Fréttablaðið - 07.11.2013, Síða 34

Fréttablaðið - 07.11.2013, Síða 34
FÓLK|TÍSKA HÖNNUÐURINN Stella Jean vakti óskipta athygli á tískuvikunni í Mílanó í september og þykir rísandi stjarna í tískuheiminum. NORDICPHOTOS/GETTY Stella Jean er fædd og uppalin í Róm á Ítalíu en á rætur að rekja til Haítí, þaðan sem móðurfjöl- skylda hennar er ættuð. Hún nýtir upp- runa sinn óspart í hönnun sinni eins og sést á djörfum og þjóðlegum klæðum sem hún sýndi á tískuvikunni í Mílanó í september. „Tísku má nota sem al- þjóðlegt tungumál og sem tæki gegn nýlendustefnu. Hún getur komið á jafn- vægi milli ólíkra heima,“ sagði hún í við- tali við vefsíðu Vogue. „Að vera hluti af fjölþjóðlegri fjölskyldu á Ítalíu á níunda áratugnum mótaði mig ekki aðeins sem persónu heldur blés í mig andagift,“ sagði þessi 34 ára tveggja barna móðir sem hóf ferilinn sem fyrirsæta. Jean blandar í hönnun sinni saman stórum og litríkum mynstrum frá kreólskum uppruna móður sinnar og karlmannlegum þverröndum frá Torino á Ítalíu, en þaðan er faðir hennar. Giorgio Armani veitti þessum unga og efnilega tískuhönnuði mikla upphefð á tískuvikunni í Mílanó í september þegar hann valdi Stellu til að sýna í Teatro, sýningarsal sínum. Þetta var í fyrsta sinn sem Armani leyfði öðrum kvenfata- hönnuði að nota tískupalla sína. Jean er afar ánægð með viðtökurnar sem lína hennar hefur fengið og þakkar Armani sérstaklega fyrir að treysta á hana. „Armani er mjög gott dæmi um hönnuð sem mótaði tískusöguna en heldur áfram að styðja við komandi kynslóðir hönnuða,“ sagði Jean. ■ solveig@365.is RÍSANDI STJARNA TÍSKA Hönnuðurinn Stella Jean hefur vakið óskipta athygli tískuheimsins í ár. Hún lítur á tísku sem leið til að brúa bilið milli menningarheima. Í MÍLANÓ Vor- og sumarlína Stellu Jean sem hún sýndi á tískuvikunni í Mílanó í september. Tískuhönnuðurinn Jean Paul Gaultier hefur kynnt til leiks nýja hátískulínu fyrir börn. Fyrsta línan er fyrir vorið og sumarið 2014 en ætlunin er að nýjungar verði kynntar á hálfs árs fresti. Fatalínan fyrir vorið er inn- blásin af lokakjólnum sem Gaultier sýndi á vor- og sumar- tískusýningu sinni 2013. Þá sáust kjólarnir fyrst þegar lítil börn birtust undan fyrirferðar- miklum pilsfaldi fyrirsætunnar. Tjullkjólarnir litlu eru úr silki en einnig má fá bóleró- jakka í stíl sem skreyttur er Swarovski-kristöllum. Aðeins verða 90 slíkir kjólar framleiddir í hverjum lit en sala þeirra hefst í lok þessa árs. Hver kjóll kostar litlar 146 þúsund krónur. Í PARÍS Börn í hátískukjólum frá Gaultier birtast undan fyrirferðarmiklum pilsfaldi fyrirsætu. NORDICPHOTOS/GETTY HÁTÍSKA FYRIR BÖRN - líðan á breytingaaldri. „Ég ákvað að prófa Femarelle í fyrravetur þegar ég sá umfjöllun í blöðum þar sem önnur kona lýsti ánægu sinni með vöruna. Ég var að byrja á breytingaaldrinum en vildi ekki nota hormóna. Ég fann fyrir hitakófum, vaknaði upp á nóttunni, fann fyrir fótaóeirð, skapsveiflum og vanlíðan í líkamanum,“ segir Soffía og bætir við að eftir aðeins tíu daga notkun voru öll einkennin horfin. „Nú sef ég samfelldan svefn, finn ekki fyrir hitakófum eða fótaóeirð og mér líður mun betur. Ég finn fyrir meiri vellíðan og er í mun betra jafnvægi í líkamanum. Með glöðu geði mæli ég því hiklaust með Femarelle við vinkonur mínar og allar konur sem finna fyrir breytingaaldrinum. Ég veit um eina vinkonu mína sem hætti á hormónum og notar Femarelle í dag. Ég get ekki ímyndað mér hvernig mér liði í dag ef ég hefði ekki kynnst Femarelle, þvílíkt undraefni.“ Algjört undraefni Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum www.gengurvel.is BELLAVISTA náttúruelgt efni fyrir augun, ríkt af lúteini og bláberjum NÁTTBLINDA Flott föt fyrir flottar konur r 38-58 Stærði dV n ersluni Bella onna Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Stærðir: 40 - 47 Verð: 16.985.- Stærðir: 41 - 48 Verð: 16.985.- Vandaðir þýskir herraskór úr leðri, skinnfóðraðir. Stórar stærðir Opið Mánudag-Föstudag Frá klukkan 10:00 - 18:00 og laugardaga: 10 - 14 Stærðir: 40 - 47 Verð: 16.985.- Stærðir: 41 - 48 Verð: 16.985.-

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.