Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 98

Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 98
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 86 Allir stríðsmenn þurfa að leggja niður vopnin á endanum. Það er ekki hægt að berjast að eilífu. Ég er samt ekki hættur að berjast. Alexander Petersson HANDBOLTI „Það styttist í seinni hluta ferilsins hjá mér og að sjálf- sögðu vil ég taka þátt í öllum mótum með landsliðinu. Líkaminn segir mér því miður að ég geti ekki verið með núna,“ segir Alexander Petersson stórskytta og einn besti handboltamaður Íslands. Hann var ekki með Íslandi á HM fyrir um ári síðan og verður ekki með á EM í janúar. Hann fór líka meiddur á EM í Serbíu árið 2012 og þurfti að yfirgefa liðið er skammt var liðið á mótið. Hann gat ekkert beitt sér og hefur því í raun misst af þremur af síðustu fjórum mótum. „Það er hrikalega erfitt að sitja heima þegar strákarnir eru að spila. Ég treysti mér ekki í að horfa á leikina. Ég fer frekar út að leika mér með krökkunum mínum. Það er of erfitt fyrir mig að horfa á.“ Verri en á sama tíma í fyrra Alexander fór í axlaraðgerð á síð- asta tímabili sem átti að binda enda á hans vandræði. Það gekk ekki eftir og um ári síðar er hann nánast á sama stað. „Ég er jafnvel í verra ástandi en á sama tíma í fyrra. Ég var mjög vongóður fyrir aðgerðina en hún breytti engu. Öxlin varð verri ef eitthvað er. Nú þarf ég að vinna með öxlina á hverjum einasta degi og vonast eftir því að hún lagist eitthvað. Ég fer líklega ekki aftur í aðgerð. Ef ég fer aftur í aðgerð þá gæti ég misst liðleika í öxlinni og það gæti skapað enn stærra vanda- mál og jafnvel orðið þess valdandi að ég þyrfti að leggja skóna á hill- una. Það sem þeir löguðu síðast er aðeins hluti vandans. Vandinn er mun stærri. Þetta er algengt álags- vandamál hjá handboltamanni.“ Axlarmeiðslin á skothendi Alex- anders eru ekki ný af nálinni en ástandið hefur farið versnandi síðustu ár. Nú er staðan svo slæm að hann spilar, samt ekki alla leiki, og tekur svo takmarkaðan þátt í æfingum. „Ég æfi varla með liðinu. Spila smá vörn. Ég má ekki skjóta á markið. Það er rétt að ég má gefa sendingar. Lengra nær það ekki.“ Bryður verkjalyf fyrir leiki Til þess að skyttan komist í gegn- um leiki með liði sínu, Rhein-Neck- ar Löwen, þá þarf hún að bryðja sterk verkjalyf fyrir leiki. Það er augljóslega ekki mjög gott til lengri tíma litið. „Ég hef þurft að gera það mjög lengi núna og það er ekki gott. Lyfin virka stundum ekki og líkaminn er að versna.“ Þessi meðferð á líkamanum er augljóslega ekki góð og hefur sín áhrif á leikmanninn. „Mér líður allt í lagi daginn eftir leiki en næstu dagar þar á eftir geta verið hrikalega erfiðir. Þá get ég stundum ekki hreyft handlegg- inn almennilega. Get ekki sveiflað honum og það getur tekið nokkra daga að jafna sig,“ segir Alexander en hann bítur á jaxlinn í leikjum. „Þegar ég er á vellinum reyni ég að hugsa ekki um meiðslin heldur að hjálpa liðinu. Auðvitað finn ég til þegar ég skýt að marki. Þá er ég með verk í svona tíu sekúndur. Það er samt ekkert vandamál. Vandinn liggur í dögunum á milli leikja.“ Þetta stanslausa álag á líkam- ann með tilheyrandi verkjum og erfiðleikum hefur tekið sinn toll af leikmanninum. Bæði líkamlega og ekki síst andlega. „Það reynir á. Þetta hefur ekki alltaf verið auðvelt. Það komu nokkrir mánuðir sem voru mér miög erfiðir. Ég var þungur og oft í vondu skapi því þetta ástand var að fara í taugarnar á mér. Nú reyni ég að vera jákvæður en það er ekki alltaf auðvelt því ekkert breytist. Stundum á ég frábæran leik og læt mig dreyma um að ég sé að lagast. Svo vakna ég daginn eftir og finn að svo er alls ekki,“ segir Alexander en hann fær góðan stuðning heima fyrir. „Ég á sem betur fer frábæra konu og krakka sem styðja mig. Þau halda mér gangandi og eru dugleg að hvetja mig áfram.“ Vill spila fyrir landsliðið Alexander átti frábæran leik gegn Kiel í síðustu viku. Löwen átti síðan leik gegn Hamburg nokkrum dögum seinna og þá var ekki það sama upp á teningnum. Það er því ljóst að hann hefur ekkert að gera á mót þar sem jafnvel eru spilaðir um átta leikir á tveim vikum. Ekki minn stíll að hvíla Hvernig lítur hann annars á fram- haldið? Er eitthvað vit í því fyrir hann að reyna að halda áfram að spila með landsliðinu eins og hann er á sig kominn? „Ég hef enga trú á því að lands- liðsferlinum sé lokið. Ég vil ekki hugsa um það. Auðvitað er þetta þriðja mótið af síðustu fjórum sem ég missi af. Ég fór til Serbíu og gekk frá mér þar. Það var ekkert vit í því. Ég nýt þess að spila fyrir íslenska landsliðið og vil endilega spila fleiri leiki. Ef ég get spilað þá mun ég spila með landsliðinu. Það eru leikir í sumar og vonandi get ég hjálpað liðinu þá,“ segir Alexander. Á HM 2011 var Alexander einnig að glíma við þessi meiðsli. Þá gagnrýndi þáverandi þjálf- ari hans, Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfarann Guðmund Guðmundsson fyrir að láta Alexander spila of mikið. „Þá voru meiðslin aðeins öðru- vísi en þau eru núna. Ég hefði kannski átt að hvíla meira síð- ustu ár og fara betur með mig. Það er bara ekki minn stíll. Það er ekki ég. Allir stríðsmenn þurfa að leggja niður vopnin á endanum. Það er ekki hægt að berjast að eilífu. Ég er samt ekki hættur að berjast. Ég þarf samt smá frí núna og það verður kærkomið að geta unnið í öxlinni og hvílt hana í janúar.“ Alexander er orðinn 33 ára gamall og því farið að síga á seinni hluta ferilsins hjá honum. Hvað sér hann fyrir sér að hann geti spilað lengi í viðbót? „Eins og líkamanum líður þá gæti ég spilað í fjögur til fimm ár í viðbót. Öxlin er samt líklega ekki á sama máli. Hún vill reyna að lifa af fram á sumarið,“ segir Alexander og hlær við. henry@frettabladid.is Landsliðsferillinn er ekki búinn Alexander Petersson mun ekki spila með Íslandi á EM í janúar vegna þrálátra axlarmeiðsla. Þetta er þriðja stórmótið af síðustu fj órum sem hann missir af. Þó svo ástand leikmannsins sé ekki gott ætlar hann ekki að leggja landsliðsskóna á hilluna. Hann segist ekki geta horft á leiki landsliðsins þegar hann er ekki með. Alexander getur nánast ekkert æft og þarf að bryðja verkjatöfl ur fyrir leiki. OFT ERFITT Alexander hefur spilað kjálkabrotinn og lemstraður fyrir lands- liðið án þess þó að kvarta. Er hann því oft kallaður vélmennið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STRÍÐSMAÐUR Alexander hefur alla tíð verið afar ósérhlífinn leikmaður og fórnað sér fyrir landsliðið og félagslið. Þessi fórnfýsi hefur komið í bakið á honum þar sem öxlin er illa farinn. Hann segir það ekki vera sinn stíl að hlífa sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Gerir eins og Óli Stef Þessi mikli baráttujaxl leitar allra leiða til þess að halda ferlinum gangandi. Hann hefur meðal annars leitað í smiðju síns gamla félaga úr landsliðinu, Ólafs Stefánssonar. „Ég er farinn að hugsa mun betur um líkamann en ég gerði áður. Farinn að borða hollari mat og gera allt eins heilbrigt og hægt er. Líkaminn þarf alla hjálp sem ég get veitt honum. Þetta hefur aðeins hjálpað en ekki nóg. Ég mun samt halda áfram á þessari braut. Óli Stef var í vandræðum með öxlina á sér og annað. Um leið og hann breytti mataræðinu lagaðist allt hjá honum og hann náði fyrri styrk. Það sem meira er þá spilaði hann til fertugs. Hann spilaði meira segja síðasta leikinn nánast án þess að vera í skóm. Það segir margt um hversu góðu formi hann var í,“ segir Alexander léttur og hlær við.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.