Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 78
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 66
Kvikmyndin Anchorman 2: The
Legend Continues verður frum-
sýnd hér á landi á föstudag en
hún er framhald myndarinnar
Anchorman: The Legend of Ron
Burgundy sem gerði allt vitlaust
þegar hún var frumsýnd sumarið
2004.
Will Ferrell leikur frétta-
haukinn Ron Burgundy eins
og í fyrri myndinni og hefur
karakterinn verið mjög áberandi
á hinum ýmsu miðlum í aðdrag-
anda frumsýningarinnar. Ron
hefur leikið í auglýsingum fyrir
bíla hjá Dodge og lesið fréttir á
alvöru fréttastofu svo fá dæmi
séu tekin. Markaðsgúrúar
vestanhafs halda því fram
að kynningarherferð fyrir
Anchorman 2 muni líklega breyta
því hvernig kvikmyndir verða
markaðssettar í framtíðinni. Will
Ferrell er ekki sammála eins og
kemur fram í viðtali við hann í
Hollywood Reporter.
„Þetta var blanda af því að
þeir hjá Paramount voru spenntir
fyrir því að gera alls konar nýja
hluti á Internetinu og við fengum
frábært tækifæri hjá Dodge. Ég
var viljugur til að gera ýmislegt í
karakter. Ég elska fréttirnar sem
segja að þessi herferð breyti því
hvernig kvikmyndir eru mark-
aðssettar en ég held að leikar-
ar verði ekki jafn viljugir og ég
til að vera í karakter. Ég held að
þeim líði ekki vel með það.“
Paramount einbeitti sér líka að
markaðssetningu erlendis því þó
fyrsta myndin um Ron hafi skilað
85 milljónum dollara, tæplega tíu
milljörðum króna, í kassann þá
þénaði hún aðeins fimm milljónir
dollara, tæplega sex hundruð
milljónir króna, utan Banda-
ríkjanna.
Í nýju myndinni er Ron boðið
að gerast fréttaþulur á glænýrri
sjónvarpsstöð, GNN, sem er jafn-
framt fyrsta fréttastöðin sem
sendir út 24 klukkutíma á sólar-
hring. Ron ákveður að þekkjast
boðið og heldur til New York
með veðurfræðingnum einfalda
Brick, söguskoðaranum Brian og
íþróttafréttamanninum Champ
Kid. Eiginkona Rons, Veronica
Corningstone, er að sjálfsögðu
ekki langt undan.
Með aðalhlutverk sem fyrr
fara Will Ferrell, Steve Carell,
David Koechner, Paul Rudd og
Christina Applegate.
liljakatrin@frettabladid.is
➜ Ég elska fréttirnar sem
segja að þessi herferð breyti
því hvernig kvikmyndir eru
markaðssettar en ég held að
leikarar verði ekki jafn viljugir
og ég til að vera í karakter.
Leikarinn Jake Gyllenhaal
er 33ja ára í dag.
Helstu myndir: Donnie Darko, Brokeback
Mountain, Zodiac og Prisoners.
AFMÆLISBARN DAGSINS
Grínmyndin I‘m so excited!, sem
heitir á frummálinu Los amantes
pasajeros, verður frumsýnd á
föstudag í Bíó Paradís en leik-
stjóri og handritshöfundur er
Pedro Almodóvar.
Myndin gerist á borð um flug-
vél sem er á leið til Mexíkó og
við fylgjumst með tvíkynhneigðu
flugmönnunum Benito og Alex og
samkynhneigðu flugþjónunum
Ulloa, Fajardo og Joserra.
Flugvélin er full af sérkenni-
legum karakterum sem eru svo
sannarlega í ferð sem gæti endað
með ósköpum.
Myndin er sýnd með enskum
texta og hefur Almodóvar lýst
henni sem gleðilegri. Flestir
kvikmyndaáhugamenn ættu að
kannast við Almodóvar. Hann
hefur leikstýrt myndum á borð
við Kika, Carne Trémula, Todo
Sobre Mi Madre, Hable Con Ella,
La Mala Educación, Volver og La
Piel que Habito. - lkg
Ný mynd eft ir meistara Almodóvar
Grínmyndin I’m so excited! fj allar um tvíkynhneigðu fl ugmennina Benito og Alex.
GRÍÐARLEGA VINSÆLL Pedro Almo-
dóvar á framleiðslufyrirtækið El Deseo
sem framleiðir myndina.
Myndin sem breytir
markaðssetningu
Anchorman 2: The Legend Continues verður frumsýnd á Íslandi á föstudag.
„I don‘t know what we‘re
yelling about.“
Brick Tamland.
„And I‘m Ron Burgundy.
Go fuck yourself, San
Diego.“
Ron Burgundy.
„They‘ve done studies,
you know. 60% of the
time, it works every
time.“
Brian Fantana.
„You‘re so wise. You‘re
like a miniature Buddha,
covered in hair.“
Ron Burgundy.
„For just one night let‘s
not be Co-workers. Let‘s
be Co-people.“
Ron Burgundy.
„I‘m in a glass case of
emotion.“
Ron Burgundy.
„I would like to extend to
you an invitation to the
pants party.“
Brick Tamland.
„Where‘d you get your
clothes … from the …
toilet store?“
Brick Tamland.
Bestu frasarnir úr Anchorman I
GENGIÐ SNÝR AFTUR Margir bíða spenntir eftir nýju Anchorman-myndinni.
Einkunnir:
IMDB: 6,7/10
Rotten Tomatoes: 89/100
Metacritic: 64/100
Þrjár jólahryllingsmyndir
Bíó Paradís ætlar að sýna þrjár
jólahryllingsmyndir, þrjá fimmtudaga
í röð, 19. og 26. desember og 2.
janúar.
Um er að ræða klassískar og
hræðilegar hrollvekjur og hefjast
sýningar því klukkan 22.00 öll
kvöldin. Myndirnar sem sýndar verða
eru, Saint frá árinu 2010 sem fjallar
um morðingjann St. Nicholas sem
rænir og drepur börn á fullu tungli
5. desember. Black Christmas frá
árinu 1974 sem fjallar um morðóðan
mann sem drepur ungmenni. Þriðja
og síðasta myndin er Silent Night,
Deadly Night frá árinu 1984 þar
sem morðóður jólasveinn gengur
berserksgang. - glp
Risaeðlurnar 3D teiknimynd
Teiknimyndin Risaeðlurnar 3D er
frumsýnd á morgun en í henni ferðast
áhorfendur tugi milljóna ára aftur í
tímann og verða hluti af stórkostlegri
sögu.
Myndin segir frá ungum risaeðlustrák
sem er sonur forystueðlunnar. Þeim litla
er ætlað það hlutverk að taka við leið-
togahlutverkinu þegar fram líða stundir.
Hann þarf bæði að læra af eldri risa-
eðlunum og takast á við ýmsar hættur
þar sem grimmir og miskunnarlausir
óvinir eru ávallt nærri. - lkg
Hable Con Ella (2002) vann Óskar-
inn fyrir besta handrit. Hún vann
BAFTA-verðlaun sem besta mynd
ekki á ensku og fyrir besta handrit.
La piel que habito (2011) vann
BAFTA sem besta mynd ekki á ensku.
Todo sobre mi madre (1999)
vann BAFTA sem besta mynd ekki
á ensku.
➜ Verðlaunamyndir
Almodóvar
Þrívíddar risaeðlur
og hryllingsjól
FRUMSÝNINGAR
Nóg að gerast í bíó í dag
og á morgun
BÍÓFRÉTTIR
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
VIRB Elite
Hasarmyndavél
Innbyggður skjár, 2000mAh
rafhlaða, 16Mp myndflaga,
GPS skráir hraða og hæð, WiFi
tenging við síma og margt annað
setur Garmin hasarmyndavélarnar
í sérflokk.
VIRB FRÁ KR.
54.900
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍASÍ
A
SÍ
A
Forerunner 620
Hlaupaúr
Hvíldartími, súrefnisupptaka,
skrefafjöldi, skreftími og
sendir þráðlaust á Garmin
Connect með WiFi.
HLAUPAÚR FRÁ KR.
23.900
Monterra
Útivistartæki
Android, Vídeó, FM útvarp,
netvafri, tölvupóstur, myndavél
og margt annað spennandi.
ÚTIVISTARTÆKI FRÁ KR.
29.900
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi | S: 577 6000 | www.garmin.is | Opið kl. 10-18 fram að jólum. Kl. 10-12 á aðfangadag.