Fréttablaðið - 13.01.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 13.01.2014, Blaðsíða 20
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar og námskeið MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 20142 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbirgir@365.is, s. 512-5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Rannsóknarspurning mín var hvort sölufólk upp-lifði kynbundinn mun á kauphegðun ferðafólks í minja- gripaverslunum á Íslandi,“ segir Ingibjörg sem sjálf hefur unnið í ferðaþjónustu lengi og hefur rekið gistihúsið Ta n g a h ú s á Borðeyri, ásamt Á s d í s i G u ð - mundsdóttur í níu ár. Hún ákvað að skrifa um þetta efni hún þegar hún sat kúrsinn Minjagripir og alþýðulist hjá Dr. Guðrúnu Helgadóttur. „Vitað er að mikil tengsl eru milli ferðalaga og minjagripaverslunar. Þegar ég fór að kynna mér málið komst ég að því að til eru nýlegar erlend- ar rannsóknir um kynbundinn mun á kauphegðun ferðamanna á minjagripum en hins vegar engar hér á landi. Ég ákvað því að gera eigindlega rannsókn með er- lendu rannsóknirnar sem fræði- legan bakgrunn,“ lýsir Ingibjörg. Hún sendi f y rirspurnir á nok k rar minjagripaverslanir þar sem hún falaðist eftir viðtali við reynslumesta starfsfólkið og fékk að lokum viðtöl við sex konur sem samanlagt höfðu 71 árs starfsaldur. „Ég útbjó hálf- opinn spurningalista og tók við- töl í gegnum síma,“ lýsir Ingibjörg sem var mjög ánægð með svörin, enda voru konurnar fullar af reynslu og áhuga. Konur lengur að ákveða sig Í ritgerð Ingibjargar kemur fram að sölufólk upplif ir nokkurn mun milli kynja þegar kemur að kauphegðun, aðsókn, tíma sem er varið til kaupanna, ástæðu þeirra og því hvernig valið farið fram. „Þetta samræmist að mestu niður stöðum erlendu rann- sóknanna nema þegar kemur að ástæðu kaupanna. Í erlendu rannsók nunum kemur fram að gjafaáform eru sterkari hjá konum en körlum. Hér á landi virðast karlar skora hærra á þeim skala. Þeir virðast aðallega versla minjagripi til gjafa en konur jafnt til gjafa og til minningar,“ segir Ingibjörg. Mun f leiri konur eru meðal viðskiptavina en karlar en mun- urinn er þó ekki afgerandi. „Þá er munur á því hvernig konur og karlar bera sig að við kaup- in. Konur verja meiri tíma í að skoða og máta og velta fyrir sér ný tingar möguleikum meðan karlar eyða styttri t íma, eru ákveðnari og vita hvað þeir vilja,“ segir Ingibjörg. Karlar leita einnig mest að merktum vörum á borð við boli og húfur með áletr- un en konur horfi víðar yfir svið- ið og horfi á minjagripi með nota- gildi í huga. „Þá leita þær frekar eftir aðlaðandi gjafaumbúðum og útlitið virðist skipta þær meira máli.“ Íslenskir jólasveinar vinsælir Að mati sölukvennanna sem Ingibjörg ræddi við hefur orðið mikil aukning í minjagripa- sölu samhliða síauknum ferða- mannastraumi. „Þær greina frá því að eftirspurn eftir þjóðlegum og íslenskum munum með teng- ingu við áfangastað hefur aukist mikið,“ segir Ingibjörg en bendir á að stór hluti minjagripa í dag sé innfluttur. „Konurnar minntust allar á hve mikil eftirspurn væri eftir ís- lenska jólasveininum, bæði stytt- um og bókum. Þá þekkja ferða- menn iðulega vel til jólasvein- anna og virðast hafa kynnt sér þá áður en þeir komu til landsins,“ greinir Ingibjörg frá. Hún segir mikilvægt að minjagripaverslanir bjóði upp á vandaða minjagripi við hæfi ólíkra markhópa. „Það er mikilvægt fyrir eigendur þess- ara verslana að gera ráð fyrir að kauphegðun viðskiptavinanna er kynjuð,“ segir hún . Ánægð með fjarnámið Ingibjörg mun útskrifast með BA-gráðu í ferðamálafræði í vor en hún hefur stundað fjarnám við Háskólann á Hólum. „Ég fer í staðbundnar lotur og fer því á Hóla tvisvar til þrisvar á önn í tvo til þrjá daga í senn. Það er yndis- legt að koma á staðinn og hitta hópinn. Starfsfólkið er frábært og mjög vel haldið utan um okkur fjarnemana. Þá hefur námið mikil tengsl við praktíkina og kúrsarnir eru fjölbreyttir,“ segir Ingibjörg sem einnig er sauðfjárbóndi með 500 fjár á Kollsá II í Hrúta- firði. Hún telur ekki loku fyrir það skotið að hún muni halda áfram í námi í framtíðinni. „Það er aldrei of seint að læra,“ segir Ingibjörg glaðbeitt en sjálf heldur hún upp á fimmtugsafmæli í vor. Kannaði kauphegðun ferðafólks Kauphegðun ferðafólks í minjagripaverslunum á Íslandi er mismunandi eftir kyni. Þessu komst Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir að í BA-ritgerð sinni í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum. Kauphegðun ferðafólks er mismunandi eftir kyni. NORDICPHOTOS/GETTY Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir. Heilabúið þarf eldsneyti þegar setið er langtímum saman yfir skóla- bókum. Þá er mikilvægt að vanda valið á nasli og millibita. Hér koma dugandi heilræði fyrir metnaðarfulla námsmenn. ● Líkaminn þarfnast eldsneytis allan daginn. Borðið því reglulega og jafnt yfir daginn. ● Forðist að eiga snakk, ídýfur og sælgæti til að freistast til að borða. ● Veljið hollt snarl á kvöldin og borðið létt til að seðja sætindaþörfina. Eigið til nóg af freistandi ávöxtum, heilkornabrauði, osti, jógúrti og súpum í stað íss, kjúklingavængja og sætabrauðs. ● Standið upp á klukkutíma fresti og farið á stjá til að skerpa einbeit- ingu og örva blóðflæði, efnaskipti og súrefnisflæði til heilans. Borð- ið ekki til að halda ykkur vakandi. ● Takið hlé til að borða í stað þess að maula umhugsunarlaust yfir skólabókunum. Finnið til raunverulegs hungurs og finnið til ánægjulegrar seddu eftir skipulagða máltíð. ● Skammtið á diska í stað þess að borða beint upp úr umbúðum. Pokinn verður þá tómur á örskotsstundu og stórar máltíðir veita blóðstreymi til maga í stað heila. ● Prótínrík fæða skerpir hugsun; kjöt, baunir, mjólkurafurðir, prótín- stangir og hnetur. Ofneysla á kolvetnum veldur syfju. ● Drekkið nóg af vatni og forðist orkuríka eða koffínríka drykki sem geta dregið úr gæðum svefns og aukið streitu. ● Forðist þungar máltíðir fyrir svefninn og borðið helst ekkert tveimur tímum fyrir háttinn til að forðast melt- ingartruflanir og þreytu að morgni. Best er að borða litla skammta með reglulegu millibili yfir daginn. ● Heitur matur og drykkir valda betri seddu. Hafið því skyndisúpur eða grauta á takteinum. ● Forðist kyrrsetu. Hún kallar á snakk og óhollustu en hreyfing kallar á hollustu. Nartað yfir skruddunum Þá er munur á því hvernig konur og karlar bera sig að við kaupin. Konur verja meiri tíma í að skoða og máta og velta fyrir sér nýtingarmöguleikum meðan karlar eyða styttri tíma, eru ákveðnari og vita hvað þeir vilja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.