Fréttablaðið - 07.11.2013, Qupperneq 6
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hver er sóknarprestur í Langholts-
kirkju?
2. Hvaða hátíðahöldum tekur Margrét
Danadrottning þátt í hér á landi þegar
hún kemur hingað í heimsókn í næstu
viku?
3. Hve hátt hlutfall af viðmælendum í
íslenskum fréttamiðlum eru karlar?
SVÖR:
1. Guðbjörg Jóhannesdóttir. 2. Hátíðahöld-
um vegna 350 ára fæðingarafmælis Árna
Magnússonar handritasafnara. 3. 70 prósent.
LÖGREGLUMÁL Þrír starfsmenn
kampavínsklúbbsins Strawberries
eru lausir úr haldi en eigandinn
situr enn inni að sögn Karls Stein-
ars Valssonar, yfirlögregluþjóns á
höfuðborgarsvæðinu.
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir eig-
andanum rennur út á miðvikudag.
Lögregla lét til skarar skríða á
Strawberries í lok október vegna
gruns um að á staðnum færu fram
vændiskaup og milliganga um
vændi.
Þegar lögreglu bar að garði voru
nokkrir gestir á staðnum og hand-
tók hún fáeina karla vegna gruns
um vændiskaup. Þeim var sleppt
að loknum yfirheyrslum.
Í kjölfar lögregluaðgerðarinnar
voru fimm starfsmenn úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald til áttunda
nóvember auk eigandans en
tveimur var fljótlega sleppt.
Strawberries var í kjölfarið
lokað um óákveðinn tíma í þágu
rannsóknarinnar og verður veit-
ingaleyfi klúbbsins skoðað í ljósi
málsins. - jme
Starfsmenn kampavínsklúbbsins Strawberries lausir úr gæsluvarðhaldi
Eigandinn situr enn í fangelsi
DÓMSMÁL Eiginkona manns, sem
hafði ítrekað reynt að skilja við
hana, telst samt lögerfingi hans
samkvæmt úrskurði Hæstaréttar.
Maðurinn lést í október 2012 en
hafði óskað eftir skilnaði að borði
og sæng í júlí sama ár. Konan
mætti aftur á móti aldrei í viðtal
til sýslumanns þrátt fyrir ítrek-
aðar boðanir. Var krafa konunn-
ar um opinber skipti á dánarbúi
mannsins tekin til greina og hún
taldist því lögerfingi mannsins.
- fbj
Lést í miðju skilnaðarferli:
Erfir mann sem
vildi skilnað
LOKAÐ Strawberries var lokað vegna
gruns um að þar færu fram vændiskaup
og milliganga um vændi.
DÓMSMÁL Halldór Bjarkar Lúð-
vígsson, fyrrverandi viðskipta-
stjóri á útlánasviði Kaupþings,
sagðist fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær hafa talið að fimmtíu
milljóna dala lán sem Al Thani
fékk í gegnum Kaupþing í Lúxem-
borg hafi verið eins konar mútu-
greiðsla fyrir að ljá nafn sitt við
kaup á 5,01% hlut í Kaupþingi.
„Það var engin
ábyrgð á fimm-
tíu milljónum
dollara. Hann
átti að fá pen-
inginn til baka.
Ég held að það
hafi aldrei komið
króna frá sjeikn-
um,“ sagði Hall-
dór Bjarkar í
hljóðrituðu símtali við Lilju Stein-
þórsdóttur, fyrrverandi innri end-
urskoðanda Kaupþings, sem sak-
sóknari í málinu spilaði.
Varðandi það að Al Thani hafi
átt að fá hagnaðinn greiddan fyrir-
fram, sem saksóknarinn telur að
50 milljóna dala greiðslan hafi
verið, sagði Halldór Bjarkar: „Það
má kalla það mútur, þegar ég
horfði á strúktúrinn eftir á. Þetta
voru mínar getgátur en mér þótti
sérkennilegt að hann fengi greitt.“
Saksóknari spurði hvort reynt
hafi verið að fela þátt Ólafs Ólafs-
sonar í málinu og sagðist Halldór
telja að svo hefði verið. „Þetta voru
Maggi [Magnús Guðmundsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings
í Lúxemborg] og Hreiðar [Guð-
mundsson, fyrrverandi forstjóri
Kaupþings] sem voru að semja allt
saman.“
Saksóknari spurði Halldór
Bjarkar hver hefði samþykkt
að Al Thani fengi lánið. Svaraði
hann því til að Hreiðar Már hefði
gert það. „Hreiðar Már gaf mér
þau fyrirmæli að greiða þetta út
strax. Hann sagði að ég þyrfti ekki
að hafa áhyggjur af samþykktum.“
Hreiðar Már er ósammála því að
þetta samtal hafi átt sér stað og
verjandi hans benti á að engin
gögn væru til um samskipti Hall-
dórs og Hreiðars Más.
