Fréttablaðið - 19.12.2013, Blaðsíða 76
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING TÓNLIST | 64
TÓNNINN
GEFINN
Gunnar Leó Pálsson
„Ég elska Ísland en verð því
miður bara á landinu í einn
sólar hring,“ segir danski raftón-
listarmaðurinn og Íslandsvinur-
inn Anders Trentemöller. Hann
kemur fram á Sónar-hátíðinni
í Reykjavík sem fram fer í
febrúar.
Trentemöller kom fram á
Sónar-hátíðinni í fyrra en hann
hefur heldur betur skipt um gír
síðan þá. „Ég verð með heila
hljómsveit með mér núna. Ég er
með tvo gítarleikara, trommara,
söngkonu og einn þúsundþjala-
smið sem spilar meðal annars á
bassa,“ útskýrir Trentemöller.
Hann semur tónlistina þó einn
og æfir svo efnið með hljóm-
sveitinni.
Hann hefur komið hingað til
lands nokkrum sinnum og er
heillaður af landi og þjóð. „Mér
þykir mjög leiðinlegt að geta
ekki stoppað lengur hérna, ég
hefði viljað sýna hljómsveit-
inni minni landið,“ og einnig
fór hann fögrum orðum um
sinn uppáhaldsskemmtistað á
fróni, sem ku vera Kaffibarinn.
„Kaffibarinn er frábær, ég á
góðar minningar þaðan.“
Sá danski er sjálflærður í tón-
listinni og spilar á ýmis hljóð-
færi. „Ég fór aldrei í tónlistar-
skóla og það er kannski gott því
þá upplifir maður hljóðfærið
líklega öðru vísi. Ég er mjög
hrifinn af gítarnum og eigin-
leikum hans en ég spila samt
mest á hljómborð,“ segir Trente-
möller spurður út í hljóðfæra-
kunnáttuna.
Nú þegar jólin nálgast óðfluga
ákvað blaðamaður Fréttablaðs-
ins að forvitnast um viðhorf
Trentemöllers til jólanna. „Ég
er mjög mikið jólabarn og elska
þennan árstíma.“
Þá segir hann að A Christmas
Gift for You from Phil Spector
sé uppáhaldsjólaplata sín. „Ég
elska Phil Spector. Hann nær að
galdra fram einstakan hljóm og
ég er mjög hrifinn af upptökum
hans og tækni.“
Trentemöller sendi frá sér
plötuna Lost á árinu og fékk til
liðs við sig listamenn á borð við
Mimi Parker úr hljómsveitinni
Low og Kazu Makino úr hljóm-
sveitinni Blonde Redhead.
gunnarleo@frettabladid.is
Trentemöller ekki
einn að þessu sinni
Danski raft ónlistarmaðurinn Trentemöller kemur fram á Sónar-hátíðinni í febrúar.
EKKI EINN Á BÁTI Anders Trentemöller kemur fram á Sónar-hátíðinni í febrúar,
ásamt hljómsveit. NORDICPHOTOS/GETTY
Trentemöller hefur á ferli sínum endurhljóðblandað lög fyrir Moby, Pet
Shop Boys og The Knife með góðum árangri. Hann hefur gefið út þrjár
breiðskífur. Trentemöller hefur nokkrum sinnum áður sótt Ísland heim og
meðal annars spilað á Airwaves-hátíðinni.
Frá því Trentemöller kom fram á fyrstu Sónar Reykjavík-hátíðinni fyrr
í ár hefur hann gefið út sína þriðju breiðskífu, Lost, og tónleikaskífuna
Live in Copenhagen sem geymir mikið af hans bestu verkum. Einnig
hitaði hann upp fyrir Depeche Mode á Delta Machine-tónleikaferð
sveitarinnar í Evrópu.
Skemmtilegar staðreyndir
Kaffibarinn er
frábær, ég á góðar
minningar þaðan.
Anders Trentemöller
LAGALISTINN TÓNLISTINN
12.12.2013 ➜ 18.12.2013
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
1 Of Monsters And Men Silhouettes
2 Avicii Hey Brother
3 Kaleo Automobile
4 Baggalútur og Jóhanna Guðrún Mamma þarf að djamma
5 Jón Jónsson Feel For You
6 Ellie Goulding How Long Will I Love You
7 Steinar Up
8 Pharrell Happy
9 One Republic Counting Stars
10 Björgvin Halldórsson / Ragnheiður Gröndal .................Ást er æði
1 Baggalútur Mamma þarf að djamma
2 Kaleo Kaleo
3 Ýmsir Gömlu dagana gefðu mér
4 Sigríður Thorlacius Jólakveðja
5 Friðrik Ómar Kveðja
6 Helgi Björnsson Helgi syngur Hauk
7 Drangar Drangar
8 Björgvin Halldórsson Duet III
9 Steinar Beginning
10 Strumparnir Strumpastuð
Tónleikar eru eitthvað sem flestir hafa gaman af, um er að ræða afþreyingu,
athöfn og skemmtun, þar sem áhorfandinn sér listamanninn skapa tónlistina
frá grunni. Oft er um að ræða tónlist sem áhorfandinn hefur hlustað á heima
hjá sér, í bílnum eða í tölvunni og gjörþekkir.
