganga hjá Blikum og á það við um 2. flokk félagsins. „Okkur reyndist erfitt að manna leikina og þurftum að leita til stelpna úr 3. flokki,“ segir Theódór. Hann segir pressu koma frá hinum og þessum stöðum um að leik maður fái að spila sem flesta leiki. Aðspurður hvort það sé ekki aðallega frá foreldrum á Theódór erfitt með að neita því. Samstarf við foreldra hafi verið gott en þeir reyni oft og tíðum að hafa áhrif á ákvarðanir þjálfara. „Við megum ekki halda leikmönnum niðri og þurfum að finna verkefni við hæfi,“ segir Theódór. Leikmaðurinn hafi sloppið við meiðsli í sumar þrátt fyrir mikið álag. „Við þjálfararnir þurfum að ráða þessu og bera hag leikmannsins fyrir brjósti. Magnea Guðlaugsdóttir, þjálfari meistaraflokks og 2. flokks Skagamanna Stelpurnar urðu snarvitlausar Kvennalið ÍA tryggði sér sæti í efstu deild eftir nokkra fjarveru í sumar. Meistaraflokkur félagins var að mestu leyti skipaður uppöldum stelpum sem margar hverjar eru enn gjaldgengar í 2. flokk félagsins. Ein þeirra, á sautjánda ári, var í algjöru lykilhlutverki á hvorum tveggja vígstöðvunum. Í júlí spilaði hún einu sinni fjóra leiki á sex dögum. Í ágúst spilaði hún leiki tvo daga í röð. Í september voru leikirnir eitt sinn þrír á fimm dögum. Magnea Guðlaugsdóttir er þjálfari meistaraflokks og 2. flokks Skagamanna. „Þetta var rosalegt vandamál hjá bæði meistaraflokki og 2. flokki í sumar,“ segir Magnea og bendir á að fjórir til fimm leikmenn hafi spilað alltof marga leiki í sumar. Lagt hafi verið upp með að hafa mun minna álag á leikmenn en það einfaldlega ekki gengið eftir. „Þetta var skelfilegt og ég er búin að setja svart strik yfir að þetta verði svona aftur á næsta ári.“ Magnea segir fámenni í flokkum eina ástæðu fyrir því hvernig fór. Auk þess hafi verið erfitt að koma leikmönnum í skilning um að best væri að þær spiluðu ekki. „Við tókum þetta fyrir í einum bikarleik í sumar hjá 2. flokki. Við tókum meistaraflokksstelpurnar úr byrjunar- liðinu og ætluðum að hvíla þær. Þá urðu hinar í liðinu snar- vitlausar. Hvers konar vanvirðing væri það að ætla að tapa leiknum með engar drottningar inni á vellinum?“ Þá hafi einnig tekið á þegar leikmenn hafi verið tekn- ir snemma af velli til að hvíla. Stelpurnar vilji spila alla leiki en hún hafi meðal annars reynt að benda þeim á sín eigin hné til að útskýra ákvarðanir sínar. „Ég er með slitin krossbönd og ónýt hné báðum megin. Ég hef farið í fullt af aðgerðum. Samt voru leikirnir miklu færri þegar ég var að spila en í dag.“ FÓTBOLTI Er eðlilegt að stelpa á fjórtánda ári spili 34 leiki með tveimur flokkum yfir sumarið? En að lykilmaður í meistaraflokksliði spili sömuleiðis 16 leiki með 2. flokki félagsins um sumarið? Hvað með að aðalframherji meistara- flokks sé látinn spila leiki með 2. flokki þegar á þarf að halda? Skiptir máli að strax daginn eftir sé leikur með meistaraflokki? Ýmsar aðstæður geta komið upp en ljóst er að heilsa og framtíðarhagur efnilegustu knattspyrnukvenna landsins er ekki hafður að leiðarljósi í fyrrnefndum dæmum. Aldís Kara Lúðvíksdóttir, Elín Metta Jensen, Fjolla Shala, Guðrún Arnardóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir, Sandra María Jessen og fleiri mætti nefna. Stelpurnar tilheyra gull- kynslóð úr árgöngum 1994 og 1995 sem hafa gert frábæra hluti á erlendri grundu með yngri landsliðum þjóðarinnar. Allar eru þær lykilmenn í liðum sínum í efstu deild kvenna þrátt fyrir að vera enn á táningsaldri. Þær eiga það einnig allar sameiginlegt að hafa lent í erfiðum meiðslum sem að miklu leyti má rekja til alltof mikils álags. Hér á síðunni má sjá nokkur dæmi um efnilegar fótbolta- stelpur sem segja má að líði fyrir það hve góðar þær eru. Þær líða kannski ekki fyrir það í dag. En þegar ekki verður vart við framfarir og krossbönd slitna undan álagi ætti eng- inn að koma af fjöllum. Samantektin miðast við fjölda leikja þar sem leikmennirnir tóku þátt. Vissulega spiluðu allar stelpurnar ekki allar mínúturnar í öllum leikjum. Sem betur fer. Hverjum leik fylgir þó álag og stundum langt ferðalag. Tími sem leikmenn ættu allajafna að nota í hvíld til að safna orku fyrir næstu átök. Verðum að passa gullmolana okkar Efnilegustu knattspyrnustelpur landsins verða margar hverjar fyrir erfi ðum meiðslum á táningsárum. Álagið á leikmennina er mikið og virðist sem hagur leikmanns sé óþarfl ega oft virtur að vettugi til að þjóna hagsmunum félags. Þjálfarar segjast vera í erfi ðri stöðu. EFNILEGAR Leikmenn úr 17 ára landsliði Íslands sem komst í undanúrslit á Evrópumótinu sumarið 2011. MYND/ÍRIS BJÖRK EYSTEINSDÓTTIR Hvers vegna er leikjaálag svo slæmt? ➜ Leikmenn fá lítinn tíma til að jafna sig á milli leikja. ➜ Talað er um að fullorðnir einstaklingar þurfi 48-72 klukku- stundir til að ná sér að fullu á milli leikja. ➜ Orka leikmanna fer í leiki þar sem snerting við bolta er mun minni en á æfingum. ➜ Leikmenn meiðast frekar í leikjum þar sem ákefð er mikil. ➜ Spili leikmenn þreyttir stóreykst meiðslahættan. ➜ Besti tíminn til að auka færni er á unglingsárum. Mun betra tækifæri fæst til að vinna í sérstökum þáttum á æfingum en í leikjum sem þó þurfa að fylgja með. ➜ Fái leikmenn ekki tíma til æfinga er hætt við að þeir staðni, taki ekki framförum og efnilegir leikmenn verði aldrei að framúrskarandi leikmönnum. Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@frettabladid.is Björgvin Karl Gunnarsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR Það vantar fleiri stelpur Stórefnileg sextán ára stúlka hjá KR var í lykilhlutverki hjá meistaraflokki félagsins í 1. deild í sumar. Auk þess spilaði hún töluvert með 2. flokki félagsins og varði einnig markið hjá 3. flokki þegar mikið lá við. Við bætist að hún var í stóru hlutverki með 16 ára og 17 ára landsliðinu á árinu en landsleikirnir urðu tólf á árinu. „Það vantar mannskap. Það er ástæða númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Björgvin Karl Gunnarsson, þjálfari meistara- flokks kvenna hjá KR. Hann segir mikil- vægt að hafa í huga að þótt leikirnir séu margir þá séu fjölmargir leikir þar sem leikmaðurinn efnilegi spili ekki heilan leik. Mínútur séu að einhverju leyti betra viðmið þótt hann taki undir að um vandamál sé að ræða. „Þess vegna var farið í sameiningu hjá KR og Gróttu í þessum erfiðu flokk- um,“ segir Björgvin Karl og á við 2., 3. og 4. flokk. Þrátt fyrir mikið álag segir hann að vegna ástandsins hafi leikmaðurinn spilað minna með meistaraflokki í sumar en hann hefði viljað. Geta hennar sé það mikil að hún ætti að óbreyttu að spila 90 mínútur í hverjum leik. Það hafi ekki verið hægt vegna aukins álags með 2. flokki þar sem stundum var erfitt að ná í ellefu manna lið. Helena Ólafsdóttir, þjálfari meistaraflokks Vals Hóuðu í þær bestu á ögurstundu Lið Vals/ÍR í 2. flokki kvenna var í bull- andi fallbaráttu þegar fjórar umferðir voru eftir af móti og góð ráð dýr. „Við funduðum út af þessu. Við vorum komin í fallhættu og tekin sam- eiginleg ákvörðun um að aðstoða annan flokkinn við að halda sér uppi,“ segir Helena Ólafsdóttir, þjálfari meistaraflokks Vals. Aðstoðin fólst í því að lykilmenn úr meistaraflokknum spiluðu með liðinu í næstu leikjum. Hildur Antonsdóttir og Svava Rós Guð- mundsdóttir spiluðu í 3-1 tapi fyrir Stjörnunni/Álftanesi. Í næsta leik var markadrottningin sjálf, Elín Metta Jensen, einnig mætt til leiks og skoraði þrennu í 5-1 sigri á ÍA. Aftur skoraði Elín Metta þrennu í 3-2 lykilsigri á ÍBV í Vest- mannaeyjum og sætið tryggt. Daginn eftir var Elín Metta svo í byrjunarliði meistara- flokks og skoraði tvö mörk í 6-0 sigri á HK/ Víkingi. Tveir leikir á tveimur dögum auk ferðalagsins til Vestmannaeyja. „Ég hefði alveg getað hvílt hana hefði ég viljað. Allur mannskapurinn í meistara- flokki var kominn í lag á þessum tíma eftir erfiðan fyrri hluta sumars,“ segir Helena. Elín Metta spilaði þó allan leikinn. Helena segir að aldrei hefði komið til greina að láta leikmennina spila fyrrnefnda leiki með 2. flokki hefði meistaraflokkur átt möguleika á titlinum. Staða liðsins bauð upp á þetta en áhætta fylgdi vissulega ákvörðuninni. „Svava tognaði meira að segja í einum leiknum með 2. flokki. Ég var ekki ánægð með það,“ segir Helena. Hún telur að breyta þurfi fyrirkomulagi 2. flokks á þann veg að eldri leikmenn megi líka spila með flokknum. „Þegar félög eins og Breiðablik, með allan þennan fjölda, eru í vandræðum með að ná í lið er þetta orðið athyglisvert.“ Janus Guðlaugsson, MEd-íþróttafræðingur og lektor við íþrótta- og heilsubraut Háskóla Íslands Maður á að fara vel með gullið sitt „Heilsan er það dýrmætasta sem hver einstaklingur á og því þurfa bæði þjálfarar, foreldrar og stjórnarmenn félaga að hafa heilsu og velferð hvers einstaklings í huga, bæði við skipulag á mótum og æfingum – og samspili þessara þátta,“ segir Janus Guðlaugsson, MEd-íþrótta- fræðingur og lektor við íþrótta- og heilsubraut Háskóla Íslands. Janus bendir á að tími til uppbyggingar á afkastagetu nái til 18-20 ára aldurs og haldi áfram í áratug. Góð þjálfun afreksmanna skili sér meðal annars í því að ein- staklingar séu farnir að leika svo lengi sem raun ber vitni. „Því þurfa langtímamarkmið að ráða för en ekki skammtímamarkmið einstakra leikja eða móta þegar börn og unglingar eiga í hlut. Knattspyrnuferill ungra leikmanna getur orðið að engu á nokkrum vikum með illa skipulögðu æfinga- og leikjaálagi.“ Janus bendir á hve vel sé staðið að þjálfun Anítu Hinriksdóttur, hlaupakonunnar stórefnilegu, hvað tíðni æfinga, æfingamagn og ákefð á æfingum snerti. „Hvað gerir maður með gullið sitt? Fer vel með það.“ Janus segir að æskilegt væri að fleiri þjálfarar og stjórnendur tækju sér slíkt til fyrirmyndar því álag á mörg efnileg börn og unglinga sé allt of mikið. Sérstak- lega hjá mörgum af efnilegustu knattspyrnukonum lands- ins þegar leikjaálagið er skoðað á heimasíðu KSÍ. „Eftirlit er lítið og allt traust lagt á þjálfara að sinna hlut- verkinu. Ábyrgðin er einnig á þeim sem skipuleggja mót og keppni á vegum sambanda og félaga.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.