Verjandinn reyndi að rýra trú-
verðugleika Halldórs með því að
sýna frétt frá breska blaðinu The
Guardian sem birtist þegar Hall-
dór starfaði hjá slitastjórn Kaup-
þings. Í greininni stóð að starf
hans hjá stjórninni væri vand-
ræðalegt vegna aðildar hans að Al
Thani-málinu. Eftir rannsókn sér-
staks saksóknara var Halldór ekki
lengur í réttarstöðu sakbornings.
Hann er núna framkvæmdastjóri
Arion banka. Verjandi spurði hvort
hann hefði fengið það starf ef hann
hefði haft réttarstöðu sakbornings.
„Mér þykir það ólíklegt,“ svaraði
Halldór. freyr@frettabladid.is
Getgátur um mútugreiðslu
Þriðji dagur í Al Thani-réttarhöldunum fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Halldór Bjarkar Lúðvígsson,
eitt af lykilvitnum sérstaks saksóknara, svaraði spurningum varðandi starf sitt hjá Kaupþingi.
➜ Fyrsta vitnið í gærmorgun var Lara E. Schweiger sem starfaði sem
lögmaður í Lúxemborg. Saksóknari spurði hana á hvaða forsendum 50
milljóna dala lánið sem Al Thani fékk hafði verið veitt. „Ég vissi ekki fyrst
hverjar ástæður lánveitingarinnar voru. Svo var mér sagt að grundvöllur-
inn fyrir láninu væri fyrirframgreiðsla hagnaðar lánshæfistengds skulda-
bréfs,“ sagði hún. Spurð hvort hún hafi verið undrandi á þessu játaði hún
því. „Vegna þess að okkur virtist ekkert vit vera í þessu.“
➜ Vörubílstjórinn Sturla Jónsson, sem var áberandi í fjölmiðlum í
kringum hrunið, gekk inn í réttarsalinn skömmu áður en skýrslutökunni
yfir Halldóri Bjarkari lauk um hádegisbilið. Hann fékk sér sæti á fremsta
bekk og hlýddi með athygli á það sem fram fór.
➜ Gianni De Bortoli, fyrrverandi starfsmaður á lagasviði hjá Kaupþingi
í Lúxemborg, bar vitni í gegnum síma. Dómtúlkurinn Torfi Tulinius sá til
þess að allar upplýsingar kæmust til skila á milli Bortoli annars vegar og
hins vegar dómara, saksóknara og verjenda.
Dagur 3 í Al Thani-málinu
HALLDÓR
BJARKAR
HREIÐAR OG HÖRÐUR Hörður Felix Harðarson er verjandi Hreiðars Más Sigurðssonar. Hann spurði Halldór Bjarkar hvort
hann hefði fengið framkvæmdastjórastöðu hjá Arion ef hann hefði verið sakborningur í málinu. FRÉTTABLSÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Ragnhildur Geirsdóttir,
þáverandi forstjóri FL Group,
beitti þrýstingi svo að tæplega
þrír milljarðar, sem millifærðir
voru af reikningum félagsins,
yrðu endurgreiddur. Þetta kemur
fram í greinargerð með ákæru
gegn Hannesi Smárasyni sem
Fréttablaðið hefur undir höndum.
Hannes Smárason er sam-
kvæmt ákærunni sakaður um
fjárdrátt fyrir að hafa látið milli-
færa 46,5 milljónir bandaríkja-
dala af reikningi FL Group hf. inn
á annan reikning félagsins sem
hann hafði látið stofna nokkrum
dögum fyrr í Kaupþingi í Luxem-
borg.
Fjármunirnir voru síðan færðir
yfir á reikning Fons eignarhalds-
félags hf. en þá ráðstöfun telur sér-
stakur saksóknari ekki hafa verið
í þágu FL Group.
Þá hafi hún verið
framkvæmd án
vitundar, og þar
með samþykkis,
þáverandi for-
stjóra, fjármála-
stjóra og annarra
lykilstjórnenda
FL Group.
