Fréttablaðið - 13.01.2014, Side 13

Fréttablaðið - 13.01.2014, Side 13
MÁNUDAGUR 13. janúar 2014 | SKOÐUN | 13 Greiðum atkvæði um kjarasamningana ábyrga afstöðuSýnum FLÓABANDALAGIÐ ATH! Atkvæði póstleggist í síðasta lagi 18. janúar 22. janúar er síðasti dagurinn sem þú hefur til að hafa áhrif á niðurstöður í atkvæðagreiðslunni um kjarasamningana Sigurður Ingi Jóhannsson var hjá Gísla Marteini í gær að ræða um málefni ráðuneyta sinna, sjávar- útvegs og landbúnaðar. „Við erum eiginlega búnir með tímann,“ sagði Gísli svo í blálokin þegar hann mundi eftir því að maðurinn ætti víst að heita „umhverfisráð- herra“ líka og spurði ráðherrann um viðbrögð hans við opnu bréfi tíu náttúruvísindamanna sem voru í svokölluðum faghópi 1 og lögðu á ráðin um rammaáætlun og verndar nýtingu Þjórsárvera, en þessir vísindamenn hafa mótmælt málflutningi ráðherrans í kjölfar þess að hann hefur nú farið eftir óskum Landsvirkjunar um að setja rammaáætlun í uppnám og hefja vinnu við að virkja í efri hluta Þjórsár. Í opnu bréfi sínu hröktu þessir tíu vísindamenn ýmsar neyðarlegar rangfærslur ráð- herrans. Áður hafði ráðherrann eins og kunnugt er talað um það í Kastljósi að hann hygðist fara eftir ráðum „fagmanna“ og lét á sér skilja að sér þætti afar leitt að þurfa að fórna þessum fossum í Þjórsá. En sem sé: Nú hafa fagmennirn- ir brugðist við og láta á sér skilja að ráðherra fari með fleipur þegar hann setur rammaáætlun í upp- nám. En þetta voru náttúrlega ekki réttu fagmennirnir – þetta voru bara náttúruvísindamenn, bara vatnalíffræðingar. Spurningu Gísla Marteins svaraði ráðherra á þá leið þessir vísindamenn virtust geta talið sig vera í pólitík og „geta skrifað greinar og barist fyrir sínum skoðunum“. Var á honum að skilja að þar með væri þetta fólk ekki lengur „fagmenn“. „Hvenær er fagmaður fag- maður?“ spurði hann og lá svarið í loftinu: þegar hann hlýðir ráð- herranum. Fagmaður sem leið- réttir ráðherra, hrekur rang- færslur hans á sérfræðisviði sínu – er ekki lengur fagmaður heldur „í pólitík“. Þetta er hálfgert „Catch 22“-ástand hjá þessum fagmönn- um; um leið og þeir nota fagþekk- ingu sína til að leiðrétta ráðherra mega þeir ekki teljast fagmenn lengur heldur „í pólitík“ en ef þeir myndu ekki leiðrétta rangfærsl- urnar – væru þeir þá raunveru- legir fagmenn? Orðsporið Lítil grein í New York Times hefur valdið uppnámi hér, en þar sagði eitthvað á þá leið að fólk skyldi drífa sig til Íslands vilji það eiga þess kost að sjá hálendið íslenska ósnortið áður en það verður eyðilagt. Inn í greinina slæddist ein vond villa en eins og Ómar Ragnarsson benti á í blogggrein í gær eru orð greinarhöfundar um hættuna sem steðjar að íslensku öræfunum ekki ekki jafn fráleit og sumir vilja vera láta, og hann nefnir ótal dæmi um væntan- leg umsvif og mannvirkjagerð á hálendinu, sem lítil umræða hefur farið hér um. Það á að margselja þá orku sem fæst úr íslenskum fallvötnum og háhitasvæðum. Og um leið stendur til að laða hingað túrista sem aldrei fyrr, til að þeir njóti hinnar stórbrotnu og ósnortnu íslensku náttúru. En á þessu er bara sá hængur að það hefur enginn – nema kannski kínverskir fram- sóknarmenn – gaman af því að sjá virkjanir. Það finnst engum eftirsóknarvert að sjá raflínur og staura, jarðýtur eru fáum augna- yndi. Maður getur ekki bæði farið til hægri og vinstri í einu. Það er ekki hægt að vernda og virkja í einu. Það verður að velja þarna á milli. Virkjanastefnan færir okkur vissulega ákveðin umsvif af vissu tagi og skapar störf, hefur líka í för með sér afleidd störf; hún nýtir tiltekna tækniþekkingu og getur, þegar vel tekst til, orðið burðar- ás í samfélagi kringum verk- smiðjurekstur, laðar að sér fólk sem vill vinna við verksmiðjur. En hún er dýru verði keypt – ekki aðeins í þeim skilningi að miklu þarf að kosta til við að koma henni á fót, heldur hefur hún í för með sér ýmsar óafturkræfar náttúru- fórnir, og áreiðanlega ekki öll kurl komin til grafar með það, enda hafa hér á landi fyrst og fremst verið hafðir í ráðum verkfræð- ingar með takmarkaða þekkingu á vistkerfi náttúrunnar og þar með afleiðingum þess að stífla ár. Umfram allt snýst þetta um náttúruna sjálfa, því að hún hefur gildi í sjálfri sér, og maðurinn verður að finna leið til þess að lifa með henni og í henni en ekki bara með því að róta endalaust upp gæðum hennar. Ekki þarf heldur að fara mörgum orðum um það hvílík verðmæti, í öllum skilningi, eru fólgin í ómanngerðri og mann- virkjalausri náttúru. Með hverju árinu sem líður verða öræfin dýr- mætari – og ekki bara þau í sjálfu sér – heldur líka sjálf hugmyndin um öræfin – hugmyndin um hið stórbrotna sem á sér stað og for- sendur utan mannlegrar seilingar: það sjáum við svo vel á þeim ferðamönnum sem hingað leita í æ ríkara mæli, frá stórborgarsam- félögum heimsins með sínum gný og sínu mikla áreiti. Í þjónustu við það fólk og uppbyggingu kringum slíka ferðamennsku liggja tæki- færin – og sjálfsvirðingin, því hægt er að vera stoltur af því að vernda það sem manni hefur verið trúað fyrir. Fagmaður er ófagmaður Ómar F. Dabney skrifaði nýlega í grein í Morgun- blaðinu að dýraníðingar yrðu ekki stöðvaðir meðan þeir kæmust upp með að misþyrma dýrum. Misþyrming á litlum kett- lingi sem hann fjallar um í grein sinni er ekkert einsdæmi um dýraníð hér á landi. Óskar H.Valtýsson skrifaði mjög góða og fróðlega grein í Frétta- blaðið 20. des. sl.: „Dýra- verndarbarátta í molum.“ Hann deilir réttilega á hinn mjög svo varasama verksmiðjubúskap með dýr, t.d. í eldis- og loðdýraiðnaði. Hann furðar sig mjög, eins og margir aðrir, á algjöru getuleysi Dýraverndarsambands Íslands um að koma dýrunum til varnar. Árni Stefán Árnason, lögfræð- ingur í dýrarétti, deilir einnig á illa meðferð dýra, t.d. hinar vafa- sömu girðingar á svæðum hrein- dýranna á Austurlandi en þær eru í raun slysagildrur þar sem dýrin hafa fest sig og mörg bar- ist þar um til dauða. Líkamsleifar þeirra í girðingunum sanna það. Hreindýrin á Íslandi heyja óvenjulega harða lífsbaráttu. Á hinum löngu hörðu vetrum eru þau oftast skjóllaus á gróður- snauðum heiðum Íslands sem oftar en ekki eru þaktar snjó- lögum. Þá hrekjast þau oft til byggða og í garða fólks. Frá dýraverndar- sjónarmiði ætti að gefa hreindýrunum á veturna. Í lok hins stutta sumars eru þau svo þrautelt af veiðimönnum og skotin í hundraðavís, ekki of vel á sig komin. Útigangshross heyja líka harða lífsbaráttu. Ill meðferð á útigangshross- um er þjóðarskömm. Á löngum hörðum vetrum hafa útigangshross staðið úti í öllum veðrum án skjólveggja og oft með litla gjöf og stundum enga og þá hafa mörg hrossin verið svo illa á sig komin að þurft hefur dýralækni til að aflífa þau. Dýraverndarsamband Íslands ætti að skylda alla útigangs- hrossaeigendur til að byggja skjólveggi með þaki, m.a. vegna hnjúka sem hross fá á bakið í miskaldri úrkomu, og þar yrði þeim gefið. Dýraverndarsamband Íslands, hvar er það? Þegar lagðar hafa verið fram fyrirspurnir og ádeil- ur í gegnum áraraðir hefur sam- bandið ekki verið til viðtals. Það þegir þunnu hljóði og virðist oft hvorki heyra né sjá illa meðferð á dýrum. Dýraverndarsamband Íslands stendur sannarlega ekki undir nafni. Dýravernd DÝRAVERND Ragnheiður Sigurðardóttir félagi í Dýra- verndarsambandi Íslands Það er ekki hægt að vernda og virkja í einu. Það verður að velja þarna á milli. Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.