Fréttablaðið - 07.11.2013, Side 12

Fréttablaðið - 07.11.2013, Side 12
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 ÁSTRALÍA, AP Ástralinn David Hicks, sem varð fyrstur Guantanamo-fanganna til að fá á sig dómsúrskurð, hefur nú áfrýjað dómn- um. Ástralinn David Hicks varð fyrstur fang- anna í Guantanamo til þess hljóta dóm. Hann hefur nú áfrýjað þeim dómi. Hicks sótti á sínum tíma þjálfunarbúðir Al-Kaída í Afganistan. Hann var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir stríðsglæpi, eftir að hann hafði í mars 2007 játað á sig brot gegn því að verða látinn laus eftir stutta afplán- un. Hann hafði þá setið fimm ár í fangabúðun- um og lögmaður hans segir ekkert að marka játninguna. „Hann hafði bókstaflega ekkert val undir þessum kringumstæðum,“ hefur bandaríska fréttastofan AP eftir Wells Dixon, lögmanni hjá bandarísku mannréttindasamtökunum Center for Constitutional Rights í New York. Í áfrýjuninni er vísað til máls annars Guantanamo-fanga, Salims Hamdan, sem í október árið 2012 var sýknaður í áfrýjunar- rétti í Washingtonborg. - gb Ástralski Guantanamo-fanginn David Hicks leitar til áfrýjunardómstóls í Bandaríkjunum: Reynir að fá dómi fyrir stríðsglæpi hnekkt SVÍÞJÓÐ Sænska öryggislögreglan vill fá sjálfkrafa upplýsingar úr farsímum einstaklinga vegna rann- sókna á grófum afbrotum. Nú meta fjarskiptafyrirtæki hvert tilfelli áður en upplýsingar eru gefnar. Slíkt getur orðið dýrt og tímafrekt. Sænska öryggislögreglan vill að fjarskiptafyrirtækin taki upp nýtt kerfi þannig að lögreglan fái beint samband við gagnabanka með upplýsingum úr farsímum. Fyrir- tækið Tele2 neitar og önnur fyrir- tæki hika, að því er kemur fram í sænskum fjölmiðlum. - ibs Krafa öryggislögreglu: Vill aðgengi að farsímanotkun RÚSSLAND Í hálfan mánuð vissi fjöl- skylda Nadesjdu Tolokonnikovu ekkert hvar hún væri niðurkomin. Í gær fréttist svo af því að hún væri líklega komin í aðrar fangabúðir, alla leið til Síberíu. Tolokonnikova var handtekin á síðasta ári eftir að hún og félagar hennar í kvennapönksveitinni Pussy Riot höfðu efnt til mótmæla gegn Vladimír Pútín forseta í kirkju í Moskvu. Hún fór í hungurverkfall í fangabúðunum í haust til að mót- mæla aðstæðum þar, miklu vinnu- álagi og hörku fangavarða. Það var eiginmaður hennar, Petja Versilov, sem skýrði frá því á Twitter-síðu sinni að hún væri á leiðinni í fanga- búðir númer 50 í Nishní Ingash í héraðinu Krasnojarsk, en þær búðir eru í um þrjú þúsund kílómetra fjarlægð frá Moskvu, þar sem ætt- ingjar hennar og vinir búa. Versilov segist sannfærður um að með þessu sé verið að refsa henni fyrir mótmælasveltið og koma henni sem lengst frá kastljósi fjöl- miðla. - gb Fjölskylda Tolokonnikovu vissi ekkert um hana í hálfan mánuð: Komin í fjarlægari fangabúðir ÍSRAEL, AP Avigdor Lieberman, fyrrverandi utanríkisráðherra Ísraels, var í gær sýknaður af ákærum um spillingu. Verði dómnum ekki áfrýjað getur Lieberman tekið aftur við ráð- herraembættinu. Þetta er í fyrsta sinn sem dómsmál hefur verið höfðað á hendur Lieberman fyrir spill- ingu, þótt ásakanir um slíkt hafi oft verið viðraðar opinberlega. Lieberman hefur stundum verið pólitískur andstæðingur Benjamíns Netanjahús en þeir eru nú samherjar. Netanjahú hefur beðið með að skipa nýjan mann í embætti utan- ríkisráðherra, og sagst ætla að ganga frá því þegar dómur væri fallinn í máli Liebermans. - gb Lieberman rís upp aftur: Sýknaður af spillingarákæru DAVID HICKS Var sleppt úr haldi stuttu eftir að hann játaði á sig brot. NORDICPHOTOS/AFP NADESJDA TOLOKONNIKOVA Við réttarhöld í Moskvu fyrr á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BANDARÍKIN Demókratinn Bill de Blasio segist ætla að leggja megin- áherslu á að draga úr ójöfnuði í New York, nú þegar hann tekur við af auðkýfingnum Michael Bloom- berg sem borgarstjóri. Hann vann yfirburðasigur í borgarstjórakosningum á þriðju- dag, hlaut 73 prósent atkvæða, en mótherjinn Joe Lhota fékk innan við fjórðung atkvæða. Bloomberg hefur stjórnað borg- inni í tólf ár og verið gagnrýndur fyrir að sinna viðskiptalífinu og auð- ugum borgarbúum betur en hinum, sem standa ekki eins vel, enda sjálf- ur sprottinn úr heimi viðskipta sem færðu honum mikil auðæfi. Eitt meginkosningaloforð de Blasios var að leggja sérstakan skatt á auðuga borgarbúa, og yrðu tekjurnar notaðar til að fjármagna leikskóla. De Blasio tekur við um ára- mótin, og þá tekur demókrati við stjórnartaumum borgarinnar í fyrsta sinn síðan repúblikaninn Rudy Giuliani tók við árið 1994. Úrslitin voru tvísýnni í ríkis- stjórakosningum í Virginíu, þar sem demókratinn Terry McAuliffe rétt náði að sigrast á Ken Cucc- inelli, íhaldssömum repúblikana sem hefur haft stuðning teboðs- hreyfingarinnar. McAuliffe hafði verið spáð öruggum sigri en Gucc- inelli skýrði útkomuna sem svo að dyggur stuðningur McAuliffes við heilbrigðislöggjöf Baracks Obama forseta hefði fælt einhverja kjós- endur frá honum. Að minnsta kosti virðist vinátta McAuliffe og Obama ekki hafa hjálpað McAu- liffe í þessum kosningum. Afgerandi persónusigur repú- blikanans Chris Christie í ríkis- stjórakosningum í New Jersey bendir hins vegar til þess að teboðshreyfingin yst til hægri í Repúblikanaflokknum geti engan veginn reiknað með miklu fylgi á næstu árum. Gott gengi Christies í þessu gamalgróna demókrataríki hefur vakið vonir hófsamari afla innan Repúblikanaflokksins um að áhrif teboðshreyfingarinnar séu að dvína. Christie hefur þegar verið orð- aður við forsetaframboð og tekur undir slíkar vangaveltur: „Ef við getum gert þetta í Trenton í New Jersey, þá ætti fólkið í Washington kannski að kveikja á sjónvarps- tækjunum sínum og skoða hvernig þetta er gert,“ sagði hann á þriðju- dagskvöldið, þegar úrslitin voru orðin ljós. gudsteinn@frettabladid.is Nýr borgarstjóri í New York hyggst skattleggja ríka íbúa Úrslit í ríkis- og borgarstjórakosningum í Bandaríkjunum sýna umrót í bandarískum stjórnmálum. Bill de Blas- io tekur við af Michael Bloomberg í New York. Terry McAuliffe vann teboðsmanninn Ken Cuccinelli í Virginíu. BILL DE BLASIO FAGNAR SIGRI Næsti borgarstjóri New York faðmar son sinn og dóttur eftir að úrslit voru orðin ljós á þriðju- dagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NAUMUR SIGUR Í VIRGINÍU Terry McAuliffe, fyrir miðri mynd, fagnar sigri ásamt öldungadeildarþingmönnum Demókrataflokksins í Virginíu, þeim Mark Warner og Tim Kaine. FRÉTTABLAÐIÐ/AP AVIGDOR LIEBERMAN Brosmildur að loknum sýknudómi í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ➜ Hicks sótti á sínum tíma þjálfunar- búðir Al-Kaída í Afganistan. Hann var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir stríðsglæpi. ➜ Bill de Blasio verður fyrsti demókratinn í borgarstjórastólnum í New York síðan 1994. REYKJAVÍKURBORG Meirihluti Besta flokksins og Samfylkingar í borgarstjórn ásamt borgarfull- trúa VG vísaði á þriðjudag frá til- lögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks um að óska eftir viðræðum við ríkið um framtíðarfyrirkomulag heilsugæslunnar í Reykjavík. Leggja átti áherslu á fjöl- breytni í rekstrarformum og að tryggja greiðan aðgang almenn- ings að heimilislækningum. Meirihluti borgarfulltrúa sagði að samþykkt hafi verið 2010 að ræða við ríkisvaldið um yfir- töku á heilsugæslunni. Nú sé beðið mats á því hvernig til hafi tekist við yfirtöku á þjónustu við fatlaða. - gar Fyrirkomulag heilsugæslu: Beðið eftir mati á yfirtöku ORKUMÁL Borgarstjórn sam- þykkti í fyrradag fyrir sitt leyti ósk stjórnar Orkuveitu Reykja- víkur um að Hellisheiðarvirkjun verði tengd við borholur í Hvera- hlíð. Borgarfulltrúi Vinstri grænna lagði til að málinu yrði frestað í eitt ár „til að kanna allar hliðar þess og aðra möguleika í þaula“. Allir aðrir sögðu að sá kostur sem Orkuveitan valdi væri far- sælastur. Nýtt væri gufa úr holum sem þegar væru til. Ekki þyrfti „að kaupa viðbótarorku frá Landsvirkjun fyrir hundruð milljóna á ári“. - gar Orðið við ósk Orkuveitu: Virkjun tengd við Hverahlíð HVERAHLÍÐ Holurnar nýttar fyrir Hellisheiðarvirkjun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEILSUGÆSLA Sjálfstæðismenn vilja fjölbreytt rekstrarform. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.