Fréttablaðið - 07.11.2013, Blaðsíða 62
7. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
BAKÞANKAR
Dóra
DNA
Leikarinn og leikstjórinn
Bjartmar Þórðarson gerir upp
íbúðir hér og þar í borginni.
„Ég stofnaði lítið fyrirtæki fyrir
einu ári og kaupi eina og eina íbúð
og geri upp. Í raun og veru er
þetta björgun fasteigna í lélegu
ástandi en þetta er skemmti-
leg auka búgrein sem hentar vel
með listinni,“ segir leikarinn og
leikstjórinn Bjartmar Þórðarson.
Hann hefur alltaf haft áhuga á
innanhússhönnun og er algerlega
sjálflærður í faginu.
„Ég á föður sem er ofsalega
handlaginn og hefur kennt mér
ýmislegt. Þetta snýst um að prófa
sig áfram, vanda sig, fá réttar upp-
lýsingar og hafa gott auga fyrir
hlutunum. Ég leyfi rýminu að ráða
för þegar ég hanna það og reyni
að sjá hvað það kallar á í staðinn
fyrir að troða einhverju þar inn
sem ekki passar,“ segir Bjartmar.
Hann finnur íbúðirnar sjálfur á
fasteignavefjum landsins og nýtur
sín mjög í starfinu.
„Þetta er áhugamál og ástríða.
Mér finnst þetta rosalega gaman.
Það er líka ánægjulegt þegar
maður getur tekið vinnustimpil-
inn af vinnunni – þá nýtur maður
hennar meira.“
Leikarinn knái segir vissa hvíld
fylgja hönnunarstarfinu. Hann
þarf svo sannarlega á hvíldinni
að halda þessa dagana. Hann og
maður hans, Snorri Sigurðarson,
reka hótelið Rey Apartments í
miðbænum þar sem viðskiptin
blómstra. Þá er Bjartmar einnig
að leikstýra Verslingum í söng-
leiknum Með allt á hreinu sem
frumsýndur verður í Austurbæ
í febrúar sem og að skemmta á
jólahlaðborði á Broadway. „Það
er ákveðin heilahvíld að gera upp
íbúðir þegar ég er búin að vera á
suðupunkti að pæla í handritum.
Maður notar aðrar stöðvar við
hönnunina og því hvílist maður
vel.“ liljakatrin@frettabladid.is
Bjartmar bjargar
löskuðum íbúðum
Leikarinn og leikstjórinn Bjartmar Þórðarson gerir upp íbúðir hér og þar í borginni.
ATHAFNASAMUR Bjartmari leiðist aldrei enda mjög uppátækjasamur.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STÍLL Í STOFUNNI Bjartmar er nýbúinn að gera upp íbúð á
Seltjarnarnesi sem er nú til sölu.
BJART SVEFNHERBERGI Hér leikur Bjartmar sér aðeins með
liti.
EGILSHÖLL
KEFLAVÍK
THE HOLLYWOOD REPORTER
ENTERTAINMENT WEEKLY
CHRIS
HEMSWORTH
TOM
HIDDLESTON
NATALIE
PORTMAN
ANTHONY
HOPKINS
EMPIRE
TOTAL FILM
VAR BARA BYRJUNIN
AKUREYRI
KRINGLUNNI
ÁLFABAKKA
S JÁ SÝ N I N G A R T Í M A Á WWW. B I O PA R A D Í S . I S - M i ð a s a l a : 4 1 2 7 7 1 1 - H ve r fi s g a t a 5 4 - b i o p a ra d i s . i s
S U N : 2 0 : 0 0
Í S L E N S K T T A L - L A U & S U N : 1 6 : 0 0
HJÞ Klapptré SVT
„Aðburðarásin er dýnamísk
og skemmtileg“
„Mynd fyrir alla
aldurshópa“
BESTAR!
VIÐ ERUM
LUKAS MOODYSSON
BARNASÝNINGAR
Le Parisien
NÁNAR Á MIÐI.IS
THOR 2
THOR 2 LÚXUS
FURÐUFUGLAR 2D
FURÐUFUGLAR 3D
CAPTAIN PHILIPS
INSIDIUS CHAPTER 2
Í ÚKONAN B RINU
MÁLMHAUS
Ú ÓT RB 2D Í SL.TAL
METALLICA 3D
PHILOMENA
CAPTAIN PHILIPS
FRANCES HA
GRAVITY 3D
KONAN Í BÚRINU
Á ÍM LMHAUS KL. 5.45 - 8 / HROSS OSS KL. 6 - 8
PHILOMENA
KONAN Í BÚRINU
INSIDIUS CHAPTER 2
CAPTAIN PHILIPS
FURÐUFUGLAR 3D
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 3.20 - 5.40
KL. 3.20
KL. 5 - 8 - 10.45
KL. 8 - 10.20
KL. 8 - 10.15
KL. 5.45
KL. 3.30
KL. 8 - 10
KL. 6
KL. 10.30
KL. 8
KL. 6
- H. S., MBL
KL. 8
KL. 5.45 - 8 - 10.15
KL. 10
KL. 6
KL. 10.15
KL. 10.15
SÝND Í 3D
PHILOMENA 5:40, 7:50
FURÐUFUGLAR 2D 5:50
CAPTAIN PHILLIPS 6, 9
ABOUT TIME 9
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Söngkonan Lady Gaga verður
fyrsti tónlistarmaðurinn til að
syngja í geimnum.
Lafðin fer í geimferð með Virg-
in Galactic snemma árs 2015 og
mun syngja eitt lag í geimnum á
Zero G Colony-tónlistarhátíðinni.
„Hún þarf að vera í söngþjálf-
un í mánuð vegna aðstæðna í
geimnum,“ segir heimildarmaður
tímaritsins Us Weekly. Ljóst er
að um einstakan viðburð í mann-
kynssögunni er að ræða og segir
heimildarmaðurinn enn fremur
að Lady Gaga sé búin að líf-
tryggja sig fyrir fúlgu fjár vegna
ferðarinnar.
Mig dreymdi afkvæmi ljóns og krókó-díls. Það lá dáið við árbakka og hrygldi
í því. Ég vaknaði og vissi strax hvað var að
gerast. Vetur.
EN góðu fréttirnar eru þær að maður getur
leyft sér að tuða yfir nokkrum hlutum fram
að jólum. Fyrst á maður að tuða yfir því
hvað jólaskrautið fer snemma upp. Það er
algjör skylda. Ég fer alveg í vont skap ef
ég sé örla fyrir rauðum lit einhvers staðar
fyrir fyrsta desember. Samt tek ég ekki
seríurnar niður hjá mér fyrr en í fyrsta lagi
í ágúst, en það er öðru vísi.
ANNAÐ sem fer í taugarnar á mér
er aðförin að einkabílnum. Hún
er ekki nógu skilvirk og róttæk.
Einkabílar eru flestir mjög ljótir.
Að sjá þá standa á bílastæðum
borgarinnar er sjónmengun.
Þetta brýtur gegn allri fagur-
fræði. Yfirleitt er bein tenging á
milli fegurðar bíla og hvað þeir
eyða miklu eldsneyti. Ljótir bílar
eyða litlu, flottir miklu. Bönnum
þessa helvítis kveikjara og fyllum
göturnar af alvöru tryllitækjum.
Sjálfur á ég amerískan jeppa sem eyðir 16
þúsund kalli að lágmarki á viku óháð því
hvort ég keyri hann eða ekki og hann skít-
lúkkar á bílastæðum bæjarins.
ÞAÐ hefur lengi ekki mátt gagnrýna
Útsvarið sem sýnt er á RÚV, af sömu ástæð-
um og maður sparkar ekki í liggjandi mann.
En því miður. Hvernig er mögulegt að vera
með spurningakeppni þar sem er jafn lítið
í húfi og þarna? Flestir þátttakenda byrja
á því að afsaka sig, það myndast aldrei
snefill af spennu og öllum er nákvæmlega
sama um hvort þeir sigra eða tapa. Væri
ekki betra ráð að bæjarfélögin fengju að
senda bara klapplið í íþróttahús að eigin
vali og þau myndu garga í 30 mínútur. Eða
eins og einhver tísti á mig – hafa almenni-
leg verðlaun. Nú mætast lið Vestmannaeyja
og Reykjavíkur, í verðlaun eru Flugvöllur í
Vatnsmýri.
SPURNINGAÞÁTTURINN Vertu viss
hefur göngu sína bráðum. Tíu milljónir í
fyrstu verðlaun. Í DV kom fram að féð sé
allt að því illa fengið. Í auglýsingunni liggja
peningarnir á borðinu. Þeir eru pakkaðir í
loftþéttar umbúðir. Takk fyrir.
Tuðtíðin að hefj ast
Gossip Girl-stjarnan Blake
Lively hugsar ekkert um hvað
hún setur ofan í sig.
„Ég er mjög heppin að lífsstíll
minn býður upp á mikla hreyf-
ingu. Ég er alltaf á ferðinni. Ég
þarf ekki að vera með þjálfara
til að fylgjast með því hvað ég
borða. Ég get ekki byrjað daginn
án þess að fá mér bolla af heitu
súkkulaði né klárað hann án þess
að fá mér nokkra súkkulaðimola.
Það er gott fyrir sálina,“ segir
Blake í viðtali við franska Vogue.
Hún er gift leikaranum Ryan
Reynolds en hefur verið með
hjartaknúsurum á borð við Penn
Badgley og Leonardo DiCaprio í
gegnum tíðina.
„Þeir hafa allir gaman af því
að borða. Fólk verður að elska
mat ef það ætlar að vera í kring-
um mig. Ég er mikið fyrir elda-
mennsku akkúrat núna. Ég tala
ekki um annað.“
Borðar
súkkulaði á
hverjum degi
Lady Gaga
út í geim