Fréttablaðið - 13.01.2014, Blaðsíða 53
MÁNUDAGUR 13. janúar 2014 | MENNING | 21
Fáðu ÚTRÁS fyrir DansGleðina!
Öll skráning & nánari upplýsingar á
dancecenter.is. Facebook/DanceCenter RVK.
dancecenter@dancecenter.is – Sími 777 3658
Vorönnin hefst 13. janúar með sjóðheitum tímum hjá
DanLidi DanceCenter & erlendum gestakennurum
OPIÐ HÚS fyrstu vikuna í REYKJAVÍK þegar önnin hefst!
Vertu með frá byrjun! Skráning á dancecenter.is! Glæsileg sýning í lokin!
REYKJAVÍK-KÓPAVOGUR-GARDABÆR-HAFNARFJÖRDUR
Break | Hip Hop | NÝTT! YogaMoves & LatinFittness | JazzFunk |
Nútímadans | Jazzballett | Barnadansar: Mini-Hip Hop, Jazzballett, ballett
KENNSLUSTAÐIR
REYKJAVÍK:
Grensásvegur 14,
Mjóddin -
Álfabakka 14, 3.hæð
KÓPAVOGI:
HK, 2.hæð,
Digranesvegi
GARÐABÆ:
Ásgarði, 2.hæð
HAFNARFJÖRÐUR:
FH, Kapplakrika
YogaMoves
Kolla
Júlí
Nína
Lilja JavierGuðrún Bryndís
Halla
BÆKUR ★★★★ ★
Kamilla vindmylla
Hilmar Örn Óskarsson
BÓKABEITAN
Kamilla vindmylla og leiðinn úr
Esjunni, eftir Hilmar Örn Óskars-
son, er önnur bókin um hina mál-
glöðu og bráðskemmtilegu Kamillu
Írisi Hörpudóttur Thomsen. Í upp-
hafi bókar er hún á leið heim frá
föður sínum, sem býr í Noregi, og
fær sæti við hliðina á jakkafata-
klæddum viðskiptamanni. Sá er
ekki jafnspenntur fyrir því að halda
uppi samræðum og hún, sem talar
alla leiðina til Íslands. Þarna fá þeir
lesendur, sem ekki þekkja Kamillu
úr fyrri bók, tækifæri til að kynnast
henni rækilega.
Sagan fjallar um baráttu vísinda-
mannsins Elíasar Emils, Kamillu
og vina þeirra við óþokkann Júlíus
Janus, sem hefur stolið einni af upp-
finningum Elíasar; sendi sem getur
stýrt hugsunum fólks. Júlíus vill
nota hann til að láta öllum leiðast
jafnmikið og honum sjálfum. Þegar
á líður kemur ýmislegt í ljós sem
tengir þá Emil og Júlíus.
Titill bókarinnar er leikur að
orðum. Í fljótu bragði mætti ætla að
um væri að ræða leiðina úr Esjunni
en í raun er engin innsláttar villa
hér á ferð heldur fjallar bókin
um leiðann úr Esjunni. Þetta er
reyndar í takt við bókina sjálfa
því hún einkennist öðru fremur af
miklum orðaleikjum og virðast allar
persónurnar hafa jafnmikil völd á
þeim. Hugsanlega er jafnvel næst-
um því of mikið af orðaglensi í bók-
inni, en það er algjört matsatriði.
Persónusköpun er annars mjög
skemmtileg, þó hugsanlega séu ívið
margar persónur þátttakendur í
sögunni. Það orsakast þó væntan-
lega af því að þetta er önnur bókin
um krakkana og þeir verða auð-
vitað allir að vera með í þessari
líka. Aukapersónurnar eru margar
hverjar sprenghlægilegar, til dæmis
má nefna fréttakonu eina sem fékk
mig til að skella upp úr við lestur
bókarinnar.
„Góði karlinn“ og „vondi karlinn“
eru dæmigerðar staðaltýpur, en sér-
staklega vel heppnaðar sem slíkar.
Kaflarnir sem fjalla um Júlíus
Janus eru meira að segja uppfullir
af kaldhæðnislegum athugasemdum
um hinn dæmigerða óþokka, sem er
bráðfyndið og vel heppnað.
Söguþráðurinn er frekar dæmi-
gerður en það sem vegur þyngra er
sprenghlægileg persónusköpun og
sögumannsrödd. Boðskapur bókar-
innar er einfaldur og góður: Það er
hundleiðinlegt og jafnvel beinlínis
hættulegt að láta sér leiðast. Bókina
prýða skemmtilegar myndir eftir
Erlu Maríu Árnadóttur.
Halla Þórlaug Óskarsdóttir
NIÐURSTAÐA: Sprenghlægileg bók
fyrir krakka á öllum aldri. Persónur vel
heppnaðar og söguþráður gengur upp.
Spreng-
hlægilegar
persónur
„Það er hugmyndin að hafa þetta bæði sögustund
og námskeið fyrir fólk frá unglingsaldri og upp úr.“
Þetta segir Ólöf Sverrisdóttir, leikari og sögukona,
um þá nýjung Borgarbókasafnsins að efna til sögu-
stunda fyrir fullorðna og kynna um leið aðferðir til
að gæða sögur lífi og litum. Stundirnar heita Orða-
gull og verða á dagskrá á miðvikudögum milli 17 og
18 í Kamesi aðalsafns, Tryggvagötu 15. Þar verður
Ólöf í aðalhlutverki. „Alltaf verður sögð saga og
svo er ég með alls konar æfingar fyrir fólk sem vill
læra að forma sögur og fá þær til að flæða.“
Orðagull hefst eftir morgundaginn, þar er ekkert
þátttökugjald og eru allir velkomnir.
- gun
Að gæða sögu lífi og litum
Borgarbókasafnið er með ókeypis sögustundir fyrir fullorðna, þá fyrstu 15.
janúar. Ólöf Sverrisdóttir segir námskeiðið ætlað fólki á öllum aldri.
Alltaf verður sögð saga og
svo er ég með alls konar æfingar
fyrir fólk sem vill læra að
forma sögur og fá þær til að
flæða.
SÖGUKONA Ólöf hefur áralanga reynslu
af að segja sögur, meðal annars í Æringja,
sögubíl Borgarbókasafnsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM