Fréttablaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 18
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 18
Góð tannhirða á sjúkrahúsum á höfuðborgar-
svæðinu í Danmörku hefur dregið úr sýkingum
hjá sjúklingum. Í frétt á vef Jótlandspóstsins
segir að fjöldi lungnabólgutilfella á fjórum
gjörgæsludeildum hafi minnkað um helming
vegna átaksins í tannhirðu sjúklinganna.
Vitnað er í niðurstöður eldri rannsókna sem
sýndu að hættan á hjartavandamálum eykst um
70 prósent bursti maður ekki tennurnar tvisvar á
dag. Slæm munnhirða og blæðandi gómar geta
leitt til þess að bakteríur komist í blóðrásina.
SAMFÉLAG „Hópurinn sem leitar til
okkar vegna kannabisneyslu ung-
menna stækkar stöðugt og virðist
sá vandi vera orðinn töluvert stór,“
segir Guðbjörg Erlingsdóttir, ráð-
gjafi og starfandi framkvæmda-
stjóri hjá Vímulausri æsku - For-
eldrahúsinu.
Hún getur þess að í fyrra hafi
verið tekin 1.180 viðtöl við foreldra
og ungmenni í Foreldrahúsinu, sem
er í Borgartúni 6, og af þeim hafi um
900 verið vegna vímuefnavanda ung-
linga. „Önnur viðtöl eru sálfræðivið-
töl en fjöldi þeirra er einnig vegna
vímuefnavanda. Það sem af er þessu
ári virðist fjöldi þeirra sem leitar til
Foreldrahússins fara vaxandi eins
og undanfarin ár. Þörfin fyrir aðstoð
og úrræði eykst stöðugt.“
Að sögn Guðbjargar voru 97 for-
eldrar í fyrra í stuðningshópum
fyrir foreldra barna sem eru í vímu-
efnaneyslu eða hafa verið það. „Þá
var farið í gang með sérstakt sjálf-
styrkingarnámskeið fyrir foreldra
til að styrkja sjálfsmynd þeirra og
efla vitund þeirra í foreldrahlut-
verkinu, sem og færni til að skapa
og viðhalda heilbrigðum og nánum
tengslum við börnin sín. Fullbókað
hefur verið á þessi námskeið.“
Guðbjörg tekur það fram að þótt
að mestu hafi verið unnið með vímu-
efnavanda unglinga áður fyrr sé
þjónustan fjölbreyttari nú. Unnið sé
með ýmiss konar önnur vandamál,
t.d. einelti, félagslega erfiðleika og
hegðunarvanda. Fyrirlestrar hafa
verið víðsvegar um landið í sam-
starfi við foreldrafélög, skólayfir-
völd og sveitarfélög. „Við höfum
auk þess haldið sjálfsstyrkingar-
námskeið gegnum verkefnið Starfs-
kraft sem er fyrir ungmenni sem
eru hvorki í námi né vinnu og einn-
ig fyrir Kvennasmiðjuna. Námskeið
hafa jafnframt verið haldin í sam-
starfi við Ljósið fyrir börn og aðra
aðstandendur þeirra sem greinst
hafa með krabbamein. Það er því
mjög stór hópur sem nýtur þjónustu
okkar á einn eða annan hátt.“
Í fyrra sóttu nær fimm hundruð
börn og unglingar sjálfsstyrkingar-
námskeið á vegum Foreldrahúss í
Reykjavík og Hafnarfirði.
Samtímis því sem eftirspurn eftir
þjónustu eykst hefur reynst erfið-
ara að afla fjár til starfseminnar,
að sögn Guðbjargar. „Það hefur
þrengt að okkur eins og mörgum
félagasamtökum. Nægilegt fé er
því ekki tryggt og fjáröflun er stöð-
ugt vandamál. Þó hefur gengið að
halda úti grunnstarfsemi hingað til
eins og áður. Fé sem við fáum frá
ríkinu og Reykjavíkurborg til starf-
seminnar hefur verið skorið niður.
