Fréttablaðið - 13.01.2014, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 13. janúar 2014 | SKOÐUN | 13
Greiðum atkvæði um kjarasamningana
ábyrga afstöðuSýnum
FLÓABANDALAGIÐ
ATH! Atkvæði póstleggist í síðasta lagi 18. janúar
22. janúar er síðasti dagurinn sem þú hefur til að hafa áhrif á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni um kjarasamningana
Sigurður Ingi Jóhannsson var hjá
Gísla Marteini í gær að ræða um
málefni ráðuneyta sinna, sjávar-
útvegs og landbúnaðar. „Við erum
eiginlega búnir með tímann,“
sagði Gísli svo í blálokin þegar
hann mundi eftir því að maðurinn
ætti víst að heita „umhverfisráð-
herra“ líka og spurði ráðherrann
um viðbrögð hans við opnu bréfi
tíu náttúruvísindamanna sem
voru í svokölluðum faghópi 1 og
lögðu á ráðin um rammaáætlun og
verndar nýtingu Þjórsárvera, en
þessir vísindamenn hafa mótmælt
málflutningi ráðherrans í kjölfar
þess að hann hefur nú farið eftir
óskum Landsvirkjunar um að setja
rammaáætlun í uppnám og hefja
vinnu við að virkja í efri hluta
Þjórsár. Í opnu bréfi sínu hröktu
þessir tíu vísindamenn ýmsar
neyðarlegar rangfærslur ráð-
herrans. Áður hafði ráðherrann
eins og kunnugt er talað um það
í Kastljósi að hann hygðist fara
eftir ráðum „fagmanna“ og lét á
sér skilja að sér þætti afar leitt að
þurfa að fórna þessum fossum í
Þjórsá.
En sem sé: Nú hafa fagmennirn-
ir brugðist við og láta á sér skilja
að ráðherra fari með fleipur þegar
hann setur rammaáætlun í upp-
nám.
En þetta voru náttúrlega ekki
réttu fagmennirnir – þetta voru
bara náttúruvísindamenn, bara
vatnalíffræðingar. Spurningu
Gísla Marteins svaraði ráðherra á
þá leið þessir vísindamenn virtust
geta talið sig vera í pólitík og „geta
skrifað greinar og barist fyrir
sínum skoðunum“. Var á honum að
skilja að þar með væri þetta fólk
ekki lengur „fagmenn“.
„Hvenær er fagmaður fag-
maður?“ spurði hann og lá svarið
í loftinu: þegar hann hlýðir ráð-
herranum. Fagmaður sem leið-
réttir ráðherra, hrekur rang-
færslur hans á sérfræðisviði sínu
– er ekki lengur fagmaður heldur
„í pólitík“. Þetta er hálfgert „Catch
22“-ástand hjá þessum fagmönn-
um; um leið og þeir nota fagþekk-
ingu sína til að leiðrétta ráðherra
mega þeir ekki teljast fagmenn
lengur heldur „í pólitík“ en ef þeir
myndu ekki leiðrétta rangfærsl-
urnar – væru þeir þá raunveru-
legir fagmenn?
Orðsporið
Lítil grein í New York Times hefur
valdið uppnámi hér, en þar sagði
eitthvað á þá leið að fólk skyldi
drífa sig til Íslands vilji það eiga
þess kost að sjá hálendið íslenska
ósnortið áður en það verður
eyðilagt. Inn í greinina slæddist
ein vond villa en eins og Ómar
Ragnarsson benti á í blogggrein í
gær eru orð greinarhöfundar um
hættuna sem steðjar að íslensku
öræfunum ekki ekki jafn fráleit
og sumir vilja vera láta, og hann
nefnir ótal dæmi um væntan-
leg umsvif og mannvirkjagerð á
hálendinu, sem lítil umræða hefur
farið hér um.
Það á að margselja þá orku sem
fæst úr íslenskum fallvötnum og
háhitasvæðum. Og um leið stendur
til að laða hingað túrista sem
aldrei fyrr, til að þeir njóti hinnar
stórbrotnu og ósnortnu íslensku
náttúru. En á þessu er bara sá
hængur að það hefur enginn –
nema kannski kínverskir fram-
sóknarmenn – gaman af því að
sjá virkjanir. Það finnst engum
eftirsóknarvert að sjá raflínur og
staura, jarðýtur eru fáum augna-
yndi. Maður getur ekki bæði farið
til hægri og vinstri í einu. Það er
ekki hægt að vernda og virkja í
einu. Það verður að velja þarna á
milli.
Virkjanastefnan færir okkur
vissulega ákveðin umsvif af vissu
tagi og skapar störf, hefur líka í
för með sér afleidd störf; hún nýtir
tiltekna tækniþekkingu og getur,
þegar vel tekst til, orðið burðar-
ás í samfélagi kringum verk-
smiðjurekstur, laðar að sér fólk
sem vill vinna við verksmiðjur.
En hún er dýru verði keypt – ekki
aðeins í þeim skilningi að miklu
þarf að kosta til við að koma henni
á fót, heldur hefur hún í för með
sér ýmsar óafturkræfar náttúru-
fórnir, og áreiðanlega ekki öll kurl
komin til grafar með það, enda
hafa hér á landi fyrst og fremst
verið hafðir í ráðum verkfræð-
ingar með takmarkaða þekkingu á
vistkerfi náttúrunnar og þar með
afleiðingum þess að stífla ár.
Umfram allt snýst þetta um
náttúruna sjálfa, því að hún hefur
gildi í sjálfri sér, og maðurinn
verður að finna leið til þess að lifa
með henni og í henni en ekki bara
með því að róta endalaust upp
gæðum hennar. Ekki þarf heldur
að fara mörgum orðum um það
hvílík verðmæti, í öllum skilningi,
eru fólgin í ómanngerðri og mann-
virkjalausri náttúru. Með hverju
árinu sem líður verða öræfin dýr-
mætari – og ekki bara þau í sjálfu
sér – heldur líka sjálf hugmyndin
um öræfin – hugmyndin um hið
stórbrotna sem á sér stað og for-
sendur utan mannlegrar seilingar:
það sjáum við svo vel á þeim
ferðamönnum sem hingað leita í æ
ríkara mæli, frá stórborgarsam-
félögum heimsins með sínum gný
og sínu mikla áreiti. Í þjónustu við
það fólk og uppbyggingu kringum
slíka ferðamennsku liggja tæki-
færin – og sjálfsvirðingin, því
hægt er að vera stoltur af því að
vernda það sem manni hefur verið
trúað fyrir.
Fagmaður er ófagmaður
Ómar F. Dabney skrifaði
nýlega í grein í Morgun-
blaðinu að dýraníðingar
yrðu ekki stöðvaðir
meðan þeir kæmust upp
með að misþyrma dýrum.
Misþyrming á litlum kett-
lingi sem hann fjallar um
í grein sinni er ekkert
einsdæmi um dýraníð hér
á landi.
Óskar H.Valtýsson
skrifaði mjög góða og
fróðlega grein í Frétta-
blaðið 20. des. sl.: „Dýra-
verndarbarátta í molum.“ Hann
deilir réttilega á hinn mjög svo
varasama verksmiðjubúskap með
dýr, t.d. í eldis- og loðdýraiðnaði.
Hann furðar sig mjög, eins og
margir aðrir, á algjöru getuleysi
Dýraverndarsambands Íslands
um að koma dýrunum til varnar.
Árni Stefán Árnason, lögfræð-
ingur í dýrarétti, deilir einnig á
illa meðferð dýra, t.d. hinar vafa-
sömu girðingar á svæðum hrein-
dýranna á Austurlandi en þær
eru í raun slysagildrur þar sem
dýrin hafa fest sig og mörg bar-
ist þar um til dauða. Líkamsleifar
þeirra í girðingunum sanna
það. Hreindýrin á Íslandi heyja
óvenjulega harða lífsbaráttu. Á
hinum löngu hörðu vetrum eru
þau oftast skjóllaus á gróður-
snauðum heiðum Íslands sem
oftar en ekki eru þaktar snjó-
lögum. Þá hrekjast þau
oft til byggða og í garða
fólks. Frá dýraverndar-
sjónarmiði ætti að gefa
hreindýrunum á veturna.
Í lok hins stutta sumars
eru þau svo þrautelt af
veiðimönnum og skotin í
hundraðavís, ekki of vel á
sig komin.
Útigangshross heyja
líka harða lífsbaráttu. Ill
meðferð á útigangshross-
um er þjóðarskömm. Á
löngum hörðum vetrum
hafa útigangshross staðið úti í
öllum veðrum án skjólveggja
og oft með litla gjöf og stundum
enga og þá hafa mörg hrossin
verið svo illa á sig komin að þurft
hefur dýralækni til að aflífa þau.
Dýraverndarsamband Íslands
ætti að skylda alla útigangs-
hrossaeigendur til að byggja
skjólveggi með þaki, m.a. vegna
hnjúka sem hross fá á bakið í
miskaldri úrkomu, og þar yrði
þeim gefið.
Dýraverndarsamband Íslands,
hvar er það? Þegar lagðar hafa
verið fram fyrirspurnir og ádeil-
ur í gegnum áraraðir hefur sam-
bandið ekki verið til viðtals. Það
þegir þunnu hljóði og virðist oft
hvorki heyra né sjá illa meðferð
á dýrum. Dýraverndarsamband
Íslands stendur sannarlega ekki
undir nafni.
Dýravernd
DÝRAVERND
Ragnheiður
Sigurðardóttir
félagi í Dýra-
verndarsambandi
Íslands
Það er ekki hægt
að vernda og virkja
í einu. Það verður að velja
þarna á milli.
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur