Fréttablaðið - 19.12.2013, Síða 82
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 70
Árið 2013 á Lífi nu
Þessar sex fréttir vöktu mikla athygli á Lífi nu á Vísi á árinu. Tanja Ýr var krýnd
Ungfrú Ísland, Ágústa Eva gagnrýndi AA-samtökin, Darri Ingólfsson kom sér
á kortið í Hollywood, Jórunn Guðrún Hólm fékk krabbamein og hefur lent í
níu bílslysum, Sigurður Steinþórsson heyr hetjulega baráttu við þunglyndi og
Margrét Bjarnadóttir talaði opinskátt um kosningaslag föður síns, Bjarna Ben.
TANJA ÝR UNGFRÚ ÍSLAND
Tanja Ýr Ástþórsdóttir var
kosin Ungfrú Ísland 2013 í
fegurðarsamkeppni Íslands
sem fram fór á veitinga-
húsinu Broadway í kvöld. Hún
var einnig valin ljósmynda-
fyrirsæta ársins.
Hildur Karen Jóhanns-
dóttir varð í öðru sæti,
Karítas Maren Sveinsdóttir
í því þriðja og Hildur María
Leifsdóttir landaði fjórða
sætinu. Þá var Bryndís Hera
Gísladóttir í fimmta sæti en
hún var einnig valin púka-
stelpa keppninnar.
ÍSLENDINGUR
SLÆR Í GEGN Í
DEXTER Darri
Ingólfsson kom
sér á kortið í
Hollywood. Hlut-
verk hans í nýjustu
seríunni af Dexter
er ansi veigamikið
og opnar honum
vafalaust margar
dyr. Darri hefur
verið búsettur í
Los Angeles síðast-
liðin fjögur ár.
VARÐ UNDIR FIMMTÁN TONNA VÖRUBÍL Jórunn Guðrún Hólm, 27 ára, er
sterk kona sem hefur tekist á við erfiða reynslu þrátt fyrir ungan aldur. Hún fékk
krabbamein og hefur lent í hvorki meira né minna en níu bílslysum.
ÁGÚSTA EVA
GAGNRÝNIR
AA-SAMTÖKIN
Leikkonan Ágústa
Eva Erlendsdóttir
efast um ágæti
AA-samtakanna og
telur gloppu í heil-
brigðiskerfinu að
ætla æðri mætti
að sjá um fíklana.
ÉG ÞORI EKKI AÐ VERA MEÐ BARNIÐ
MITT NÁLÆGT MÉR – HUGLEIÐING
FRÁ SIGURÐI STEINÞÓRSSYNI „Ég
heiti Sigurður Steinþórsson og langar
að segja frá minni sögu. Núna hef ég
verið að glíma við þunglyndi í um það
bil tvö ár. Ég hef verið í sjálfsvígshugs-
unum í langan tíma og fengið lækni
heim til mín, hef verið sóttur og snúinn
niður og keyrður á geðdeild á Akureyri
í desember rétt fyrir jól og þar átti að
vinna í mínum málum.“
ÞÓTT HANN SÉ FORMAÐUR – ER HANN SAMT
ALLTAF PABBI MINN „Það er mjög mikið að gera
hjá pabba. Varla ein mínúta sem er óskipulögð
hjá honum. Það að fara í pólitík af fullum krafti er
gríðarlega stór ákvörðun. Þetta engin hefðbundin
vinna og álagið ekki fyrir alla. Maður fer ekki í vinn-
una klukkan átta og tekur síðan bindið af klukkan
fjögur. Áreitið varir allan sólarhringinn, alla daga
ársins,“ segir Margrét.
Úrslitin í beinni í nótt
klukkan 01.00
Hver verður næsta stórstjarna Bandaríkjanna?