Við höfum því þurft að reiða okkur á
velvilja fyrirtækja og einstaklinga.“
ibs@frettabladid.is
Aðsókn í Foreldrahús eykst
Sífellt fleiri leita ráðgjafar og aðstoðar vegna kannabisneyslu ungmenna. Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir
foreldra og börn sem glíma við ýmis vandamál. Námskeið einnig haldin fyrir börn krabbameinsveikra foreldra
og aðra aðstandendur. Hundruð á námskeiðum í fyrra. Opinbert fé til starfseminnar hefur verið skorið niður.
Í FORELRAHÚSI „Þjónustan sem Foreldrahúsið veitir er fjölbreyttari nú en verið
hefur,“ segir Guðbjörg Erlingsdóttir, ráðgjafi og starfandi framkvæmdastjóri.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þunglyndi stafar ekki af miklu
vinnuálagi. Starfsmenn geta hins
vegar orðið þunglyndir ef yfir-
maður er ekki réttlátur og ef
vinnuumhverfið er slæmt. Þetta
eru niðurstöður danskrar rann-
sóknar sem nýlega hafa verið
birtar í þremur vísindaritum.
Vísindamennirnir sendu spurn-
ingar til 4.500 opinberra starfs-
manna á ýmsum vinnustöðum í
Árósum, eins og til dæmis í skól-
um, leikskólum, á sjúkrahúsum og
skrifstofum. Jafnframt voru tekin
viðtöl við fjölda þátttakenda til
þess að ganga úr skugga hvort þeir
væru með klínískt þunglyndi. Vís-
indamennirnir rannsökuðu einnig
magn streituhormónsins kortísóls
í munnvatni þátttakenda.
Þátttakendur voru meðal ann-
ars spurðir um vinnuálag og hvort
þeim fyndist komið fram við þá af
sanngirni og hvort framkoma yfir-
manna væri eins við alla á vinnu-
staðnum.
Rannsóknin leiddi í ljós að meiri
hætta er á þunglyndi njóti starfs-
menn ekki sanngirni, heldur
en ef vinnuálag er mikið. Fyrri
rannsóknir hafa leitt í ljós tengsl
milli vinnuálags, mikils magns
streituhormónsins kortísóls og
hættunnar á þróun þunglyndis.
Danska rannsóknin leiddi ekki í
ljós slíkt samhengi.
Niðurstöður rannsóknar á vinnustöðum í Danmörku:
Yfirmaðurinn getur
valdið þunglyndi
➜ Þunglyndi
Meiri hætta er á að
starfsmenn verði þunglyndir
ef yfirmaðurinn er
ósanngjarn, heldur en ef
vinnuálagið er mikið.
NORDICPHOT0S/GETTY
GRAUTUR Tryggja þarf fjölbreytni í vali
á graut. NORDICPHOTOS/GETTY
Til að tryggja fjölbreytni í vali á
ungbarnagraut á að velja graut
úr mismunandi korntegundum og
breyta á milli vörumerkja. Þetta
segir í ráðleggingum Landlæknis
og Matvælastofnunar til foreldra
ungra barna sem gefnar voru í
kjölfar sænskrar rannsóknar á
þungmálmum og steinefnum í
barnamat.
Ekki er þörf á að útiloka graut
úr hrísmjöli en einnig ætti að velja
graut úr t.d. maís, hirsi eða bók-
hveiti sem fyrsta graut. Eftir sex
mánaða aldur má byrja að gefa
graut úr höfrum, byggi, hveiti eða
rúgi.
Foreldrum er ráðlagt að gefa
ekki börnum undir sex ára aldri
drykki úr hrísgrjónum, t.d. hrís-
grjónadrykk, vegna arseninni-
halds þeirra.
Ráðleggingar Landlæknis:
Gefið börnum
mismunandi
drykki og grauta
Góð tannhirða dregur úr sýkingum
foreldrar voru í
fyrra í stuðnings-
hópum fyrir foreldra barna
sem eru í vímuefnaneyslu
eða hafa verið það.
