Fréttablaðið - 13.01.2014, Blaðsíða 46
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar & námskeið MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 20148
GRÓSKA Í FATAHÖNNUN
Fatahönnun er vinsælt fag hjá
bæði stúlkum og piltum. Fagið
er kennt í Listaháskóla Íslands.
Linda Björg Árnadóttir er fagstjóri
deildarinnar. Samkvæmt því sem
segir á heimasíðu skólans leggur
fatahönnunardeild skólans áherslu
á evrópska avant-garde hefð í tísku.
Breskir tískuskólar, sem þykja þeir
bestu í heimi, eru fyrirmynd en
deildin hefur einnig sterk tengsl við
París og fara nemendur fatahönn-
unardeildar þangað í starfsnám.
Fatahönnunardeildin leggur áherslu
á tengsl við atvinnulífið og iðnaðinn
og vinnur ýmis verkefni fyrir íslensk
fyrirtæki í fataiðnaði. Náminu lýkur
með BA-prófi.
Mikil gróska er í þessari grein hér
á landi. Íslensk fatahönnun er eftir-
sótt. Margir íslenskir fatahönnuðir
hafa gert það gott erlendis. Árið
2001 var stofnað fagfélag fatahönn-
uða. Félagið hefur tekið þátt í
HönnunarMars frá upphafi með
samsýningum þar sem sýnt er úrval
hönnunar félagsmanna.
NÁMSTÆKNI FYRIR BÖRN
Enginn fæðist með kunnáttuna til
að læra. Foreldrar þurfa að kenna
börnum sínum að læra eins og þeir
kenna þeim að hjóla. Í báðum til-
fellum þarf fyrst að sýna barninu réttu
aðferðirnar og svo þarf að æfa þær.
Gott er ef barnið kemst upp á lag með að
nota ákveðnar námstækniaðferðir eins og
til dæmis þessar hér.
Að fylgjast með í kennslustundum.
Að taka niður glósur.
Að skipuleggja verkefnin.
Að biðja um hjálp ef þörf er á.
Að fá góðan nætursvefn.
Vel vakandi
Bóklestur langtímum saman getur valdið
óheyrilegri syfju. Best er að forðast að læra á
stöðum sem eru of notalegir og valda almennri
værð og syfju. Til að halda augnlokunum
opnum og huganum vökulum er vænlegast að
lesa við borð og sitja á hörðum stól. Þá er gott
ráð að skvetta köldu vatni á andlitið ef svefn-
inn sækir að, eða fara út undir bert loft til að
hoppa, gera armbeygjur eða annað sem hressir
mann við. Ef allt um þrýtur er ráðlagt að leggja
sig í óþægilegum stól í 20 mínútur því ellegar er
hætta á að þreytan yfirvinni góðan ásetning og
nemandinn sofi til morguns.
skráðu þig núna
D A L E C A R N E G I E N Á M S K E I Ð
Komdu í hóp með þeim sem ná árangri. Njóttu þín betur í mannlegum samskiptum og lærðu að
hafa góð áhrif á aðra. Á hverjum degi sérðu fólk sem skarar fram úr í athafnalífinu, í stjórnsýslu,
íþróttum, fjölmiðlum eða menningu og listalífi. Þetta fólk er í hópi þeirra 20.000 Íslendinga sem
notið hefur góðs af þjálfun Dale Carnegie. Skráðu þig núna og nýttu hæfileika þína til fulls.
Ármúla 11, 108 Reykjavík ı Sími 555 7080 ı www.dale.is
Meira sjálfstraust Betri samskipti Örugg framkoma Leiðtogahæfni
555 70 80
H R I N G D U N Ú N A EÐA S K R Á Ð U Þ I G Á
w w w.d a l e . i s
// Ókeypis kynningartímar fyrir ungt fólk
10-15 ára
12. janúar, 21. janúar og 27. janúar
16-25 ára
12. janúar, 21. janúar og 27. janúar
Skráðu þig á dale.is/ungtfolk
// Ókeypis kynningartímar fyrir fullorðna
Þriðjudaginn 14. janúar
Fimmtudaginn 16. janúar
Fimmtudaginn 23. janúar
Laugardaginn 25. janúar
Sjáðu fleiri dagsetningar kynningartíma á dale.is
Dale Carnegie námskeiðið kom mér virkilega á óvart. Ég átti von
á að öðlast meira öryggi til að tala fyrir framan hóp af fólki og
bæta færni mína í mannlegum samskiptum. En námskeiðið gaf
mér svo miklu meira. Meðal annars lærði ég aðferðir til að draga
úr streitu og að bæta minnið. Mikilvægast var þó að ég lærði að
vera sanngjarnari við sjálfa mig og kynntist frábæru fólki.
Næsta markmið er að koma eiginmanninum og unglingunum
á námskeið.
// Kolbrún Björnsdóttir (Kolla), þáttastjórnandi á Stöð 2
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
D
A
L
6
71
54
0
1/
14
Til að halda
augnlokunum
opnum og huganum
vökulum er vænlegast að
lesa við borð og sitja á
hörðum stól. Þá er gott
ráð að skvetta köldu
vatni á andlitið ef
svefninn sækir að, eða
fara út undir bert loft til
að hoppa
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3