Fréttablaðið - 19.12.2013, Blaðsíða 64
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 52
Sagan af Stínu stórusæng er
þroskasaga íslenskrar kulda-
skræfu sem lærir að yfir-
stíga eigin ótta og horfast í
augu við hann. Höfundur bók-
arinnar er Lani Yamamoto, en
hún flutti hingað til lands frá
Bandaríkjunum fyrir 18 árum.
Sagan er innblásin af hennar
eigin reynslu af Íslandi, og er að
einhverju leyti byggð á dóttur
Lani og vinum hennar, sjálfstæði
þeirra og uppátækjasemi.
Stína er mjög ráðagóð stelpa og
hún tekur upp á ýmsu til þess að
forðast kuldann. Það sem Stína
kemst hins vegar að í lok sögunn-
ar er að eina leiðin til að takast á
við hann er alger andstæða þess
sem hún hafði sjálf reynt. Í stað-
inn fyrir að reyna að forðast kuld-
ann þá lærir hún að horfast í augu
við hann. Sagan fjallar því í raun
um mikilvægi þess að takast á
við erfiðleikana með því að mæta
þeim.
Stína kynnist vináttunni þegar
tvö börn fjúka skyndilega inn til
hennar úr snjónum og hafa mjög
örlagarík áhrif á líf hennar.
Stína áttar sig á því að jafnvel
þó börnin hafi verið úti í kuldan-
um stafar frá þeim mikilli hlýju.
Stína lærir að kuldi er ekki bara
líkamlegur heldur fylgir hann
einsemdinni líka. Hún uppgötvar
nýja tegund af hlýju með börnun-
um tveimur, hlýjuna sem fólgin er
í vináttu og kærleika.
Sagan af Stínu er skrifuð með
það í huga að hún sé bæði hentug
til upplestrar fyrir börn, en líka
það einföld og aðgengileg að börn
geti lesið hana sjálf sér til ánægju
og yndisauka.
„Mér finnst líka mikilvægt að
barnabækur séu ekki þess eðlis að
bara börnin geti notið sögunnar
en að fullorðna manneskjan sem
les hana sé að bilast úr leiðindum,
sagan á að geta vakið ánægju og
áhuga hjá bæði börnum og full-
orðnum. Það er sagt að ef lesið
er fyrir börnin muni þau koma
til með að lesa mikið sjálf í fram-
tíðinni, sem er alveg ábyggilega
rétt en fyrir mér er það ekki það
eina sem skiptir máli. Lesturinn
snýst líka um tenginguna, sam-
verustundir barna og foreldra.“
Lani hefur sent frá sér nokkrar
barnabækur um heimspeki-
strákinn Albert, en þær hafa verið
þýddar og gefnar út á íslensku og
ellefu öðrum tungumálum.
Stína stórasæng er tilnefnd til
Fjöruverðlauna í flokki barna- og
unglingabóka.
Júlía Margrét Einarsdóttir
Hlýjan í vináttunni
Stína stórasæng er tilnefnd til Fjöruverðlauna í fl okki barnabóka. Sagan fj allar
um kuldaskræfuna Stínu og hvernig hún tekst á við óttann við kulda og snjó.
LANI YAMAMOTO Barnabókahöfundurinn hefur verið búsettur á Íslandi um árabil.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Þetta verður svona létt spjall
á milli mín og Dagnýjar Heið-
dal listfræðings,“ segir lista-
konan Harpa Árnadóttir um leið-
sögnina, sem hún verður með á
sunnudag klukkan 15 í Hverfis-
galleríi á Hverfisgötu 4, þar sem
sýning hennar Staðir er að renna
sitt skeið.
Harpa segir Dagnýju hafa
skrifað lokaritgerð um hvíta
litinn í verkum hennar svo hún
þekki þau vel. „Þetta eru svo-
kölluð sprunguverk,“ segir hún
og rekur upphaf tækninnar
sem þar er beitt til tilviljunar á
vinnustofunni hennar árið 1994
þegar efnið sem hún var með tók
að springa á striganum. „Það er
svolítið gott þegar maður heldur
að maður sé á leið til einhvers
fullkomleika og svo bregður
lífið fyrir mann fæti og
sýnir fram á að fegurðin
felst kannski einmitt í því
sem er ófullkomið,“ segir
hún.
Síðasti sýningardagur
Stafa er Þorláksmessa.
