Fréttablaðið - 19.12.2013, Side 22

Fréttablaðið - 19.12.2013, Side 22
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 22 K O R T E R . I S íslenskt ung nautakjöt Félag atvinnurekenda gagnrýnir að frumvarp um breytingar á tollalög- um inniheldur engar breytingar á neysluviðmiði ákveðinna tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðar- afurðum. Kvótarnir falla undir samning Alþjóðaviðskiptastofnun- arinnar (WTO) og miða við árin 1986-88 en ekki við núverandi neyslu á landbúnaðarvörum. „ S a m n i ng u r i n n hei mi la r ákveðna tollvernd en segir einnig að það eigi að vera tryggt að til- tekið magn af innflutningi standi viðkomandi löndum til boða á ásættanlegu verði. Það magn sem heimilt er að flytja inn hljóðar einungis upp á fimm pró- sent af þessu neysluvið- miði frá níunda áratug síðustu aldar og neyslu- venjur landans hafa breyst síðan þá og nægir að horfa til sölu á kjúklingi,“ segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Frumvarpið, sem nú er til umræðu á Alþingi, miðar að því að sníða vankanta af breytingum á tollalögum sem voru gerðar í fyrra, en Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að heimildir landbúnaðar- og sjávarútvegsráð- herra til að ákveða tolla á innflutn- ingskvóta brytu í bága við stjórnarskrá. Ólafur Friðriksson, skrif- stofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, segir ástæðuna fyrir núver- andi viðmiði vera þá að samningur WTO og lögin sem voru innleidd vegna hans miði við þetta tiltekna viðmið. „Það hefur ekki verið gerður nýr samningur. Það var næstum því búið árið 2008, en það slitnaði upp úr á elleftu stundu. Þau drög sem þar lágu fyrir miðuðu við allt annað ár. Menn geta gagnrýnt þetta en það sama á við um þessi 149 lönd innan WTO,“ segir hann og heldur áfram: „En þetta frumvarp sem er fyrir þinginu núna fjallar ekkert um þetta gamla neysluviðmið heldur um tollkvóta sem ráðherra hefur heim- ild til að úthluta og hvernig tollar séu stilltir af,“ segir Ólafur. Almar undirstrikar að gagnrýni félagsins sé tilkomin vegna þess að tollkvótarnir eru ekki á dagskrá í frumvarpinu. „Þetta á að vera á dagskrá ef ráðuneytið, þingið og atvinnuvega- nefnd eru að taka málaflokkinn til skoðunar. Þá er ekki valkostur að horfa þröngt á málið og setja lítinn plástur á flakandi sár,“ segir Almar. haraldur@frettabladid.is Gagnrýna 25 ára gamalt neysluviðmið Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda gagnrýnir að frumvarp um breytingar á tollalögum leiði ekki til þess að innflutningur á landbúnaðarafurðum verði í samræmi við núverandi neyslu. Viðmiðið kemur frá Alþjóðaviðskiptastofnuninni. LANDBÚN- AÐUR Inn- flutningur á kjúklingakjöti stóð einungis undir 0,8 prósentum af heildarneyslu árið 2010. ALMAR GUÐ- MUNDSSON Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur kveðst vera týpan sem kaupir föt á útsölu. „Ég róta meira að segja í þúsundkallsbingjunum og þannig hef ég gert bæði kjarakaup og líka alveg vonlaus og van- hugsuð kaup– en þau setja mig alla vega ekki á hausinn!“ „Bestu kaupin eru örugglega húsið okkar sem við vorum svo heppin að finna rétt áður en fasteignaverð fór að æða upp úr öllu valdi, en aðalatriðið er að okkur líður ákaflega vel þar.“ Verstu kaupin gætu hins vegar verið flugmiðar, að sögn Ragnheiðar. „Það eru flugmiðar sem við hjónin keyptum einu sinni milli Dublin og London. Þegar við mættum galvösk út á völl kom í ljós að vélin hafði farið daginn áður. Eftir þetta grandskoðum við dagsetningarnar margsinnis þegar við kaupum flugferðir á netinu.“ NEYTANDINN Ragnheiður Gestsdóttir Rótar í þúsundkallsbingjum Stjórn Selfossveitna hefur ákveðið að draga til baka hluta af fyrirhugaðri hækkun á verði á heitu vatni. Hækkunin verður því 3,3 prósent en ekki 5 pró- sent. „Með því er stjórnin að svara ákalli Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um að sveitarfélög og aðrir aðilar fari sér hægt í gjaldskrárhækk- unum í aðdraganda kjarasamn- inga til að halda verðbólgu í skefjum,“ segir í bókun stjórn- arinnar. - gar Selfossveitur svara ákalli Alþýðusambandsins: Heita vatnið hækkar minna en ætlað var SELFOSS Heitt vatn hækkar um 3,3 prósent en ekki 5 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.