Fréttablaðið - 13.01.2014, Blaðsíða 17
Ég tók þátt í sýningu Handverks og hönnunar í Ráðhúsinu síðastliðið haust og eftir hana setti ég Golu
á laggirnar. Nafnið Gola tengist textíl í
mínum huga, líkt og þegar þvotturinn
bærist í golunni. Henni fylgir líka nota-
leg tilfinning um milt sumar,“ útskýrir
Margrét Oddný Leópoldsdóttir textíl-
hönnuður, en hún hannar símunstur
sem prentuð eru á löbera og á pappír.
Margrét hafði lengi ætlað sér að
vinna munstur og prenta á tau en hugn-
aðist ekki að leita út fyrir landsteinana
eftir prentþjónustu. Þegar slík þjónusta
bauðst á Íslandi í haust átti hún safn af
munstrum sem hún dreif í prentun.
„Ég hafði notað sumarið til að búa til
munstur upp úr náttúrunni í heimahög-
unum, Grábrókarhrauni í Norðurárdal,
og þegar Textílprentun Íslands var
opnuð fór ég af stað. Ég gerði munstur
út frá hreindýramosa í nokkrum út-
færslum og línuteikningu upp úr venju-
legum mosa sem ég stækkaði upp. Þá
gerði ég líka munstur út frá smágerð-
um smjörvíði sem varð þó að stór-
gerðri línuteikningu,“ segir Margrét og
viðurkennir að vera „alltaf með nefið
ofan í jörðinni“.
„Ég hef tekið ljósmyndir af nátt-
úrunni í áratugi og mun líklega alltaf
leita innblásturs í hana.“
Margrét leggur áherslu á munstur-
gerð og þó hún saumi sjálf löberana
segist hún ekki ætla að einskorða sig
við borðdúka.
„Gola mun ekki endilega snúast um
textílvörur heldur allt mögulegt en
stefnan er að selja munstruð efnin í
metratali. Þá getur fólk saumað úr því
það sem það vill. Ég reyni að hanna
alltaf mismunandi útgáfur svo fleiri
finni eitthvað sem hentar. Núna er ég
að þróa nýtt munstur upp úr mosanum
sem verður frekar dökkt.“
Margrét lærði textílhönnun við LHÍ
og kenndi um tíma munsturgerð við
skólann. Henni er umhugað um að
munsturgerð og textílprentun festi
sig í sessi hér á landi og er með nám-
skeið í munsturgerð í bígerð. „Ég veit
ekki til þess að neinn annar sé að
hanna munstur á efni og selja í metra-
vís á landinu í dag en á námskeiðinu
langar mig að kenna fólki að vinna
eigin munstur sem það getur svo látið
prenta,“ segir hún.
Nánar má forvitnast um hönnun
Margrétar á www.gola.is.
■heida@365.is
MOSI Í MUNSTUR
ÍSLENSK HÖNNUN Margrét Oddný Leópoldsdóttir textílhönnuður vinnur
símunstur upp úr mosanum í Grábrókarhrauni og prentar á tau.
MUNSTURGERÐ
Margrét Oddný
Leópoldsdóttir hannar
símunstur og lætur
prenta á tau í metravís.
MYND/GVA
ÍSLENSK HÖNNUN
Smjörvíðir og hreindýra-
mosi eru meðal munstra
á efnum Margrétar.
Efnin eru prentuð hjá
Textílprentun Íslands.
MYND/GVA
12 DRAUMAR ARKITEKTA
Nú stendur yfir sýning í anddyri Norræna hússins þar sem finnska arkitekta-
stofan friman.laaksonen arkkitehdit sýnir óframkvæmdar draumsýnir og verk.
Friman.laaksonen AB er í eigu tveggja arkitekta
sem búsettir eru í Helsinki, Kimmo Friman og Esa
Laaksonen, en þeir eru báðir meðlimir í Félagi
finnskra arkitekta; SAFA.
Veldu öruggt start með TUDOR.