Fréttablaðið - 19.12.2013, Blaðsíða 102
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 90
„Ég ræddi við hann um íslenskan
körfubolta og nýjan þátt um Saul
Goodman,“ segir körfuboltakapp-
inn Justin Shouse um samtal sitt
við grínistann Bill Burr sem þeir
áttu í Bláa lóninu á sunnudag-
inn, rétt áður en Burr hélt uppi-
stand sitt í Hörpunni. Shouse var
í Bláa Lóninu ásamt vini sínum
Brad Trocki sem var staddur hér
á landi í heimsókn.
„Við sáum Bill Burr þarna um
leið og við komum. Brad ákvað að
vinda sér upp að honum og byrjaði
að spjalla. Þeir sátu þarna undir
fossi og ræddu saman í mestu
makindum,“ útskýrir Shouse.
Hann blandaði sér í samræðurnar
og segir Bill Burr hafa verið ákaf-
lega skemmtilegan. „Hann spurði
margra spurninga og var áhuga-
samur um íslenskan körfubolta.
Hann sagði að það væri betra að
hitta þriggja stiga skoti „í and-
litið“ á andstæðingi en að segja
góðan brandara.“
Þeir ræddu einnig um hlutverk
Bills Burr í Breaking Bad-þátt-
unum og hvort hann hefði áhuga
á að vera með í nýjum þáttum
sem fjalla um Saul Goodman,
eina vinsælustu persónu Break-
ing Bad.
„Hann talaði mikið um þættina
og sagðist endilega vilja vera í
þessum nýju þáttum.“ Burr spurði
svo vinina hvort þær ætluðu ekki
örugglega á uppistandið. „Við viss-
um ekki alveg hverju við áttum
að svara, því við vorum ekki með
miða. En svo bauðst hann til að
setja okkur á gestalista, sem var
magnað. Uppistandið var hrein-
lega frábært, maðurinn er ótrú-
lega fyndinn.“ - kak
Justin Shouse á gestalista grínistans Bill Burr
Landsliðsmaðurinn Justin Shouse spjallaði við Bill Burr í Bláa Lóninu um íslenskan körfuknattleik.
SPJÖLLUÐU LENGI Justin Shouse segir
Bill Burr ákaflega skemmtilegan mann.
„Í skammdeginu hlusta ég á Heart-
break express með Dolly Parton á
vínyl.“
Eva Rún Snorradóttir ljóðskáld.
BESTA PLATAN
„Skemmtarinn hefur átt undir höggi að sækja að
undanförnu og Geirmundur hefur verið einráður á
skemmtaramarkaðnum,“ segir Heiðar Örn Kristjáns-
son, söngvari og gítarleikari Botnleðju, sem kemur
fram á Jólaplöggi Record Records um næstu helgi.
Heiðar er þó eini meðlimur sveitarinnar sem kemur
þar fram. „Ég verð þarna með gítarinn en Þröstur
skrítni á Skerseyrarveginum verður mér til halds og
trausts á skemmtaranum,“ útskýrir Heiðar.
Heiðar og Þröstur ætla leika lög Botnleðju í
skemmtaraútgáfu en einnig má segja að útgáfan verði
léttsvinguð. „Halli trommari og Raggi bassaleikari
komust ekki á Jólaplöggið og var skemmtarinn því
besta lausnin en þetta verður mjög skemmtilegt.“
Þetta verður líklega í eina skiptið sem aðdáendur
Botnleðju geta léð skemmtaraútgáfunni eyra. Jóla-
plögg Record Records fer fram næstkomandi laugar-
dagskvöld á Harlem og á Gamla Gauknum. - glp
Botnleðja í keppni við Geirmund
Botnleðja tekur lögin sín í skemmtaraútgáfu á Jólaplöggi Record Records.
SKEMMTARINN KLÁR Helstu slagarar Botnleðju munu
heyrast í skemmtaraútgáfu á Jólaplöggi Record Records um
helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Orðabelgur er fjörugt og fræðandi spil
fyrir alla fjölskylduna
Eftirtaldir sölustaðir eiga enn eintök:
Penninn Eymundsson, Spilavinir, A4, Hagkaup, Krumma og Mál og menning.
ðabelgur Or,,Borðspilið
pnað spil heper bráðvel
enskukunnáttuá íslsem reynir
a.“ spilþeirra sem
.12. 2012).(JAÓ, Mbl. 23
Spilið felur í sér margvíslegar þrautir og áskoranir
sem tengjast orðum og orðasamböndum.
Orðabelgur kom út
fyrir síðustu jól
og er upplagið
á þrotum.
„STÓR-
SKEMMTILEG BÓK
FYRIR STRÁKA.“
ARI ELDJÁRN, GRÍNISTI
1. PRENTUN UPPSELD!2. PRENTUN Á LEIÐ Í VERSLANIR
„HRIKALEGA
SKEMMTILEG
OG GAGNLEG
BÓK!“
ARON PÁLMAR
SSON,
HANDBOLTAS
TRÁKUR
„Þetta lag er algjört partí, ég er
ótrúlega ánægður með það. Í raun
kom aldrei annað til greina en að
það yrði frumsamið,“ segir Steinþór
Hróar Steinþórsson, betur þekkt-
ur sem Steindi Jr., um lokalagið í
Áramótaskaupinu í ár, sem ber titil-
inn Springum út. Steindi og Bagga-
lútur munu leiða saman hesta sína
og njóta fulltingis lagasmiðanna
Stop Wait Go, sem voru Steinda
innan handar með mörg hans vin-
sælustu laga, til dæmis Djamm í
kvöld og Dansa það af mér. Steindi
mun syngja lagið ásamt Guðmundi
Pálssyni úr Baggalút og Ilmi Krist-
jánsdóttur. „Í stuttu máli fjallar
lagið um að strengja áramótaheit.
Við Íslendingar erum einstaklega
góðir í því að lofa öllu fögru síð-
ustu klukkustundir hvers árs, en
svo er allt annað hvort við förum
eftir því,“ segir Steindi glaðbeitt-
ur og bætir því við að margir þjóð-
þekktir einstaklingar muni
koma fram í laginu. Bagga-
lútur og Steindi eru þekkt-
ir fyrir lög sín sem mörg
hver hafa notið gríðar-
legra vinsælda. Lög
Steinda eru samtals með
um þrjár milljónir flett-
inga á vefsíðunni You-
Tube og hárbeittar plöt-
ur Baggalúts hafa selst
í bílförmum. „Ég geri þá
kröfu að lagið ómi í öllum
áramótapartíum og bara
langt fram á nýja árið,“
segir Steindi.
Steindi er einn
níu handrits-
höfunda
Áramótaskaupsins. Hann segir
vinnuna við skaupið hafa verið
skemmtilega tilbreytingu frá
vinnunni við þættina hans, Steind-
inn okkar. „Aðalmunurinn er sá að
maður fær ákveðin mál á borðið,
þegar maður skrifar Skaupið, og
þarf að skrifa brandara úr því sem
helst höfðar til allra. En ég er vanur
því að skapa brandarana algjörlega
sjálfur og búa til karaktera, sem má
skilgreina sem hlutlaust grín. Svo
þetta var skemmtileg áskorun,“
útskýrir Steindi. Hann er afar
ánægður með afrakstur-
inn; finnst skaupið vera
gott. „Það var rosalega
góður andi yfir skrif-
teyminu, góð stemn-
ing á setti. Ég held að
þetta sé þrususkaup.
Mjög fjölbreytt. Við
reyndum að hafa
pólitíkina í algjöru
lágma rk i enda
mörg önnur skemmti-
legri mál að tækla.“
Hann vonast til þess að
skaupið höfði til allra.
„Mér finnst eins
og þ að
hafi
tíðkast að annar helmingur þjóð-
arinnar fíli skaupið og hinn helm-
ingurinn ekki. Ég vona að við náum
að breyta því. Þetta skaup er fjöl-
breytt og það ætti klárlega að vera
eitthvað þarna fyrir alla. Ég vona
innilega að landsmenn á öllum aldri
skemmti sér konunglega yfir skaup-
inu og enginn verði pirrípú, annars
fer ég í felur í þrjá daga þangað til
allir verða búnir að gleyma skaup-
inu,“ segir Steindi.
kjartanatli@frettabladid.is
Steindi og Baggalútur
með lokalag skaupsins
Lokalag Áramótaskaupsins í ár verður frumsamið. Steindi Jr. vonar að lagið ómi
í öllum áramótapartíum. Hann segir vinnu við skaupið skemmtilega áskorun.
LOKALAGIÐ Í SKAUPINU
➜ Ber titilinn Springum út.
➜ Sungið af Steinda Jr., Guðmundi Pálssyni úr Baggalúti
og Ilmi Kristjánsdóttur.
➜ Fjallar meðal annars um að strengja áramótaheit.
➜ Margir þjóðþekktir einstaklingar koma fram.
Ég vona innilega að
landsmenn á öllum aldri
skemmti sér konunglega
yfir skaupinu og enginn
verði pirrípú.
Við reyndum að
hafa pólitíkina í algjöru
lágmarki enda mörg
önnur skemmtilegri mál
að tækla.
Þetta lag er algjört
partí, ég er ótrúlega
ánægður með það. Í raun
kom aldrei annað til
greina en að það yrði
frumsamið.