Fréttablaðið - 19.12.2013, Blaðsíða 94
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 82
HANDBOLTI „Ég var í uppstökki
í lok æfingar þegar ég ég fann
smell í kálfanum,“ segir Arnór
Atlason en hann er nýjasta
spurningamerkið í landsliðshópi
Íslands fyrir EM í Danmörku.
„Ég hugsaði að þetta gæti bara
ekki verið að gerast svona rétt
fyrir mót. Ég er búinn að vera á
góðu róli og þetta er ömurlegt.
Þetta mót hefur verið gulrótin mín
síðustu mánuði þannig að það væri
hræðilegt að missa af því. Ég er
samt enn bjartsýnn.“
Læknar liðs Arnórs, St. Raphael,
eru búnir að skoða hann og mynda.
Arnór mun svo fara í fleiri rann-
sóknir. Niðurstöðurnar verða svo
sendar heim til lækna íslenska
landsliðsins.
Verð í kapphlaupi við tímann
„Ég verð að bíða og sjá hver stað-
an er. Ég mun líklega ekki skilja
almennilega eðli meiðslanna fyrr
en ég sest niður með læknunum
heima. Þetta er vonandi tognun
en ekki rifa í vöðvanum sjálfum.
Þá er málið aðeins erfiðara,“ segir
Arnór en er hann búinn að afskrifa
EM ef hann er með rifinn vöðva?
„Nei, alls ekki. Þetta mun samt
alltaf verða kapphlaup við tímann.
Sama hversu slæm meiðslin eru.“
Arnór mun missa af síðustu
tveimur leikjum St. Raphael og
heldur heim til Íslands á morgun.
„Ég er því kominn í jólafrí
snemma. Það verður svo að fara
vel með sig yfir jólin. Ég verð bara
að drekka grænan safa á aðfanga-
dag,“ segir Arnór léttur.
Hann varð fyrir því óláni að
slíta hásin í nóvember í fyrra.
Fyrir vikið var hann lengi frá.
Hann flutti sig svo til Frakklands
síðasta sumar og var varla kominn
þangað er hann puttabrotnaði. Það
varð þess valdandi að hann missti
nánast af öllu undirbúningstíma-
bilinu og hefur því þurft að vinna
sig rólega inn í lið St. Raphael.
„Þetta er búið að vera erfitt.
Ég get ekki skrifað þessi meiðsl
á álag. Ég hef aldrei verið undir
minna álagi. Er að spila minna en
ég er vanur og við erum heldur
ekki í neinni Evrópukeppni. Þessi
meiðsli skrifast því á óheppni frek-
ar en eitthvað annað. Það er gjör-
samlega óþolandi. Ég er samt til í
að fórna öllu til þess að geta spil-
að með strákunum á EM í janúar,“
segir Arnór. henry@frettabladid.is
Til í að fórna öllu fyrir EM
Óvissa er með þátttöku skyttunnar Arnórs Atlasonar á EM í Danmörku sem hefst í næsta mánuði. Arnór
meiddist á kálfa á æfi ngu á mánudag. Hann er hugsanlega með rifi nn vöðva í kálfanum en vonast eft ir því
að vera aðeins tognaður. Hann verður í miklu kapphlaupi við tímann sama hversu slæm meiðslin eru.
ÓHEPPINN Lukkan hefur ekki beint verið í liði með Arnóri síðustu misseri.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég hugsaði að
þetta gæti bara
ekki verið að gerast
svona rétt fyrir mót. Ég
hef verið á góðu róli og
þetta er ömurlegt.
Arnór Atlason
SPORT
FÓTBOLTI „Ég er alltaf að semja
eitthvað. Ég er búinn að vera leng-
ur í tónlist en dómgæslu,“ segir
einn besti knattspyrnudómari
landsins, Garðar Örn Hinriksson.
Hann var söngvari í hljómsveit-
inni Url sem lagði upp laupana
fyrir um tíu árum. Hann var nú
að gefa út lagið „Sjá“, hugljúft lag
sem sungið er af Heiðu Ólafs.
„Ég sendi þetta lag í Eurovision-
keppnina en því var hafnað. Fyrst
þetta lag komst ekki inn þá hlýtur
þessi undankeppni að vera sú
besta í Evrópusögunni. Það getur
ekki annað verið en lögin sem eftir
eru séu stórkostleg því mitt lag
er ekki lélegt,“ sagði tónskáldið
hæverska, stolt af sínu lagi. „Mér
fannst röddin mín ekki passa við
þetta lag og Heiða gerir þetta frá-
bærlega.“
Garðar, sem oft er kallaður
Rauði baróninn meðal knatt-
spyrnuunnenda, segir að draum-
urinn sé að gefa út sólóplötu með
eigin efni.
„Ég á alveg efni í heila plötu en
það er dýrt að taka upp og gefa
út. Þó svo ég sé frábær dómari
þá er ég enn þá betri söngvari og
tónlistar maður. Tónlist er mín
ástríða,“ segir Garðar en hann
hefur ekki fengið neina útvarps-
spilun en vonar að nýja lagið muni
hljóma á öldum ljósvakans.
Hinn marghami Garðar tók þátt
í X-Factor-keppninni á sínum tíma
en komst ekkert allt of langt.
„Ég veit af hverju mér var hent
út. Ég er ekki að segja að ég hafi
verið besti söngvarinn en stuttu
áður en mér var hent úr keppni var
ég spurður hvort ég hefði verið í
hljómsveit. Svo var ég næstur út.
Ég skildi það ekki því Jógvan hafði
verið í hljómsveitum í Fær eyjum.
Ég var fúll í hálftíma en svo
gleymdi ég því,“ segir Garðar og
bætir við að hann hafi aldrei horft
á atvikið þegar hann er sendur
heim. - hbg
Ég er miklu betri
söngvari en dómari
Garðar Örn gefur út lag sem komst ekki í Eurovision.
FJÖLHÆFUR Garðari Erni er margt til
lista lagt. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Þú gætir eignast
nýjan Spark ef þú drífur
bílinn í skoðun!
Þeir sem koma með bílinn í skoðun fyrir lok dags þ. 22. des.
eiga möguleika að eignast stórglæsilegan Chevrolet Spark
sem verður dreginn út þ. 23. des. 2013.
Aðal iv nningur er s lp u kn unýr Chevrolet Spark árg. 20 14
HAPPDRÆTTI
GÓÐ ÞJÓNUSTAOG HAGSTÆÐ KJÖR Á SKOÐUNUM
KÖRFUBOLTI Nigel Moore spilar áfram í Domino‘s-deild karla í körfu þrátt fyrir
að Njarðvíkingar hafi látið leikmanninn fara. Örvar Þór Kristjánsson, þjálfari ÍR og
aðstoðarþjálfari Njarðvíkur í fyrravetur, var fljótur til og samdi við leikmanninn.
Þetta er í annað skiptið sem ÍR skiptir um Kana á þessari leiktíð og nú vonast
Örvar til að Nigel Moore-áhrifin verði jafn mikil í Breiðholtinu og þau voru í
Njarðvík á síðasta tímabili. Þá hækkaði sigurhlutfall Njarðvíkurliðsins um 45
prósent eftir að hann bættist í hópinn.
Njarðvíkingar töpuðu fjórum af fimm fyrstu deildarleikjum sínum í fyrra-
haust og Bandaríkjamaðurinn Jeron Belin var látinn fara eftir fjóra leiki. Nigel
Moore var fenginn til að leysa hann af en Moore var þá að koma til baka eftir
meiðsli. Nigel var ekkert alltof sannfærandi í fyrstu leikjunum en átti góðan leik
í eins stigs útisigri á erkifjendunum í Keflavík. Eftir aðeins tvo sigra í fyrstu sjö
leikjunum voru Nigel Moore og Njarðvíkurhúnarnir komnir í takt og Njarðvíkur-
liðið vann 8 af síðustu 10 deildarleikjum sínum. Njarðvík datt síðan út úr úrslita-
keppninni eftir magnaðan oddaleik í Hólminum. ÍR-ingar hafa aðeins unnið 2 af
fyrstu 11 leikjum sínum og eru að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. - óój
Verða Moore áhrifi n jafnmikil í Breiðholtinu og í Njarðvík?
ÖFLUGUR KARAKTER Nigel Moore
í leik með Njarðvík en hann spilar
með ÍR á nýju ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Knattspyrnusambönd
Íslands og Svíþjóðar hafa samið
um að landslið þjóðanna spili
vináttulandsleik hinn 21. janúar
næstkomandi og mun þessi leikur
fara fram í Abú Dabí í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum.
Þetta er ekki alþjóðlegur
landsleikjadagur og
landsliðshópurinn verður því
að mestu skipaður leikmönnum
sem leika hér á landi og á
Norðurlöndunum. Svíar spila tvo
leiki í Abú Dabí því þeir mæta
Moldavíu fjórum dögum fyrr.
Þetta verður fyrsti
janúarleikur A-landsliðs karla
í tólf ár eða síðan liðið mætti
Kúveit og Sádi-Arabíu í byrjun
janúar 2012. Ísland hefur alls
spilað sex landsleiki í janúar
og alla undir stjórn Atla
Eðvaldssonar. - óój
Fyrsti janúar-
leikur í tólf ár
2-3 TAP SÍÐAST Ísland og Svíþjóð
mætast í 15. sinn í janúar. Hér er Rúrik
Gíslason í síðasta leik þjóðanna. MYND/AFP
Norska kvennalandsliðið í handbolta er úr leik á HM í Serbíu eftir
þriggja marka tap á móti heimastúlkum í átta liða úrslitunum í gær.
Dönsku stelpurnar verða fulltrúar Norðurlanda í undanúrslitunum
eftir 31-28 sigur á Þjóðverjum. Í undanúrslitunum á
föstudaginn mætast Brasilía og Danmörk annars vegar og
Pólland og Serbía hins vegar. Brasilía og Pólland hafa aldrei
áður komist svona langt og Serbía er í undanúrslitunum
í fyrsta sinn síðan 2001.Noregur spilar ekki um verðlaun
á stórmóti í fyrsta sinn síðan Þórir Hergeirsson tók við
liðinu eftir 25-28 tap á móti Serbíu. Það fór allt í baklás hjá
norska liðinu í seinni hálfleik þegar liðið skoraði ekki mark
í tólf mínútur. Á meðan breyttu Serbar stöðunni úr 16-21 í
23-21 og héldu síðan forystunni út leikinn.
Sigurgangan á enda hjá Þóri og
norsku stelpunum