Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.11.2013, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 07.11.2013, Qupperneq 20
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 20 „Ég gæti talið upp langan lista yfir góð kaup sem ég hef gert. Ekki vegna þess að ég sé svona glúrin í innkaupum heldur kaupi ég fáa hluti og reyni því að velja vandlega og helst eitthvað sígilt,“ segir Jónína Leósdóttir rit- höfundur. „Svo hef ég líka alltaf farið vel með það sem ég á, þótt ég segi sjálf frá.“ Það eina sem Jónína kaupir mikið af eru bækur en hún lætur þær þó ganga áfram til annarra fremur en að safna þeim. „Orðabækur hef ég þó alltaf innan seilingar, enda eru þær í stöðugri notkun, ekki síst Íslensk samheitaorðabók. Ég gæti eiginlega ekki unnið án hennar. En nýlega gerðist ég áskrifandi að Snöru.is þar sem ótal orðabækur eru saman komnar á einu vef- svæði– og þar bættust enn ein góð kaup við. Mín mislukkuðustu kaup voru hlaupabretti frá Asíu sem reyndist ekki hannað fyrir fullorðna Vesturlandabúa. Ég prófaði tækið ekki almennilega í búðinni, fannst það svo vandræðalegt. Og saup seyðið af því.“ ➜ Mín mislukkuðustu kaup voru hlaupabretti frá Asíu. NEYTANDINN Jónína Leósdóttir Keypti of lítið hlaupabretti FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Af þeim fimm flugfélögum sem halda úti reglulegu áætlunarflugi frá Kefla- vík í vetur rukka þrjú þeirra fyrir töskur og val á sætum. Í frétt á vef Túrista, turisti.is, segir að hæsta farangurs gjaldið sé hjá Wow Air og nemi það nú 3.495 krónum hvora leið. Hjá Easy Jet eru gjöldin aðeins lægri. Haft er eftir upplýsinga- fulltrúa Icelandair að ekki séu uppi áform um að taka upp þess háttar gjöld hjá félaginu en að fylgst sé með þessari þróun. Rúmlega þrjú þúsund fyrir tösku Brögð hafa verið að því að stöðva hafi þurft sendingar í tollafgreiðslu sem innihéldu afurðir dýra sem eru á válista. Á vef Tollstjóra er bent á að flutningur dýra og plantna sem flokkuð eru í útrýmingarhættu eða afurða þeirra milli landa er ekki leyfilegur nema að fengnu leyfi hjá Umhverfisstofnun. Sem dæmi um innihald sendinga sem stöðvaðar hafa verið eru nefndir fílabeinsmunir, fuglshamir, munir unnir úr skinni af pýtonslöngum og haus af krókódíl. Einnig eru dæmi um hlébarða- skinn, tígrisdýraskinn, kór- ala, eðlur, ísbjarnarskinn og sæskjaldböku, að því er segir á vef embættisins. Verslun með dýr á válista óheimil Skoðaðu úrvalið á NOTADIR.BRIMBORG.IS Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 Notaðir bílar - Brimborg Tilboð: 3.650.000 kr. Ford Escape Limited AWD LDB02 Skráður júní 2011, 2,5i bensín, sjálfskiptur Ekinn 66.000 km. Ásett verð: 3.950.000 kr. Tilboð: 2.590.000 kr. Ford Edge SEL Plus AWD SIS80 Skráður ágúst 2007, 3,5i bensín, sjálfskiptur Ekinn 133.000 km. Ásett verð: 2.790.000 kr. Tilboð: 3.790.000 kr. Ford Kuga Titanium S AWD HYL84 Skráður apríl 2012, 2,0 dísil, beinskiptur Ekinn 71.000 km. Ásett verð: 4.140.000 kr. 400.000 KR. FERÐAFJÖR NOTAÐRA BÍLA FINNDU BÍLINN ÞINN Á NOTADIR.BRIMBORG.IS Sparneytinn, fjórhjóladrifinn jeppi. Fæst einnig sjálfskiptur. *Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 7. nóvember 2013 til og með 20. desember 2013 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi verður svo dreginn út 23. desember 2013 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf frá WOW air. Athugið á ekki við um umboðssölubíla. Kauptu notaðan bíl af Brimborg og þú átt möguleika á að vinna * GJAFABRÉF FRÁ WOWair JEPPAR Í GÓÐU ÚRVALI Vertu með! Í ábyrgð Rúmgóður, vel búinn, aflmikill og sérlega skemmtilegur í akstri. Rúmgóður, lipur og duglegur í vetrarfærðinni Hvert myndir þú fara? Verðmerkingum var ábótavant í 16 af 49 bakaríum á höfuðborgar- svæðinu sem Neytendastofa gerði könnun hjá 18. til 23. september síðastliðinn. Athugað var hvort verðmerkingar væru í lagi í borði og í gos- og mjólkurkælum. Á vef Neytendastofu segir að vörur í kæli hafi verið sérstaklega illa verðmerktar. Tekið er fram að ástandið sé langt frá því að vera viðunandi og þurfi fyrirtækin að fara vel yfir verðmerkingar og verðlag í bakaríum sínum. Óverðmerktar vörur í bakaríum Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur sent út viðvörun vegna hættu á bráðalifrarbólgu eftir neyslu á fæðubótarefninu Oxy Elite Pro. Vitað er um fjölda sjúkdómstil- fella í Bandaríkjunum sem talin eru tengjast vörunni og af þeim hafa tveir þurft að fá nýja lifur. Hægt er að rekja eitt dauðsfall til neyslu á vörunni. Frá þessu er greint á vef Matvælastofnunar. Þar segir jafnframt að ólöglegt sé að flytja fæðubótarefnið inn og/eða selja það hér á landi vegna óleyfilegra innihaldsefna. Þó hafi verið hægt að nálgast vöruna í gegnum netverslun og því varar Matvælastofnun neyt- endur við neyslu hennar. Bráðalifrar- bólga vegna neyslu fæðu- bótarefna „Lögin ganga út á að auka neyt- endavitund og vernd þeirra sem taka lán og í þeim tilgangi eru settar ýmsar nýjar kvaðir á lán- veitendur varðandi upplýsinga- gjöf áður en lánin eru veitt,“ segir Jóna Björk Guðnadóttir, lögfræðingur hjá Samtökum fjár- málafyrirtækja. Hún vísar þar til nýrra laga um neytendalán sem tóku gildi 1. nóvember síðastlið- inn og ná meðal annars til íbúða- og bílalána, yfirdráttarheimilda, raðgreiðslusamninga og smálána. Samkvæmt lögunum þurfa bankar og aðrir lánveitendur að veita ítarlegar upplýsingar um kostnað og skilmála þessara lána áður en þau eru veitt. Þannig á að auðvelda samanburð á mismun- andi valkostum í neytendalánum. „Lántakendur fá til að mynda eyðublöð þar sem eru settar fram ákveðnar upplýsingar á stöðluðu formi. Þar má nefna gildistíma samnings og heildarlántöku- kostnað. Þeir eiga einnig rétt á að fá samninginn í hendurnar eins og hann myndi á endanum líta út,“ segir Jóna. Hún bendir einnig á að neyt- endur geti nú hætt við að taka lán og fallið frá samningi í allt að fjórtán daga eftir að lán er veitt. „Á því tímabili má lánveitandi ekki krefjast svokallaðs upp- greiðslugjalds, sem hefur í vissum tilvikum verið innheimt þegar fólk kýs að greiða lán sín upp. Hins vegar þarf að greiða áfallna vexti og verðbætur og auðvitað lánið sjálft.“ Lögin fela einnig í sér aðrar breytingar frá fyrri lögum um neytendalán sem gera ekki ein- göngu auknar kröfur til fjármála- stofnana heldur einnig til neyt- enda. Þar á meðal er krafa um að lántakendur standist lánshæfis- mat, sem er byggt á viðskipta- sögu og upplýsingum um vanskil, þegar einstaklingar sækja um lán undir tveimur milljónum króna eða þegar hjón eða fólk í sam- búð óska eftir láni undir fjórum milljónum. „Þegar neytendalán fara yfir tvær milljónir króna þarf að skila inn enn ítarlegri upplýsing- um um fjárhagsstöðu. Það þýðir að fólk þarf nú að gangast undir ítarlegt greiðslumat ef það óskar eftir bílaláni upp á meira en tvær milljónir,“ segir Jóna að lokum. haraldur@frettabladid.is Neytendur fá meiri gögn um kostnað Ný lög um neytendalán gera ríkari kröfur til bæði neytenda og fjármálastofnana. Lánveitendur þurfa að veita ítarlegar upplýsingar um lánskostnað og lántak- endur í fleiri tilvikum að greina frá fjárhagsstöðu. BREYTINGAR Nú þurfa þeir sem óska eftir bílaláni að gera grein fyrir fjárhags- stöðu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA. ➜ Samkvæmt lögunum þurfa bankar og aðrir lán- veitendur að veita ítarlegar upplýsingar um kostnað og skilmála þessara lána áður en þau eru veitt. Þannig á að auðvelda samanburð á mismunandi valkostum í neytendalánum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.