Í g r e i n a r -
gerð saksóknara með ákærunni
kemur fram að Hannes hafi gefið
Sveinbirni Indriðasyni fjármála-
stjóra og Val Stefáni Ásgeirssyni,
forstöðumanni fjárreiðudeildar,
fyrirmæli um að millifæra fjár-
munina inn á reikninginn í Lúx-
emborg, sem þeir gerðu. Í grein-
argerðinni segir einnig að Hannes
hafi haldið millifærslunni leyndri
fyrir stjórnendum og stjórn FL
Group en aðrir en hann hafi ekki
haft aðgang að reikningnum í Lúx-
emborg.
Þá kemur einnig fram að fjár-
munirnir hafi ekki skilað sér
aftur á reikning FL Group frá
Fons fyrr en rúmum tveimur mán-
uðum síðar, eftir þrýsting, meðal
annars frá þáverandi forstjóra
félagsins, Ragnhildi Geirsdóttur.
Fyrir þann tíma var millifærslan
ekki færð í bókhald félagsins.
Endurgreiðslan kom frá Fons
með láni frá Kaupþingi í Lúxem-
borg og gengust Hannes og Jón
Ásgeir Jóhannesson í persónuleg-
ar ábyrgðir fyrir endurgreiðslu
lánsfjárhæðarinnar. - fbj
Hannes og Jón Ásgeir gengu í persónulegar ábyrgðir fyrir milljarða endurgreiðslu til FL Group:
Beitti þrýstingi til að fá endurgreitt
Hannes Smárason hefur ákveðið að víkja til hliðar úr forstjórastóli fyrir-
tækisins Nextcode um stundarsakir. Hann segist ekki vilja að málefni hans
varpi skugga á fyrirtækið. „Þess utan vil ég ekki að sá tími, sem ég kann að
þurfa á að halda til þess að verja mig gegn þessari undurfurðulegu ákæru,
dragist frá þeim tíma sem notaður er í að hlúa að fyrirtækinu,“ segir
Hannes í yfirlýsingu sinni. Daglegum rekstri Nextcode, sem er nýstofnað
systurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, verður sinnt af dr. Jeffrey Gulcher
og nýráðnum framkvæmdastjóra Nextcode á Íslandi, Birni Zoëga, fyrr-
verandi forstjóra Landspítalans.
➜ Björn leysir Hannes af hjá Nextcode
HANNES
SMÁRASON
DÓMSMÁL Bergur Már Ágústsson
játaði fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær tvær líkamsárásir
sem gerðar voru 4. janúar 2012.
Báðar árásirnar eru taldar sér-
staklega hættulegar en í ákæru
segir að Bergur Már hafi slegið
karlmann í höfuðið með kylfu
og slegið kylfu í rúðu þannig að
glerbrot höfnuðu í andliti og auga
annars karlmanns.
Í kjölfar árásanna var ráðist
á Berg en fyrir þá árás hlutu tíu
menn dóma. Þyngstu dómana
hlutu Annþór Kristján Karlsson
og Börkur Birgisson, sjö og sex
ára fangelsi. - ebg
Kveikjan að fleiri árásum:
Bergur játaði
líkamsárásir
BERGUR MÁR ÁGÚSTSSON Ráðist var
á Berg í kjölfar árásanna og fengu tíu
menn dóma fyrir þá árás. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
SAMFÉLAG Færri börn virðast
senda ljót skilaboð eða myndir í
gegnum farsíma en áður.
Í könnun sem SAFT stóð fyrir
hér á landi kemur fram að 3 pró-
sent íslenskra barna og unglinga
sögðust hafa sent skilaboð, texta
eða mynd í gegnum farsíma sem
voru andstyggileg í garð annars
einstaklings. Þegar spurt var
sömu spurningar árið 2009 svör-
uðu 8,7 prósent því játandi. - fbj
Ný könnun SAFT:
Færri senda
ljót skilaboð
SMÁSKILABOÐ Færri börn senda and-
styggileg skilaboð í dag en árið 2009
FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM GUNNARSSON
STÉTTARFÉLAGSMÁL
Formannskosningar KÍ
Kosið verður í embætti formanns
Kennarasambands Íslands í almennri
kosningu félagsmanna fyrir lok nóvem-
bermánaðar. Núverandi formaður,
Þórður Árni Hjaltested, býður sig fram
ásamt Einari Þóri Karlssyni grunnskóla-
kennara.
VEISTU SVARIÐ?