Fréttablaðið - 13.01.2014, Síða 2
13. janúar 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
VIÐSKIPTI „Við framleiðum sex til
átta tegundir af lífrænum bjór
að belgískri fyrirmynd og þrjú
íslensk fyrirtæki sem vilja flytja
þá til Íslands hafa haft samband
við mig,“ segir Auðunn Sæberg
Einarsson.
Hann er einn fjögurra eigenda
örbrugghússins Logsdon Farm-
house Ales, sem er í Hood River-
sýslu í Oregon í Bandaríkjunum.
Brugghúsið hóf framleiðslu árið
2011 og þar er bjórnum tappað á
kampavínsflöskur.
„Okkar vinsælasta vara, bjór-
inn Seizoen Bretta, vann til verð-
launa árið 2012 á stærstu bjórhátíð
Bandaríkjanna, Great American
Beer Festival, í flokki svokall-
aðra sveitabjóra. Þá fór allt af
stað bæði hér innanlands og úti um
allan heim,“ segir Auðunn. Hann
segir að framleiðsla brugghússins
verði að öllum líkindum tvöfölduð
á árinu.
„Við þurfum að auka framleiðsl-
una því bæði New York og Chi-
cago eru að biðja um bjór og við
höfum einnig fengið fyrirspurnir
frá Englandi og Danmörku. Ann-
ars er bjórinn seldur á vestur-
strönd Bandaríkjanna, í Vermont-
ríki á austurströndinni og svo í
Kanada.“
Auðunn flutti til Bandaríkjanna
árið 1980 og hefur búið þar síðan
fyrir utan þrjú ár á tíunda ára-
tugnum þegar hann bjó hér á
landi. Hann starfaði áður í veit-
ingageiranum og kynntist þá
David Logsdon, lífefnafræðingi
og öðrum eiganda brugghússins.
„David fékk mig út í þetta. Hann
er þekktur í bjórheiminum og
stofnaði áður og rak þekkt brugg-
hús hér í Oregon. Ég vissi að hann
væri sterkur í þessu og hikaði því
ekki við að fara með honum út í
þetta ævintýri, enda kom í ljós að
hann veit nákvæmlega hvað hann
er að gera,“ segir Auðunn. Hann
og David ætla að koma hingað til
lands í lok febrúar og taka þátt í
árlegri bjórhátíð Kex Hostels.
Auðunn kemur lítið að fram-
leiðslunni sjálfri en hann sér um
markaðssetninguna ásamt því að
teikna merkimiðana sem fara utan
á flöskurnar.
„Ég er í brugghúsinu fjóra daga í
viku yfir sumartím-
ann. Þá vinn ég við
átöppun og annað
slíkt. Ég er hins
vegar enginn sér-
fræðingur í því að
búa til bjór, ég er
vínmaður,“ segir
Auðunn og hlær.
haraldur@frettabladid.is
Bruggar lífrænan
gæðabjór í Oregon
Auðunn Sæberg Einarsson er einn af eigendum örbrugghússins Logsdon Farm-
house Ales í Oregon-ríki í Bandaríkjunum. Brugghúsið hefur unnið til verðlauna
og bjórinn er seldur í kampavínsflöskum. Þrjú íslensk fyrirtæki bítast um bjórana.
Í OREGON Félagarnir Charles Porter bruggari, David Logsdon og
Auðunn fyrir utan brugghúsið. MYND/AUÐUNN SÆBERG.
FLAGGSKIPIÐ Auðunn
teiknar myndirnar á
merkimiðunum.
Hafa starfsmenn Arion-banka
soltið frá hruni?
Nei, nei. En við munum klárlega
gera okkur mat úr þessu.
Arion-banki fékk lánshæfismatið BB+ frá
lánshæfismatsfyrirtækinu Standard and
Poor‘s. Arion-banki er fyrsti íslenski bankinn
til að fá mat frá þessu fyrirtæki frá því fyrir
hrun.
SÝRLAND, AP Hátt í sjö hundruð hafa
látist í bardögum uppreisnar manna
við herskáa íslamista í norðurhluta
Sýrlands. Þar á meðal eru um eitt
hundrað óbreyttir borgarar.
Mörg hundruð manns hafa
að auki flúið átökin sem hófust
fyrir tíu dögum síðan. Þau hafa
nú náð til borga og bæja í fjórum
sýslum í norðurhluta landsins.
Hóparnir eru báðir andvígir ríkis-
stjórn Bashar al-Assads, forseta
Sýrlands. Íslamistarnir tilheyra
hreyfingunni ISIL, en liðsmenn
hennar aðhyllast hugmynda-
fræði Al-Kaída. Hinn hópurinn
samanstendur af liðsmönnum úr
nokkrum sveitum uppreisnar-
manna.
Á sama tíma er ekkert lát á
bardögum uppreisnarmanna við
stjórnarher landsins. Liðsmenn
hersins náðu um helgina að fella
um tuttugu uppreisnarmenn í bar-
dögum í sýrlensku borginni Homs.
