Fréttablaðið - 07.11.2013, Síða 8
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 31.10.13 - 06.11.13
1 2Skuggasund Arnaldur Indriðason Læknirinn í eldhúsinu Ragnar Freyr Ingvarsson
5 Árleysi alda Bjarki Karlsson 6 AndköfRagnar Jónasson
7 Maður sem heitir Ove Fredrik Backman 8 Sæmd Guðmundur Andri Throsson
10 Vísindabók VillaVilhelm Anton Jónson9 Iceland small world Sigurgeir Sigurjónsson
4 Grimmd Stefán Máni3 HlustaðJón Óttar Ólafsson
HEILBRIGÐISMÁL Að meðaltali
hafa 47 sjúklingar beðið á Land-
spítalanum á hverjum degi eftir
að hjúkrunarrými losnaði á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta kemur
fram í svari heilbrigðisráðherra
við fyrir spurn Bjarkar Vilhelms-
dóttur, þingmanns Samfylkingar-
innar, á Alþingi.
Þar segir ennfremur að sjúk-
lingar bíði að meðaltali 50 daga
eftir hjúkrunarrými.
Alls voru 124 aldraðir á bið-
lista eftir hjúkrunarrými á
höfuðborgar svæðinu í lok sept-
ember. Að meðaltali biðu 100 eftir
rými á síðasta ári. Biðlistinn hefur
því lengst um 20 prósent á einu ári.
Til viðbótar við hjúkrunarrými
sem tekin hafa verið í notkun í ár
er gert ráð fyrir því að rýmum
fjölgi um 76 á árinu 2015. Nákvæm
tímasetning liggur ekki fyrir.
Miðað við mannfjöldaspá og
áætlaða fjölgun hjúkrunarrýma
er búist við að biðlistinn styttist í
78 á árinu 2015 en lengist síðan í
270 árið 2020. - bj
Alls bíða 124 aldraðir eftir að komast í hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu:
47 bíða á spítala á hverjum degi
FRAKKLAND Arabíska fréttastöðin
Al Jazeera hefur birt skýrslu
svissneskra vísindamanna, sem
hafa komist að því að eitrað hafi
verið fyrir Jasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna.
Arafat lést í október árið 2004 í
Ramallah á Vesturbakkanum, þar
sem hann var að mestu einangr-
aður í bústað sínum í tvö ár vegna
umsáturs Ísraelshers.
Hann var jarðaður í París, en í
nóvember á síðasta ári var lík hans
grafið upp vegna gruns um eitrun.
Rannsóknir hafa nú staðfest að
geislavirka efnið pólon fannst í
miklu magni í líkamanum. Nánar
tiltekið er magnið átjánfalt það
sem eðlilegt má teljast, að því
er Al Jazeera hefur eftir Dave
Barcley, breskum vísindamanni.
„Jasser Arafat lést úr pólon-
eitrun,” segir Barcley.
Suha Arafat, ekkja Jassers, fékk
skýrsluna afhenta á þriðjudag, en
það var hún sem fór upphaflega
fram á að lík hans yrði grafið upp
og rannsókn gerð. - gb
Skýrsla vísindamanna staðfestir að eitrað var fyrir Jasser Arafat:
Arafat lést úr póloneitrun
BJÖRGUN Flutningaskipið Fern-
anda var dregið til hafnar á
Grundartanga í Hvalfirði í gær,
réttri viku eftir að eldur kom upp
í því suður af Vestmannaeyjum.
Slökkvistarf hófst strax og
skipverjum var bjargað um borð
í þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Varðskipið Þór tók Fernöndu í
tog og dró inn í Hafnarfjarðar-
höfn.
Skömmu eftir að þangað var
komið blossaði eldur upp á ný.
Þar sem mikið af olíu var enn í
tönkum skipsins var það dregið
frá landi, þangað sem minnst
hætta var talin á umhverfisslysi.
Eftir langvinnt slökkvistarf var
ályktað á sunnudag að eldur í skip-
inu væri kulnaður. Eftir að gengið
hafði verið úr skugga um það var
skipið dregið í átt að landi og loks
norður í Hvalfjörð þar sem það
var bundið við bryggju á Grundar-
tanga síðdegis í gær.
Hrafnhildur Stefánsdóttir,
upplýsingafulltrúi Landhelgis-
gæslunnar, segir í samtali við
Fréttablaðið að nú sé afskiptum
gæslunnar af skipinu lokið og lög-
regla og slökkvilið muni nú ljúka
rannsókn í skipinu.
Aðspurð segir Hrafnhildur að
gæslan hafi ekki verið í samskipt-
um við eigendur skipsins og óvíst
sé hvernig þau mál muni þróast á
næstu dögum.
Þetta er ein allra umfangsmesta
aðgerð varðskipa Landhelgisgæsl-
unnar síðustu ár, að sögn Hrafn-
hildar, og þarna reyndi í fyrsta
sinn að fullu á getu varðskipsins
Þórs til slökkvistarfs á hafi úti.
Búnaður og vélar skipsins hafi
reynst afar vel. thorgils@frettabladid.is
Fernanda loksins
komin að bryggju
Viku eftir að eldur kom upp í flutningaskipinu Fernöndu úti fyrir Vestmanna-
eyjum er hún komin að bryggju við Grundartanga. Enn er óljóst með framhaldið.
Viðræður við eigendur og tryggingafélag skipsins eiga eftir að fara fram.
Ferðir Fernöndu og varðskipsins Þórs
2. -3. nóvember
50-70 sjómílur
vestur af
Garðskaga
Eldur logar í
skipinu. Þór heldur
áfram að sprauta
sjó og kæla skipið.
30. október Staðsetning
20 sjómílur suður af Eyjum
Eldur kemur upp í Fernöndu eftir hádegi
miðvikudaginn 30. nóvember, Þyrlan Gná
bjargar áhöfninni. Lóðsinn í Vestmannaeyjum
sprautar á skipið. Varðskipið Þór kemur á vett-
vang, sprautar á skipið og tekur það í tog.
1. nóvember -
Hafnarfjarðarhöfn
Eldur kviknar að nýju
í skipinu eftir að
komið var til hafnar.
Þór tekur skipið aftur
í tog.
3. nóvember
Leitað vars
við Hafnarleir
síðdegis
Áhöfn varðskipsins
Þórs og slökkviliðs-
menn frá Slökkvi-
liði höfuðborgar-
svæðisins telja að
eldur sé slokknaður
um borð í skipinu.
Í ljósi versnandi
veðurs á staðnum
og slæmrar
veðurspár er tekin
ákvörðun um að
draga skipið í var.
4. nóvember
Keilisnes, út
af Straumsvík,
síðdegis
Leitað vars fyrir
vindum. Unnið áfram
að slökkvistörfum.
6. nóvember Farið með skipið
að Grundartanga
Fernanda dregin að höfn við Grundartanga.
Eigendur skipsins og tryggingafélag munu
taka ákvörðun um framhaldið.
1
2
3
4
5
6
JASSER ARAFAT Leiðtogi Palestínumanna
blaðar í pappírum á skrifstofu sinni í
Ramallah árið 2002, þar sem hann var að
mestu einangraður í tvö ár vegna umsáturs
Ísraelshers. NORDICPHOTOS/AFP
LÖNG BIÐ Aldraðir sjúklingar bíða að
meðaltali í 50 daga á Landspítalanum
eftir hjúkrunarrými. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM