Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.11.2013, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 07.11.2013, Qupperneq 18
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 18 Góð tannhirða á sjúkrahúsum á höfuðborgar- svæðinu í Danmörku hefur dregið úr sýkingum hjá sjúklingum. Í frétt á vef Jótlandspóstsins segir að fjöldi lungnabólgutilfella á fjórum gjörgæsludeildum hafi minnkað um helming vegna átaksins í tannhirðu sjúklinganna. Vitnað er í niðurstöður eldri rannsókna sem sýndu að hættan á hjartavandamálum eykst um 70 prósent bursti maður ekki tennurnar tvisvar á dag. Slæm munnhirða og blæðandi gómar geta leitt til þess að bakteríur komist í blóðrásina. SAMFÉLAG „Hópurinn sem leitar til okkar vegna kannabisneyslu ung- menna stækkar stöðugt og virðist sá vandi vera orðinn töluvert stór,“ segir Guðbjörg Erlingsdóttir, ráð- gjafi og starfandi framkvæmda- stjóri hjá Vímulausri æsku - For- eldrahúsinu. Hún getur þess að í fyrra hafi verið tekin 1.180 viðtöl við foreldra og ungmenni í Foreldrahúsinu, sem er í Borgartúni 6, og af þeim hafi um 900 verið vegna vímuefnavanda ung- linga. „Önnur viðtöl eru sálfræðivið- töl en fjöldi þeirra er einnig vegna vímuefnavanda. Það sem af er þessu ári virðist fjöldi þeirra sem leitar til Foreldrahússins fara vaxandi eins og undanfarin ár. Þörfin fyrir aðstoð og úrræði eykst stöðugt.“ Að sögn Guðbjargar voru 97 for- eldrar í fyrra í stuðningshópum fyrir foreldra barna sem eru í vímu- efnaneyslu eða hafa verið það. „Þá var farið í gang með sérstakt sjálf- styrkingarnámskeið fyrir foreldra til að styrkja sjálfsmynd þeirra og efla vitund þeirra í foreldrahlut- verkinu, sem og færni til að skapa og viðhalda heilbrigðum og nánum tengslum við börnin sín. Fullbókað hefur verið á þessi námskeið.“ Guðbjörg tekur það fram að þótt að mestu hafi verið unnið með vímu- efnavanda unglinga áður fyrr sé þjónustan fjölbreyttari nú. Unnið sé með ýmiss konar önnur vandamál, t.d. einelti, félagslega erfiðleika og hegðunarvanda. Fyrirlestrar hafa verið víðsvegar um landið í sam- starfi við foreldrafélög, skólayfir- völd og sveitarfélög. „Við höfum auk þess haldið sjálfsstyrkingar- námskeið gegnum verkefnið Starfs- kraft sem er fyrir ungmenni sem eru hvorki í námi né vinnu og einn- ig fyrir Kvennasmiðjuna. Námskeið hafa jafnframt verið haldin í sam- starfi við Ljósið fyrir börn og aðra aðstandendur þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Það er því mjög stór hópur sem nýtur þjónustu okkar á einn eða annan hátt.“ Í fyrra sóttu nær fimm hundruð börn og unglingar sjálfsstyrkingar- námskeið á vegum Foreldrahúss í Reykjavík og Hafnarfirði. Samtímis því sem eftirspurn eftir þjónustu eykst hefur reynst erfið- ara að afla fjár til starfseminnar, að sögn Guðbjargar. „Það hefur þrengt að okkur eins og mörgum félagasamtökum. Nægilegt fé er því ekki tryggt og fjáröflun er stöð- ugt vandamál. Þó hefur gengið að halda úti grunnstarfsemi hingað til eins og áður. Fé sem við fáum frá ríkinu og Reykjavíkurborg til starf- seminnar hefur verið skorið niður. Við höfum því þurft að reiða okkur á velvilja fyrirtækja og einstaklinga.“ ibs@frettabladid.is Aðsókn í Foreldrahús eykst Sífellt fleiri leita ráðgjafar og aðstoðar vegna kannabisneyslu ungmenna. Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir foreldra og börn sem glíma við ýmis vandamál. Námskeið einnig haldin fyrir börn krabbameinsveikra foreldra og aðra aðstandendur. Hundruð á námskeiðum í fyrra. Opinbert fé til starfseminnar hefur verið skorið niður. Í FORELRAHÚSI „Þjónustan sem Foreldrahúsið veitir er fjölbreyttari nú en verið hefur,“ segir Guðbjörg Erlingsdóttir, ráðgjafi og starfandi framkvæmdastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þunglyndi stafar ekki af miklu vinnuálagi. Starfsmenn geta hins vegar orðið þunglyndir ef yfir- maður er ekki réttlátur og ef vinnuumhverfið er slæmt. Þetta eru niðurstöður danskrar rann- sóknar sem nýlega hafa verið birtar í þremur vísindaritum. Vísindamennirnir sendu spurn- ingar til 4.500 opinberra starfs- manna á ýmsum vinnustöðum í Árósum, eins og til dæmis í skól- um, leikskólum, á sjúkrahúsum og skrifstofum. Jafnframt voru tekin viðtöl við fjölda þátttakenda til þess að ganga úr skugga hvort þeir væru með klínískt þunglyndi. Vís- indamennirnir rannsökuðu einnig magn streituhormónsins kortísóls í munnvatni þátttakenda. Þátttakendur voru meðal ann- ars spurðir um vinnuálag og hvort þeim fyndist komið fram við þá af sanngirni og hvort framkoma yfir- manna væri eins við alla á vinnu- staðnum. Rannsóknin leiddi í ljós að meiri hætta er á þunglyndi njóti starfs- menn ekki sanngirni, heldur en ef vinnuálag er mikið. Fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós tengsl milli vinnuálags, mikils magns streituhormónsins kortísóls og hættunnar á þróun þunglyndis. Danska rannsóknin leiddi ekki í ljós slíkt samhengi. Niðurstöður rannsóknar á vinnustöðum í Danmörku: Yfirmaðurinn getur valdið þunglyndi ➜ Þunglyndi Meiri hætta er á að starfsmenn verði þunglyndir ef yfirmaðurinn er ósanngjarn, heldur en ef vinnuálagið er mikið. NORDICPHOT0S/GETTY GRAUTUR Tryggja þarf fjölbreytni í vali á graut. NORDICPHOTOS/GETTY Til að tryggja fjölbreytni í vali á ungbarnagraut á að velja graut úr mismunandi korntegundum og breyta á milli vörumerkja. Þetta segir í ráðleggingum Landlæknis og Matvælastofnunar til foreldra ungra barna sem gefnar voru í kjölfar sænskrar rannsóknar á þungmálmum og steinefnum í barnamat. Ekki er þörf á að útiloka graut úr hrísmjöli en einnig ætti að velja graut úr t.d. maís, hirsi eða bók- hveiti sem fyrsta graut. Eftir sex mánaða aldur má byrja að gefa graut úr höfrum, byggi, hveiti eða rúgi. Foreldrum er ráðlagt að gefa ekki börnum undir sex ára aldri drykki úr hrísgrjónum, t.d. hrís- grjónadrykk, vegna arseninni- halds þeirra. Ráðleggingar Landlæknis: Gefið börnum mismunandi drykki og grauta Góð tannhirða dregur úr sýkingum foreldrar voru í fyrra í stuðnings- hópum fyrir foreldra barna sem eru í vímuefnaneyslu eða hafa verið það. 97 „Það er langt síðan ég komst upp á bragðið með að taka 1944 kjötsúpu með mér til Grænlands. Þetta er nefnilega alveg ekta íslensk kjötsúpa, matarmikil og bragðgóð. Svona vinnuferðir eru nokkuð krefjandi, það er mikill búnaður sem fylgir ljósmyndun og þess vegna er 1944 kjötsúpan bæði þægileg og hentug. Síðan komst ég að því að grænlenskir ferðafélagar mínir eru sólgnir í hana, sem hefur kosti og galla: Við erum rétt lagðir af stað þegar birgðirnar af súpu eru búnar. Þá er bara að muna að birgja sig betur upp næst.“ RAX HEIT MÁLTÍÐ Á 5 MÍNÚTUM Ómissandi kjötsúpa Hægeldun tryggir að vítamín, bragðefni og næringarefni halda sér. Engin viðbætt rotvarnarefni. O NN O N NNN O N O N NNN NN O N O NNNNNNNN T O NN O NNNNNNNN O N O N ÍT O N ÍT O NNNNNNNNN F ÍT O N ÍT O N O NNNNNNNNNNNNNNNNNNNN O NNNNNNNNNNN O NN O NNNNNNNNN ÍT O N T O N O NNNN T O NN T O NNNNNNNNNNN O NN O NNN O T OO F ÍT O ÍT OO ÍT O T O F ÍT OO T OOOOOOOOOOOOOOO F ÍT OOOO ÍT OOOOOOO F ÍT OOOOOO ÍT O ÍT O F ÍT OOOO ÍT OOO F ÍT O F ÍT OOOOOO F ÍT OOOOOOO F ÍT OOOOOOOOOO F ÍT O F ÍT OOOOOOOO ÍT O F ÍT O F ÍT OOOOOOOO F ÍT F ÍT F TTÍTTÍTTTTT F ÍTÍTTÍTTTTTTTTÍTTTTT F ÍTTTT F ÍT F ÍTTTTTTTTTTTTT F ÍT F ÍTTTTTTTTÍTTTÍTT F Í F ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ FFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFFF AÍAÍA S ÍA S ÍAÍA A S ÍA S ÍA S ÍAA S ÍAÍA / S ÍA S ÍA S ÍAAAA / S ÍAÍAA / S ÍAA / S ÍA S ÍAA S ÍAA S ÍA S ÍA S ÍAAAAA S ÍA / S ÍAAA S ÍA S ÍAA S ÍAAAA / S ÍA / S ÍA S ÍAÍAA / S ÍAAAA / S ÍAA / S ÍAA S ÍAA / S ÍAAAAAÍA / S ÍAA / S ÍA S ÍAA S AAAÍAAAAA / S ÍAAA / S ÍAÍAAAAAAA S ÍAÍAAA / S ÍA S ÍA / S ÍA / S ÍA / S ÍA S ÍAAÍAAAAAAAAA S Í / S Í S Í / S Í S ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ / S Í S ÍÍ S Í S ÍÍÍÍ / S ÍÍ S Í S Í / S ÍÍ S ÍÍÍÍ S ÍÍÍÍ S ÍÍ S Í S ÍÍÍÍÍ S ÍÍ SSSSS / S / S / SSSSSSSSSSS SSSSSSSSSSSSSSSSSS SSSSSSSSSSSSSSSSSS// ////////////////////////////////////////////////////////
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.