Hins vegar er oft munur á lifandi flutningi tónlistar og tónlistar sem fólk
heyrir á plötum en það er einmitt það sem mér finnst svo skemmtilegt. Mér
þykir ákaflega indælt að hlusta á góða plötu en þykir eiginlega enn indælla
og skemmtilegra að hlusta á listamenn og hljómsveitir sem breyta út af
vananum á tónleikum.
Mér þykir oftast erfitt að gagnrýna
listamenn og hljómsveitir nema ég hafi séð
og heyrt viðkomandi á tónleikum, hvort
sem ég er viðstaddur tónleikana eða á
hljóð- eða myndbandsupptöku. Ástæðan er
sú að ég hef gaman af því að sjá og heyra
muninn á hljóðversútgáfunni og tónleika-
útgáfunni. Oft er hægt að „feika“ ýmislegt
í hljóðverunum en það getur verið erfiðara
þegar um lifandi flutning er að ræða.
Þá eru tónleikar yfirleitt ekki eingöngu sælgæti fyrir eyru, heldur líka fyrir
augu, þegar öll framkoma listamannsins er útspekúleruð. Ef dæmi eru tekin
um listamenn úti í heimi sem leggja mjög mikið í tónleika sína í dag, er
auðvelt að nefna nöfn eins og Justin Timberlake, Beyonce og U2, en listinn
gæti verið talsvert lengri.
Áður greindir listamenn leggja mikið upp úr tónleikum sínum og er
upplifunina af tónleikum ekki eingöngu tónlistin, heldur er um að ræða
útspekúleraða upplifun sem gerir áhorfandann að jafnaði agndofa. Þetta geta
líklega margir tekið undir því ekki alls fyrir löngu fóru fjölmargir Íslendingar
á tónleika með tónlistagyðjunni Beyoncé, þegar hún kom fram á Norður-
löndunum og Evrópu fyrr á árinu. Hins vegar er Justin Timberlake í miklu
uppáhaldi hjá undirrituðum og að sjá frammistöðu hans og þeirrar frábæru
hljómsveitar sem er á bak við hann er gjörsamlega magnað. Með poppstjörn-
unum leika þvílíkir snilldarhljóðfæraleikarar og er tónlistin að jafnaði útsett
þannig, að meira að segja erfiðustu tónlistarspekingar verða hrifnir, þó þeir
hafi ekki orðið jafn hrifnir af hljóðversútgáfu efnisins.
Við Íslendingar skulum njóta þess að eiga okkar frábæra tónlistarhús,
okkar frábæra tónlistarfólk og alla þá grósku sem er í íslensku tónlistarlífi.
Förum á tónleika og njótum þessa að upplifa sanna list.
Tónleikar vs. hljómplata
Nicovel®lyfjatyggigúmmí
598kr/pk
VILTU HÆTTA
AÐ REYK JA?
Nicovel Fruit og Nicovel Mint lyfjatyggigúmmí, innihalda 2 mg af
nikótíni sem nikótín resinat. Nicovel er ætlað reykingamönnum 18 ára
og eldri. Ekki má nota Nicovel ef um er að ræða ofnæmi fyrir nikótíni
eða einhverju öðru innihaldsefni tyggigúmmísins eða ef þú reykir ekki.
Leitið ráða hjá lækni áður en Nicovel er notað ef: þú hefur nýlega fengið
hjartaáfall eða heilablóðfall, þú hefur fengið ofnæmisviðbrögð (ofsabjúgur)
eða útbrot með kláða (ofsakláði). Einnig ef þú ert með: brjóstverk,
hjartakvilla sem hefur áhrif á hraða eða takt hjartsláttar, ómeðhöndlaðan
háþrýsting, lifrarsjúkdóm, nýrnasjúkdóm, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil,
æxli í nýrnahettumerg (krómfíklaæxli), magasár eða bólgu í vélinda.
Einstaklingar undir 18 ára aldri ættu ekki að nota Nicovel nema því sé
ávísað af lækni. Viðeigandi skammtur fyrir fullorðna getur haft mikil
eituráhrif eða verið banvænn fyrir lítil börn. Þungaðar konur og konur
með barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicovel í samráði við lækni.
Skammtar eru einstaklingsbundnir og valdir út frá nikótínþörf. Yfirleitt
er nóg að nota 8-12 tyggigúmmí á dag. Hámarksskammtur er 24 stykki
á dag. Nánari upplýsingar um notkun er að finna í fylgiseðli lyfsins.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Markaðsleyfishafi: Orifarm Generics A/S. Umboð á Íslandi: Icepharma hf.
Lynghálsi 13, 110 Reykjavík.
NEY131006