Fréttablaðið - 19.12.2013, Side 16
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
Ronnie Biggs, einn af alræmdustu glæpamönnum í sögu
Bretlands, lést í gær 85 ára að aldri. Biggs var einn af
ræningjunum í lestarráninu mikla árið 1963 og öðlaðist
frægð fyrir að brjótast út úr fangelsi og vera í hálfan fjórða
áratug á flótta undan réttvísinni.
Biggs var þó lítið annað en smákrimmi sem þvældist af
tilviljun inn í hópinn sem rændi 2,6 milljónum punda úr
póstlest sem var á leið frá Glasgow til Lundúna.
Alla sína tíð gekkst Biggs upp í ímynd sinni sem eins
konar alþýðuhetja og eftir að ránsfengurinn var uppurinn
hafði hann meðal annars tekjur af því að bjóða ferða-
mönnum heim til sín og segja þeim sögu sína.
Undir lokin sá Biggs ekki eftir neinu og var stoltur af
þátttöku sinni í ráninu. „Pabbi sagðist alltaf hafa trú á því
að eitthvað yrði úr mér og á einhvern hátt held ég að ég
hafi náð því. Ég varð að minnsta kosti alræmdur.“
Hinn alræmdi Ronnie Biggs allur
Ronnie Biggs eyddi 35 árum á flótta undan réttvísinni fyrir þátttöku sína í lestarráninu mikla árið 1963. Hann fékk um síðir nóg af flótta-
mannalífinu og flutti heim til Bretlands árið 2001. Hann upplifði sig sem alþýðuhetju og var giska sáttur við arfleifð sína þegar yfir lauk.
Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
ENA MICRO 9 ONE TOUCH
Líttu við hjá Eirvík og kynntu þér ENA 1 eða ENA 9 OneTouch
með Aroma+ og við bjóðum þér í kaffi.
Fékk hæstu einkun hjá þýsku neytendasamtökunum en 14 vélar
voru prófaðar. Hægt að velja um kaffi, espresso, latte macchiato,
cappuccino eða heitt vatn í te með því að þrýsta á einn hnapp.
Ofb eldisverkum haldið áfram í Suður-Súdan
Í FLÓTTAMANNABÚÐUM SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA Í JUBA Upplýsingaráðherra Suður-Súdans segir að 500 manns hið minnsta,
að megninu til hermenn, hafi látið lífið í átökum sem hófust í kjölfar þess sem stjórnvöld nefna tilraun til valdaráns á sunnu-
dag. Micheal Makuei Lueth sagði við fréttamann frá fréttaveitu AP að sumir hafi verið drepnir á víðavangi í grennd við Juba og
vitnaði þar í skýrslu varnarmálaráðuneytisins. Þá eru allt að 700 manns sagðir sárir eftir átökin. Hóparnir sem takast einna helst
á eru hermenn hliðhollir Salva Kiir forseta og hermenn sem fylgja Riek Machar, fyrrverandi varaforseta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1949 Biggs kemst fyrst
í klandur þegar hann er
rekinn úr flughernum með
skömm, tvítugur að aldri, fyrir
liðhlaup, eftir að hann var
staðinn að innbroti í apótek.
Stuttu síðar hlaut hann
fangelsisdóm fyrir bílþjófnað.
Eftir að hann losnaði var hann
handtekinn fyrir tilraun til að
ræna veðmangsbúllu og var
fleygt aftur í steininn þar sem
hann kynntist Bruce Reynolds
sem átti eftir að verða af-
drifaríkt.
1963 Eftir að hafa reynt að halda sig á beinu brautinni, stofnað
fjölskyldu og eignast tvo syni, tók hann tilboði Reynolds um að
taka þátt í því að ræna lest. Ránið var framið í ágúst það ár þar
sem Biggs og Reynolds ásamt þrettán öðrum mönnum rændu
póstlest sem var á leið frá Glasgow til Lundúna.
Ræningjarnir komust á brott með 2,6 millj-
ónir punda, sem að núvirði gæti jafngilt
meira en átta milljörðum íslenskra
króna.
Flestir ræningjarnir náðust innan
tíðar. Reynolds sjálfur slapp til
Mexíkó og náðist ekki fyrr en árið
1968 eftir að hann sneri aftur til
Bretlands. Biggs var handtekinn
4. september og hlaut 30 ára dóm
líkt og flestir hinir ræningjarnir.
1970 Biggs kemst
sjóleiðis til
Brasilíu,
sem var
ekki
með
fram-
sals-
samn-
ing við
Bret-
land. Þar
sér hann
sér farboða
með því að bjóða
ferðamönnum upp á að hlýða
á hann segja söguna af hans
þætti í lestarráninu mikla. Auk
þess seldi hann ýmsan varning,
til dæmis boli og kaffibolla,
tengdan nafni sínu.
1978 Biggs tekur upp
lagið No One Is Innocent með
pönksveitinni Sex Pistols.
1980 Biggs syngur tvö lög í
myndinni The Great Rock ´N´Roll
Swindle, sem segir sögu Sex Pistols.
1981 Hópur breskra manna nemur
Biggs á brott frá Brasilíu. Þeir ætluðu
að koma honum heim til Bretlands og
fá verðlaun fyrir. Bátur þeirra bilar hins
vegar við Barbadoseyjar og Biggs er
flogið aftur til Brasilíu.
1991 Biggs syngur inn
á tvö lög með þýsku
pönksveitinni Die
Toten Hosen. Tveimur
árum síðar endurtekur
hann leikinn með
argentínskri sveit að
nafni Pilsen.
1994
Biggs
gefur
út
sjálfs-
ævisögu
sína, Odd
Man Out.
2001 Eftir að heilsu
hans hafði hrakað mikið
lýsir Biggs því yfir í við-
tali við götublaðið The
Sun að hann vilji gjarna
snúa aftur til Bretlands,
sem hann og gerði síðar
sama ár.
2013
Ronnie
Biggs
skilur við
84ra ára
að aldri.
1965 Biggs sleppur úr fangelsi eftir að hafa
afplánað fimmtán mánuði af dómnum. Hann
var í hópi fjögurra fanga sem klifu yfir tíu
metra háan vegg og flúðu á sendiferðabíl
sem beið þar fyrir utan. Biggs flúði fyrst til
Brussel en þaðan fór hann með konu sinni og
sonum til Parísar þar sem hann gekkst undir
lýtaaðgerðir til að breyta útliti sínu og fékk
fölsuð skilríki.
1966 Biggs
flýr til Ástralíu
þar sem hann
flyst milli staða
í nokkur ár.
2009 Biggs er
sleppt úr fangelsi
af mannúðar-
ástæðum þar sem
hann er orðinn
mjög heilsuveill.
Hann gat þá hvorki
gengið né talað
og bjó eftir það á
hjúkrunarheimili.
➜ Sá ekki eftir neinu
1949 1958 1966 1974
1982
1990
1998
2006
2013
1997 Bretland og
Brasilía gera með
sér framsalssamning
og í framhaldinu er
þess krafist að Biggs
sé framseldur. Brasilía
hafnar framsali og er
honum því leyft að dvelja
þar í landi án þess að þurfa
að óttast framsal.