Fréttablaðið - 19.12.2013, Side 18
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 18
BANDARÍKIN, AP Tölvuhakkarar hafa
sýnt fram á að hægt er að brjótast
inn í tölvukerfi nýlegra bíla þráð-
laust og láta þá beygja, bremsa,
drepa á sér og margt fleira án þess
að ökumaður bílsins fái neitt við
ráðið.
Tilgangur hakkaranna er að fá
bílaframleiðendur til að gæta að
öryggi tölvukerfa bílanna, enda
sífelt stærri hluti af virkni bílanna
tengdur tölvukerfum þeirra. Í
nýlegum bílum eru á bilinu tutt-
ugu til sjötíu samtengdar tölvur.
Þær stýra til dæmis bremsum, gír-
kassa og stýri, en einnig minna
mikilvægum hlutum bílsins eins
og rúðum, ljósum og rúðuþurrkum.
Í nýlegri skýrslu sem tveir
tölvunarfræðingar gáfu út sýna
þeir fram á hvernig þeir tóku yfir
stjórnina á Toyota Prius og Ford
Escape á ferð. Þeir fengu meðal
annars styrk frá bandarískum
stjórnvöldum til að rannsaka veik-
leika bíla. Í skýrslunni skýra þeir
eingöngu hvernig þeir brutust inn
í tölvukerfin í gegnum aðgang sem
bifvélavirkjar nota til að tengjast
tölvukerfum bílanna, en ekki
hvernig hægt er að gera árásir
þráðlaust.
„Því tæknivæddari sem bílarnir
eru því fleiri tækifæri eru fyrir
óprúttna aðila til að nýta sér
það,“ segir Rich Mogull, forstjóri
bandaríska öryggisfyrirtækisins
Securosis. „Ef það er tölva í tæk-
inu er veikleiki til staðar.“
Tölvunarfræðingar hafa sýnt
fram á að hægt er að hakka tölvu-
kerfi bíla á ferð, og taka yfir stjórn
mikilvægra kerfa í bílnum. „Við
hefðum getað aftengt bremsurnar.
Við hefðum getað drepið á vélinni.
Við hefðum getað nauðhemlað,“
segir Stefan Savage, tölvunarfræði-
prófessor við Kaliforníuháskóla.
„Það er augljóst að það er hægt
að nota þessa tækni til að drepa
fólk,“ segir John Bumgarner, fram-
kvæmdastjóri tæknideildar hjá
Cyber Consequencer Unit, sem eru
samtök sem vinna að netöryggi, í
samtali við Reuters-fréttaveituna.
Þessi veikleiki nýlegra bíla vekur
bílaframleiðendum ugg, og er fjöldi
starfsmanna hjá stærstu bílafram-
leiðendunum að vinna að því að
bæta öryggi tölvukerfa bílanna.
Ekki hefur enn frést af því að
tölvu árásir hafi verið gerðar á bíla
af öðrum en þeim sem vinna að því
að sýna fram á veikleika bílanna,
og þeir telja sjálfir að tæknin sé
enn sem komið er ekki á færi ann-
arra en sérfræðinga sem eru til-
búnir að leggja mikla vinnu í verk-
efnið. brjann@frettabladid.is
Geta hakkað sig inn í
tölvukerfi bíla á ferð
Hægt er að stýra bílum þráðlaust, aftengja bremsur eða drepa á vélum bíla með því
að brjótast inn í tölvukerfi þeirra. Augljóst að hægt er að nota þetta til að drepa
fólk segir sérfræðingur. Tæknin er enn sem komið er bara á færi sérfræðinga.
Það er augljóst að það
er hægt að nota þessa tækni
til að drepa fólk.
John Bumgarner
hjá Cyber Consequencer Unit
Á FERÐ Enn sem komið er er það aðeins á færi sérfræðinga að brjótast þráðlaust
inn í tölvukerfi bíla á ferð, en framtíðarsýnin vekur bílaframleiðendum ugg.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sú þekking og tækni sem þarf til að hakka sig þráðlaust inn í tölvukerfi
bíla á ferð er enn sem komið er á fárra færi, og litlar líkur á því að það
verði algengt á næstunni.
Stefan Savage, tölvunarfræðiprófessor við Kaliforníuháskóla, telur
líklegra að bílaþjófar nýti sér það að tölvur stýra sífelt meiru í bílum til
að auðvelda sér að brjótast inn í bílana og koma þeim í gang. Það sé ekki
jafn flókið að opna bíla þráðlaust og gangsetja svo bílinn með því að
hakka tölvuna í gegnum aðgang sem bifvélavirkjar nýta sér til að tengjast
tölvunni.
Bílaþjófar taka tæknina í sína þjónustu
H U G V E K J A
S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A
Sölutímabil 5. – 19. desember
Casa - Kringlunni og Skeifunni
Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð
Gallerí i8 – Tryggvagötu
Hafnarborg - Hafnarfirði
Kokka - Laugavegi
Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu
Líf og list - Smáralind
Módern - Hlíðarsmára
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Around Iceland – Laugavegi
Blómaval - um allt land
Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki
Póley - Vestmannaeyjum
Valrós - Akureyri
Netverslun - www.kaerleikskulan.is
Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra
barna og ungmenna og rennur allur ágóði til starfs í þágu þeirra.
SKOÐANAKÖNNUN Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun MMR ætla nú sem
endranær flestir að borða hamborg-
arhrygg á aðfangadag.
Vinsældir hamborgarhryggjarins
minnka þó aðeins frá því í fyrra. Af
þeim sem tóku afstöðu sögðust 47,5
prósent ætla að borða hrygginn á
aðfangadag nú borið saman við 52,1
prósent í fyrra.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust
11,7 prósent ætla að borða kalkún
sem aðalrétt á aðfangadag, 10 pró-
sent sögðust ætla að borða annað
lambakjöt en hangikjöt, 6,8 prósent
sögðust ætla að borða rjúpur, 4,9
prósent sögðust ætla að borða svína-
kjöt annað en hamborgarhrygg og
19,1 prósent sögðust ætla að borða
eitthvað annað en fyrrgreinda kosti.
Kalkúnn er vinsælli á meðal íbúa
höfuðborgarsvæðisins en íbúa á
landsbyggðinni. Af þeim sem tóku
afstöðu sögðust 15,3 prósent þeirra
sem bjuggu á höfuðborgarsvæðinu
ætla að hafa kalkún sem aðalrétt
á aðfangadag en einungis 6,1 pró-
sent þeirra sem bjuggu á lands-
byggðinni.
Af þeim sem tóku afstöðu og
studdu Framsóknarflokkinn sögð-
ust 69 prósent borða hamborgar-
hrygg á aðfangadag borið saman
við 36,3 prósent þeirra sem kváð-
ust styðja Bjarta framtíð. - fb
MMR kannaði matarvenjurnar á aðfangadag:
Flestir fá sér ham-
borgarhrygg um jól
TÖLVUR Vefsíða leikskólans Aðal-
þings í Kópavogi, Adalthing.is,
hefur legið niðri í um tíu daga vegna
þess að tölvuþrjótur er búinn að
hakka sig inn á hana. Guðrún Alda
Harðardóttir, sem rekur leikskól-
ann, heldur að þrjóturinn hafi talið
að um vefsíðu Alþingis, Althingi.is,
hafi verið að ræða.
„Við veltum því fyrir okkur
hvaða ástæðu einhver hafi til að
hakka síðu einhvers lítils leik-
skóla á Íslandi,“ segir Guðrún Alda,
aðspurð. „Það hafa verið árásir
á síðuna áður
en þeim hefur
aldrei tekist að
tæta hana niður
fyrr en núna.“
Guðrún Alda
segir árásina
bagalega, leik-
skólakennar-
ar og foreldrar
finni verulega
fyrir henni. „Við
notum síðuna mikið sem upplýsinga-
tæki. Þarna erum við með alls konar
kannanir á meðal foreldra og upp-
lýsingar. Margir hafa kvartað bæði
innanlands og erlendis og bent
okkur á að síðan liggi niðri.“
Að sögn Guðrúnar Öldu þykir
mörgum erlendum gestum nafnið
Aðalþing merkilegt en skólinn heitir
eftir götunni þar sem hann stendur
að Vatnsenda. „Við vinnum mikið
með lýðræði og það er ekki leiðin-
legra að heita svona fínu nafni.“
Engar deildir eru í skólanum
heldur þing og yfirmenn þeirra
kalla sig þingforseta. - fb
Vefsíða leikskólans Aðalþings í Kópavogi hefur legið niðri í tíu daga eftir vefárás:
Tölvuþrjótur lokar leikskólasíðu með hakki
GUÐRÚN ALDA
HARÐARDÓTTIR
prósent ætla
að borða
hamborgarhrygg á aðfangadag.
47,5
Í HÁDEGISMAT Krakkarnir í leikskól-
anum Aðalþingi í hádegismat. Vefsíða
leikskólans liggur niðri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SJÁVARÚTVEGUR HB Grandi hefur
selt frystitogarann Venus HF 519.
Kaupandinn er grænlenska félagið
Northern Seafood ApS. Söluverðið,
320 milljónir króna, greiðist á næstu
árum. Markaðsdeild HB Granda
annast sölu afurða skipsins, að
minnsta kosti þar til það er greitt
að fullu.
Venus var smíðaður á Spáni 1973
fyrir Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
og var í fyrstu gerður út sem ísfisk-
togarinn Júní. Nýir eigendur ætla að
taka nafnið upp aftur. - shá
Söluverðið 320 milljónir:
Venus seldur til
Grænlands