97
„Það er langt síðan ég komst upp á
bragðið með að taka 1944 kjötsúpu
með mér til Grænlands. Þetta er
nefnilega alveg ekta íslensk kjötsúpa,
matarmikil og bragðgóð. Svona
vinnuferðir eru nokkuð krefjandi,
það er mikill búnaður sem fylgir
ljósmyndun og þess vegna er 1944
kjötsúpan bæði þægileg og hentug.
Síðan komst ég að því að grænlenskir
ferðafélagar mínir eru sólgnir í hana,
sem hefur kosti og galla: Við erum
rétt lagðir af stað þegar birgðirnar af
súpu eru búnar. Þá er bara að muna
að birgja sig betur upp næst.“
RAX
HEIT MÁLTÍÐ Á 5 MÍNÚTUM
Ómissandi
kjötsúpa
Hægeldun
tryggir að
vítamín, bragðefni
og næringarefni
halda sér.
Engin viðbætt
rotvarnarefni.
O
NN
O
N
NNN
O
N
O
N
NNN
NN
O
N
O
NNNNNNNN
T
O
NN
O
NNNNNNNN
O
N
O
N
ÍT
O
N
ÍT
O
NNNNNNNNN
F
ÍT
O
N
ÍT
O
N
O
NNNNNNNNNNNNNNNNNNNN
O
NNNNNNNNNNN
O
NN
O
NNNNNNNNN
ÍT
O
N
T
O
N
O
NNNN
T
O
NN
T
O
NNNNNNNNNNN
O
NN
O
NNN
O
T
OO
F
ÍT
O
ÍT
OO
ÍT
O
T
O
F
ÍT
OO
T
OOOOOOOOOOOOOOO
F
ÍT
OOOO
ÍT
OOOOOOO
F
ÍT
OOOOOO
ÍT
O
ÍT
O
F
ÍT
OOOO
ÍT
OOO
F
ÍT
O
F
ÍT
OOOOOO
F
ÍT
OOOOOOO
F
ÍT
OOOOOOOOOO
F
ÍT
O
F
ÍT
OOOOOOOO
ÍT
O
F
ÍT
O
F
ÍT
OOOOOOOO
F
ÍT
F
ÍT
F
TTÍTTÍTTTTT
F
ÍTÍTTÍTTTTTTTTÍTTTTT
F
ÍTTTT
F
ÍT
F
ÍTTTTTTTTTTTTT
F
ÍT
F
ÍTTTTTTTTÍTTTÍTT
F
Í
F
ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ
FFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFF
AÍAÍA
S
ÍA
S
ÍAÍA
A
S
ÍA
S
ÍA
S
ÍAA
S
ÍAÍA
/
S
ÍA
S
ÍA
S
ÍAAAA
/
S
ÍAÍAA
/
S
ÍAA
/
S
ÍA
S
ÍAA
S
ÍAA
S
ÍA
S
ÍA
S
ÍAAAAA
S
ÍA
/
S
ÍAAA
S
ÍA
S
ÍAA
S
ÍAAAA
/
S
ÍA
/
S
ÍA
S
ÍAÍAA
/
S
ÍAAAA
/
S
ÍAA
/
S
ÍAA
S
ÍAA
/
S
ÍAAAAAÍA
/
S
ÍAA
/
S
ÍA
S
ÍAA
S
AAAÍAAAAA
/
S
ÍAAA
/
S
ÍAÍAAAAAAA
S
ÍAÍAAA
/
S
ÍA
S
ÍA
/
S
ÍA
/
S
ÍA
/
S
ÍA
S
ÍAAÍAAAAAAAAA
S
Í
/
S
Í
S
Í
/
S
Í
S
ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ
/
S
Í
S
ÍÍ
S
Í
S
ÍÍÍÍ
/
S
ÍÍ
S
Í
S
Í
/
S
ÍÍ
S
ÍÍÍÍ
S
ÍÍÍÍ
S
ÍÍ
S
Í
S
ÍÍÍÍÍ
S
ÍÍ
SSSSS
/
S
/
S
/
SSSSSSSSSSS SSSSSSSSSSSSSSSSSS SSSSSSSSSSSSSSSSSS// ////////////////////////////////////////////////////////