Þá verður opið í Hverfis-
galleríi fram til klukkan
tíu, eins og í bænum og
Harpa ætlar að bjóða
upp á léttar veitingar. „Ég
hugsa að við verðum með
sænska jólaglögg ef fólk vill líta
inn og hlýja sér og fá smá frið
frá jólaerlinum.“ - gun
Létt spjall um listina
Harpa Árnadóttir verður með leiðsögn um sýningu sína, Staði, í Hverfi sgalleríi
á sunnudag klukkan 15 og tekur líka móti gestum á Þorláksmessu.
AF SÝNINGUNNI Sprunguverk eftir Hörpu.
LISTAKONAN
Svo bregður lífið fyrir
mann fæti.
Harpa Árnadóttir listakona
➜ Síðasti sýningardagur Stafa
er Þorláksmessa. Þá verður
opið í Hverfisgalleríi fram til
klukkan tíu.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkt þann 12.
des. 2013 að auglýsa lýsingar á nýjum deiliskipulagstillögum
skv.1.mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Lýsingar deiliskipulagstillagnanna fela í sér eftirfarandi;
Fjallsárlón, markmið: Að skilgreina ramma fyrir uppbyggingu
áningastaðar fyrir ferðamenn, Aðsókn ferðamanna að lóninu
og nágrenni þess hefur aukist verulega og sumarið 2013 var
boðið upp á siglingar á því.
Nónhamar á Hofi, lýsingin er auglýst samhliða endurskoðun
á aðalskipulagi 2012-2030 skv. 2. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr.
123/2010. Markmið: Að byggja upp ferðaþjónustu á svæðinu.
Holt á Mýrum, markmið: Að þróa byggð í samræmi við þær
byggingar sem fyrir eru á skipulagssvæðinu. Gert er ráð fyrir
að útbúnar verði einbýlis-og raðhúsalóðir og aðstaða bætt við
félagsheimilið Holt.
Lýsingar ásamt fylgigögnum verða til sýnis í ráðhúsi,
Hornafjarðar Hafnarbraut 27 á opnunartíma frá og með 19.
des. 2013 til og með 14. jan. 2014, og á heimasíðu
sveitarfélagsins http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn
kostur á að gera athugasemdir við lýsingarnar. Frestur til að
skila inn athugasemdum er til 14. jan. 2014 og skal skila
skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27,
780 Höfn eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson umhverfis-og skipulagsfulltrúi
Auglýsing um
lýsingar deiliskipulaga
Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkt þann
12. des. 2013 að auglýsa tillögur að nýju deiliskipulagi fyrir
Krossey og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands (HSSA)
skv.1.mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagstillögur fela í sér eftirfarandi;
Krossey : Markmið með gerð deiliskipulagsins er að skilgreina
umferð og atvinnusvæði skýrar. Skapa forsendur til stækkunar
lóða og tryggja öryggi vegfarenda. Skapa umgjörð sem hæfir
starfssemi á hafnarsvæði og tryggja öryggi.
HSSA: Deiliskipulagstillagan er auglýst samhliða endurskoðun
á aðalskipulagi 2012-2030 skv. 2. mgr. 41. gr. Skipulagslaga
nr. 123/2010. Tillagan er samkvæmt nýju aðalskipulagi sem
er í kynningu. Markmið með gerð deiliskipulagsins er að: Að
tryggja eðlilegan vöxt HSSA í samræmi við þarfir samfélagsins
og að aðstaða sé í samræmi við lög. Að tryggja aukið framboð
þjónustuíbúða í tengslum við starfsemi
hjúkrunarheimilis. Að bæta umhverfi og þjónustu við
núverandi notendur og vinnuaðstöðu þeirra sem þar starfa.
Að auka framboð á eftirsóknarverðum íbúðum í
sveitarfélaginu. Deiliskipulagstillögurnar ásamt fylgigögnum
verða til sýnis í ráðhúsi Hafnarbraut 27 á opnunartíma frá og
með 19. des. 2013 til og með 10. feb. 2014 einnig á heimasíðu
sveitarfélagsins http://www.hornafjordur.is/stjornsysla. Þeim
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur
á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillögurnar. Frestur
til að skila inn athugasemdum er til 10. feb. 2014 og skal skila
skriflega á bæjarskrifstofur Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780
Höfn eða á netfangið skipulag@hornafjordur.is.
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson umhverfis-og skipulagsfulltrúi
Auglýsing um deiliskipulagsgerð
Sveitarfélagsins Hornafjarðar
HSSA og Krossey
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
MENNING