Fréttablaðið - 19.12.2013, Blaðsíða 56
FÓLK|TÍSKA
Ástund er 37 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1976. Verslunin Ástund sérhæfir sig fyrst og fremst í reiðtygjum þótt
þar sé einnig að finna úrvals útivistarfatnað frá flott-
um merkjum á borð við franska vörumerkið Aigle.
Auk þessa er í versluninni deild með dansvörum,
bæði fyrir ballett og fimleika.
„Nú í miðri jólaösinni erum við að kynna nýjan
hágæðahnakk sem ber heitið Wakanda. Nafnið
þýðir: Býr yfir töframætti, og er komið úr máli Sioux-
indíána,“ segir Guðmundur Arnarsson, eða Mummi
eins og hann er ávallt kallaður. Mummi hannaði
hnakkinn en hann er smíðaður á söðlaverkstæði
Ástundar sem starfað hefur í 28 ár. Hnakkurinn er
að sögn Mumma með afar mjúkt sæti enda var hann
hannaður sérstaklega með þarfir kvenkyns knapa í
huga. „Lífbein kvenna eru neðar og setbeinin víðari.
Við vildum koma til móts við þær með þessum
hnakki,“ segir Mummi, en tekur fram að hnakkurinn
henti karlmönnum einnig. „Við höfum í engu sparað
við gerð hnakksins en í honum er leður úr hæsta
gæðaflokki frá Spáni,“ segir Mummi. Hann bendir á
að hnakkurinn sé ætlaður í alla þætti hestamennsk-
unnar, bæði við útreiðar, þjálfun og keppni.
BEISLI ÚR FISKROÐI
Fleiri nýjungar eru í boði í Ástund. „Við erum að
handsmíða beislasett með fiskroði og notum til
dæmis roð af hlýra, laxi og karfa,“ upplýsir Mummi,
en beislin hafa slegið í gegn meðal hestamanna
og þykja til að mynda tilvalin í jólapakkann. Roðið
er íslenskt og unnið á Sauðárkróki en beislin eru
öll smíðuð á söðlaverkstæði Ástundar. „Á næsta
ári munu fleiri hlutir úr fiskroði líta dagsins ljós.
Til dæmis ætlum við að nota það í reiðskálmar og
annan fatnað,“ segir hann.
HNAKKUR MEÐ
TÖFRAMÁTT
ÁSTUND KYNNIR Mummi í Ástund hefur hannað nýjan hágæðahnakk sem
ber nafnið Wakanda. Nafnið er fengið úr máli Sioux-indíána og þýðir: Býr yfir
töframætti. Þá hefur verslunin einnig hafið framleiðslu á beislum úr fiskroði.
WAKANDA
Mummi með nýja hnakkinn
sem verður á kynningartil-
boði fram að jólum.
MEÐ FISKROÐI
Ástund hefur látið hand-
smíða beislabúnað með
fiskroði. Hér má sjá beisli
með karfaroði.
Dermatude „Meta Therapy“ er ný meðferð sem dregur úr öldrun húðarinnar og
dregur einnig úr sjáanlegum um-
merkjum öldrunar. Meðferðin er
tvíþætt. Fyrst er náttúrulegt ferli
húðarinnar örvað innan frá svo
framleiðsla kollagens og elastíns
í húðinni fari aftur af stað, en hún
minnkar með aldrinum. Síðan er
húðinni bætt upp það sem hún
hefur farið á mis við með virkum
efnum utan frá. „Þetta er fullkomin
meðferð fyrir þann sem vill meira
en hefðbundnar húðmeðferðir.
Meta Therapy felst í því að gerðar
eru örsmáar ástungur á húð án
minnsta sársauka. Náttúrlegar
varnir líkamans bregðast sam-
stundis við og hefja framleiðslu
á kollageni og elastíni til að gera
við „skaðann“. Þessar sjálfvirku
viðgerðir líkamans eru 100% nátt-
úrulegar og húðin endurnýjast
innan frá. Við þetta verður húðin
þéttari og stinnari og greinilega
sést að fínar línur og smáhrukkur
sléttast. Húðholurnar grynnast,
hringrásarferli örvast og almennt
ástand húðarinnar batnar,“ segir
Undína Sigmundsdóttir, eigandi
fyrirtækisins Frcosmetic sem er
umboðsaðili Dermatude Meta
Therapy á Íslandi.
Hún segir Meta Therapy bæta
og fegra húðina bæði innan frá
og utan. Meðferðinni fylgja einnig
virk efni, eða svokölluð fyllingar-
efni (subjectables), sem gerir
það kleift að framkvæma mjög
sérhæfðar meðferðir sem hæfa
húðgerð.
Hægt er að velja á milli bæt-
andi meðferðar og yngjandi með-
ferðar fyrir allt andlitið, hálsinn
og/eða bringuna eða þá meðferð-
ar á afmörkuðum svæðum. Þá
má blanda saman meðferðum til
að ná sem bestum árangri. „Fyrst
eftir meðferðina getur borið á
dálitlum roða, en hann hverfur
á örfáum klukkustundum. Hægt
er að snúa sér strax aftur að dag-
legum störfum,“ segir Undína.
Hún segir ráðlagt að taka átta
skipta meðferð en einnig sé hægt
að koma í stakar meðferðir og er
það til dæmis upplagt ef mikið
stendur til eins og fyrir skemmt-
anir og veislur. „Árangurinn
verður þó meiri með fullri með-
ferð. Þegar tilætlaður árangur
hefur náðst þarf svo að viðhalda
honum með því að endurtaka
meðferðina alveg eins og það
þarf að mæta reglulega í rækt-
ina til að viðhalda árangri þar.
Undína segir tilvalið að gefa
gjafabréf í staka eða fulla með-
ferð í jólagjöf. Það verði enginn
svikinn af því. Sjá nánar á www.
dermatude.is
FRÁBÆR MEÐFERÐ
Í JÓLAPAKKANN
FR COSMETICS KYNNIR Dermatude Meta Therapy er ein byltingarkenndasta
húðmeðferð sem völ er á. Meðferðin hefur farið sigurför um heiminn og enda
sýnilegur árangur mikill. Meðferðin er framkvæmd á 100% náttúrulegan hátt.
H I D D E N W E D G E A D D S H E I G H T
OUTLET-SKÓR | FISKISLÓÐ 75 | 101 REYKJAVÍK
Opið: mán-fös 13-18 & lau 12-16 sími: 514 4407
Dömu skór
kr. 7.900
St. 36-41
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Sjá fleiri myndir á
JÓLAKJÓLAR Í FLASH
20% afsláttur til jóla