Fréttablaðið - 19.12.2013, Blaðsíða 20
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
GEÐDEILD LSH VIÐ HRINGBRAUT Tveir sólarhringar eru sagður stuttur tími til að meta ástand fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NAUÐSYN UPPLÝSINGA
Í lýðræð-
issamfélagi er
nauðsynlegt
að til séu þeir
sem veita
stjórnvöldum
aðhald. Það
gera til dæmis frjáls félaga-
samtök og Mannréttindaskrif-
stofa Íslands, en þau verða að
hafa eitthvað til að byggja á.
Margrét Steinarsdóttir um
nauðsyn góðra upplýsinga
Fjallað hefur verið um nauðungarvistun í Frétta-blaðinu undanfarna viku. Þar hefur komið fram við hverju megi búast í ferlinu frá frelsi til sjálfræðis-
sviptingar, reynsla notanda af nauð-
ungarvistun skoðuð og bent hefur
verið á skort á opinberum tölulegum
upplýsingum. Eftir stendur spurn-
ingin um hvort rétt sé að nauðung-
arvista fólk og ef svo er, þá undir
hvaða kringumstæðum. Enn fremur
er þeirri spurningu ósvarað hvort
réttindi nauðungarvistaðra séu virt.
Viðmælendur blaðsins eru sam-
mála um að ekki sé hægt að afnema
nauðungarvistun með öllu, þó bæta
megi framkvæmdina. Litið er sér-
staklega til mannréttinda, því hafa
verður í huga að um alvarlegt inn-
grip í líf fólks er að ræða. Þá hefur
pyntinganefnd Evrópuráðsins gert
athugasemdir við framkvæmd nauð-
ungarvistunar hér á landi, eins og
kemur fram í skýrslu nefndarinnar
frá árinu 2012.
Hvert skref í ferli nauðungar-
vistunar er hlaðið siðferðilegum
álitamálum, sem krefjast þess
að stjórnvöld hafi góða hugmynd
um þann ramma sem heilbrigðis-
starfsfólki er ætlað að vinna innan.
Engar reglugerðir hafa verið sett-
ar um lögræðislögin, og þar með
engar nánari leiðbeiningar um
framkvæmd nauðungarvistunar
eða staðla sem sjúkrahús þurfa að
uppfylla. Hefðir hafa þó skapast
innan sjúkrahúsanna, sem leiða
til þess að nauðungarvistanir eru
fátíðar hér álandi.
Dæmdar bætur
Fyrsta skref nauðungarvistunar
er að læknir, hvaða læknir sem er,
getur beðið um að einstaklingur
sé lagður inn á geðdeild í allt að
48 klukkustundir. Það er helmingi
lengri tími heldur en lögreglan
hefur þegar hún handtekur einstak-
linga. Samkvæmt lögræðislögunum
verður sjúklingurinn þó að vera
með alvarlegan geðsjúkdóm, eða í
ástandi sem jafnar til alvarlegs geð-
sjúkdóms.
Huglægt mat sem læknir leggur á
ástand fólks er vandkvæðum bund-
ið eins og sjá má í nýlegum dómi
sem féll í Hæstarétti. Þar höfðaði
maður skaðabótamál gegn íslenska
ríkinu vegna frelsissviptingar og
nauðungarvistunar. Í samantekt
Hæstaréttar kemur fram að mað-
urinn krafðist miskabóta í kjölfar
þess að lögreglumenn fóru inn í íbúð
hans og kölluðu til lækni sem mælti
fyrir um að hann skyldi færður á
geðdeild til nánari skoðunar, gegn
vilja hans. Þar var honum haldið í
tvær klukkustundir á meðan læknar
mátu ástand hans. Að því loknu var
honum sleppt þegar það lá fyrir að
hann væri ekki með alvarlegan geð-
sjúkdóm. Honum voru því dæmdar
bætur á þeim grundvelli að ekki
hafi verið réttmætar ástæður til
að svipta hann frelsi og leggja inn
á geðdeild.
Yfirvofandi hætta
Þegar lögð er fram formleg beiðni
um nauðungarvistun er miðað við
að það sé eingöngu gert ef sjúkling-
urinn er talinn hættulegur sjálfum
sér eða öðrum. Aftur er um huglægt
mat að ræða og ljóst að ekki er allt-
af nauðungarvistað vegna bráðrar
hættu, heldur vegna yfirvofandi
hættu eða ótta við að viðkomandi
vanræki annars grunnþarfir sínar.
Nauðungarvistun getur í þeim skiln-
ingi verið fyrirbyggjandi aðgerð.
Heilbrigðisstarfsfólk bendir á það
sjónarmið að ef ekki er gripið inn
í, geti það skoðast sem vanræksla
af hálfu heilbrigðiskerfisins. Þegar
fólk veikist alvarlega af geðsjúk-
dómum geta veikindin valdið því
að erfitt reynist að sinna daglegum
skyldum og vanlíðanin getur orðið
mikil. Frá sjónarhóli læknisins
þarf að grípa inn í ferlið og koma
til aðstoðar. Meiri tími til að meta
stöðuna innan stofnunar geti því í
sumum tilfellum reynst betri til
langs tíma litið og stuðlað að bata.
Úttekt pyntinganefndar
Gagnrýni hefur komið fram á
aðkomu lögreglunnar að nauðungar-
vistun en margir telja hana óþarfa
í flestum tilvikum. Réttara væri að
notast við hefðbundna sjúkraflutn-
inga, líkt og fyrir aðra sjúklinga,
svo gætt sé að mannlegri reisn
viðkomandi. Í sömu veru krafðist
pyntinganefnd Evrópuráðsins þess
í úttekt sinni á nauðungarvistunum
á Íslandi á síðasta ári að umsvifa-
laust yrði hætt að leita til einkennis-
klæddrar lögreglu og öryggisvarða
til að halda sjúklingum niðri á
sjúkrahúsum.
Þegar hefur verið fjallað um þá
gagnrýni að aðstandendur séu ekki
upplýstir um að þeir þurfi ekki að
beiðast nauðungarvistunar sam-
kvæmt lögunum. Almennt virðist
upplýsingagjöf um réttindi sjúk-
linga og aðstandenda vera ábótavant
og gerði pyntinganefnd Evrópu-
ráðsins athugasemd meðal annars
við það atriði. Nefndin sagði skorta
aðgengilegar upplýsingar um starf-
semi geðdeilda og réttindi sjúklinga,
en í lögum um réttindi sjúklinga
segir jafnframt að velferðarráðu-
neytið skuli sjá til þess að til séu
upplýsingar um réttindi sjúklinga,
notendafélög og sjúkratryggingar.
Þá er bent á að í 12. grein sátt-
mála Sameinuðu þjóðanna um
mannréttindi fatlaðs fólk, sem ekki
hefur verið innleiddur á Íslandi, er
áhersla lögð á hæfi fatlaðra til að
ráða sér og réttindum sínum sjálf.
En þar sem ekki teljast allir sem
búa við geðröskun geðfatlaðir er lík-
legt að lögræðislögin þarfnist skoð-
unar og samræmingar fyrir alla þá
sem þurfa að sæta nauðung. Þannig
gæti aukinn réttur fatlaðra ýtt fram
mannréttindum allra.
Mannréttindi nauðungarvistaðra
Margvísleg gagnrýni hefur komið fram á framkvæmd nauðungarvistana hér á landi en flestir eru sammála um að ekki sé
hægt að komast hjá slíkum aðgerðum. Á síðasta ári tók pyntinganefnd Evrópuráðsins út aðstæður geðsjúkra á Íslandi og
gerði athugasemdir við aðbúnað nauðungarvistaðra. Bæta þarf upplýsingagjöf um reglur deilda og rétt sjúklinganna.
Eva
Bjarnadóttir
eva@frettabladid.is
ÚR SKÝRSLU
PYNTINGA-
NEFNDAR
Að framkvæmdinni
sem skýrð er í máls-
grein 81 í skýrslunni,
um þátttöku einkennis-
klæddra lögregluþjóna
(og á Akureyri starfs-
manna einkarekins
öryggisfyrirtækis) í að
hjálpa heilbrigðisstarfs-
fólki að halda sjúklingi
niðri, verði hætt
samstundis.
Að bæklingi sem
tiltekur reglur deildar-
innar og rétt sjúklinga,
ásamt upplýsingum um
kvörtunarleiðir, verði
dreift kerfisbundið til
sjúklinga og aðstand-
enda eða lögráðamanna
við innritun á allar
stofnanir á geðsviði á
Íslandi. Sjúklingur sem
ekki skilur bæklinginn
ætti að fá viðeigandi
aðstoð.
Heimild: Skýrsla pynt-
inganefndar Evrópuráðs-
ins vegna heimsóknar
18.-24. september.
SÉRÍSLENSK LÖGGJÖF
Hér á
Íslandi lítum
við á nauðung-
arvistanir sem
mannréttinda-
mál og þess
vegna setjum
við þær undir hatt lögræðis-
laganna en ekki í sérlög um
geðsjúka. Það er nokkuð
sérstakt í samanburði við
löggjöf í nágrannalöndunum.
Sigmundur Sigfússon
um lögræðislögin
MANNRÉTTINDABROT
Ég sló
ekki frá mér,
en þegar þeir
komu með
sprautuna
kallaði ég:
Mannréttinda-
brot! Mannréttindabrot!
Mannréttindabrot!
Sigríður Örnólfsdóttir
um þvingaða lyfjagjöf
ÆTTINGJAR Í DÓMSMÁLUM
Hér erum
við með
furðulega
stöðu þar sem
ættingjar eru
jafnvel í
dómsmálum
hver við annan. Þar sem sonur
er að kæra móður sína vegna
nauðungarvistana. Þegar
þetta á fyrst og fremst að vera
heilbrigðismál.
Sigursteinn Másson
um stöðu aðstandenda
SKILYRÐIN RÚM
Skilyrðin
til sviptingar
eru mjög rúm.
Það þarf að
vera ótvíræð
nauðsyn og
einstaklingur
svo veikur að hann þarf að
vera á sjúkrahúsi, en það getur
falið í sér allt frá vanþroska til
geðveiki.
Sigurður Páll Pálsson
um sjálfræðissviptingar
ASKÝRING | 20
1 2 3 4 5 6NAUÐUNGARVISTANIR GEÐSJÚKRA
„Við þurfum alltaf að hafa þennan möguleika, en það er spurning
hversu langt eigi að ganga. Viðhorfin lýsa gjarnan tvennum öfgum:
Þannig finnum við stundum ósætti þegar niðurstaðan er að fólk er
ekki lagt inn, á meðan við erum sökuð um að brjóta á mannréttindum
annarra. Það þarf að finna eitthvert meðalhóf,“ segir Halldóra Ólafs-
dóttir, yfirlæknir á geðsviði Landspítalans. Aðspurð um hvort hægt sé
að framkvæma nauðungarvistanir með öðrum hætti segir Halldóra:
„Erlendis eru heimildirnar sums staðar enn rýmri en hér, til dæmis í Noregi þar sem
nóg er fyrir lækni að hafa grun um að alvarlegur geðsjúkdómur sé á ferð og þá hefur
hann heimild til að nauðungarvista í 10 daga,“ Halldóra segir 48 klukkustundir vera
stuttan tími til að meta ástand fólks. „Annað kerfi myndi gefa okkur fjölbreyttari
möguleika á að hjálpa fólki. Þrjár vikur eru oft meira en nóg og það er mikilvægt að
leitast við að ná samvinnu áfram og oft fellum við nauðungarvistun úr gildi áður en
vikurnar þrjár eru liðnar og eigum að gera það ef samvinna næst. Í öðrum tilfellum er
þetta ekki nægur tími og samvinna næst ekki við fólk um að vera lengur sjálfviljugt.
En þá er líka spurning hvað sé nóg, því fjórar vikur væru það kannski ekki heldur.“
➜ Í fullkomnum heimi væri staðan önnur
➜ Meðalhóf þarf að finna
Er rétt að nauðungarvista fólk?
„Þá spyr ég á móti: Er rangt að nauðungarvista fólk?“ spyr Héðinn
Unnsteinsson sem á sæti í varastjórn Geðhjálpar og var áður sér-
fræðingur á geðheilbrigðissviði Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar. „Nei, í ströngum siðferðilegum skilningi er það ekki
rétt,“ bætir hann við. „En stundum þarf að gera það, þá er þetta
spurning um hvar mörkin liggja.“
Héðinn segir að í fullkomnum heimi væri ekki rétt að beita
nauðungarvistun, en þar sem líklega þurfi alltaf að beita henni í einhverjum til-
vikum sé nauðsynlegt að endurskoða lögræðislögin og það verklag sem þeim tengist
út frá mannréttindasjónarmiði. „Í fyrsta lagi er það ábyrgðin á ákvörðuninni um
nauðungarvistun, sem þarf að færa markvisst frá aðstandendum yfir í kerfið,“ segir
Héðinn. „Í öðru lagi er það framkvæmdin. Þar þarf að skilgreina betur aðkomu lög-
reglunnar, bæta verklagsreglur almennt og auka samtalið.“ Héðinn bendir á að í 12.
grein sáttmála Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi fatlaðs fólk (sem ekki hefur
verið endanlega innleiddur á Íslandi) er gerhæfi fatlaðra gert hátt undir höfði.
„Ekki teljast allir sem búa við geðröskun geðfatlaðir og með þessari grein í sátt-
málanum virðist það líklegt að lögræðislögin þarfnist skoðunar og samræmingar,
a.m.k. fyrir geðfatlaða og þá væntanlega aðra þá er þurfa að sæta nauðung. Þannig
virðist jaðarhópur eins og fatlaðir vera að ýta fram mannréttindum allra,“ segir
hann.