Yfir 250 þúsund Sýrlendingar sitja
fastir á átakasvæðum og hungurs-
neyð í landinu vofir yfir. - hg
Bardagar uppreisnarmanna og herskárra íslamista í Sýrlandi standa enn yfir:
Um 700 létust á níu dögum
HART BARIST Sumar sveitir
uppreisnar manna berjast nú bæði við
stjórnarher Sýrlands og hóp herskárra
íslamista. NORDICPHOTOS/AFP
SLYS Sextán ára stúlka lést þegar
fólksbíll sem hún var farþegi
í skall framan á flutningabíl í
Norðurárdal við Fornahvamm.
Ökumaður bílsins, átján ára
gamall maður, var fluttur alvar-
lega slasaður með þyrlu Land-
helgisgæslunnar á slysadeild
Landspítalans í Reykjavík.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Borgarnesi rann
bíllinn til og hafnaði framan á
litlum flutningabíl sem kom úr
norðurátt. Ökumann og farþega
flutningabílsins sakaði ekki. - eb
Stúlka lést í umferðarslysi:
Banaslys í
Norðurárdal
DÓMSMÁL Athugun innanríkis-
ráðuneytisins og rekstrarfélags
stjórnarráðsins staðfestir að
trúnaðargögn hælisleitenda hafi
einungis farið til þeirra sem sam-
kvæmt lögum eigi rétt á þeim.
Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá innanríkisráðuneytinu í
tilefni af kæru lögmanna hælis-
leitenda á hendur ráðuneytinu.
Ráðuneytið mun á næstu dögum
svara fyrirspurn ríkissaksóknara
vegna málsins. - eb
Leki úr innanríkisráðuneyti:
Segja lög um
trúnaðargögn
hafa verið virt
AFGANISTAN Mikil reiði ríkir í A fganistan
eftir að bandarískir hermenn skutu
fjögurra ára dreng til bana í Helmand-
héraði á föstudag.
Yfirmenn í bandaríska hernum hafa
reynt að réttlæta atvikið og sagt mikið
sandfok hafa verið á staðnum. Því hafi her-
mennirnir ekki séð nægilega vel og fyrir
mistök talið barnið vera óvin. Frá þessu er
greint á vef breska blaðsins Telegraph.
Atlantshafsbandalagið (NATO) hefur lýst
því yfir að það muni rannsaka aðgerðina
en forseti Afganistan, Hamid Karzai,
hefur fordæmt aðgerðina, sem hefur
aukið á spennu milli ríkjanna. Hann sagði
afgönsk stjórnvöld ítrekað hafa mótmælt
aðgerðum bandaríska hersins gegn óbreytt-
um borgurum.
Karzai hefur einnig krafist þess að
bandaríski herinn hætti öllum hernaðar-
aðgerðum á afgönsku yfirráðasvæði sem
fari fram án aðkomu yfirvalda þar í landi.
- eh
Fjögurra ára afganskur drengur varð fyrir skotum liðsmanna Bandaríkjahers:
Hermenn skutu barn til bana
FORSETINN Hamid Karzai fordæmdi aðgerð Bandaríkjahers.
NORDICPHOTOS/AFP.
KÍNA, AP Bærinn Dukezong í
Tíbet brann til kaldra kola í stór-
bruna á laugardag. Bærinn var
yfir þúsund ára gamall. Eldurinn
braust út aðfaranótt laugardags
og logaði í um tíu tíma.
Afar illa gekk að slökkva eld-
inn, því slökkviliðsbílar komust
ekki um þröngar götur bæjarins.
Hundruðir bygginga brunnu og
mikið af sögulegum minjum eyði-
lögðust í eldinum.
Enginn lést í brunanum svo
vitað sé. - ue
Þúsund ára bær brann:
Bærinn brann
til kaldra kola
BANDARÍKIN, AP Leyfi til að veiða svartan nashyrning í Namibíu var
selt á uppboði í Dallas í Bandaríkjunum fyrir jafnvirði 41 milljónar
íslenskra króna. Fimm slík leyfi eru veitt á ári í Namibíu, og þetta er í
fyrsta skiptið sem leyfið er selt fyrir utan landsteinana.
Ágóðanum af sölu á veiðileyfunum er varið til að vernda stofninn.
Svartir nashyrningar eru á lista yfir dýr í bráðri útrýmingarhættu.
Um fjörutíu manns mótmæltu fyrir utan höfuðstöðvar safaríklúbbs-
ins þar sem uppboðið fór fram á meðan á því stóð. Félagið sem stóð að
uppboðinu segir að nashyrningurinn sem leyfið fékkst til að veiða sé
of gamall til undaneldis. Hann sé að auki hættulegur öðrum í hjörð-
inni. - ue
Nashyrningar í útrýmingarhættu veiddir til að verja stofninn:
Veiðileyfi selt á 41 milljón króna
MÓTMÆLTU Dýraverndunarsinnar segja að veiðileyfin sendi röng skilaboð til
almennings. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS