Fréttablaðið - 13.01.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 13.01.2014, Blaðsíða 4
13. janúar 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 VIÐSKIPTI Konur eru um 23 prósent aðalmanna í stjórnum íslenskra fyrirtækja, og hefur hlutfall kvenna hækkað lítillega á síðasta ári, samkvæmt samantekt sem Creditinfo vann fyrir Fréttablaðið. Um 22 prósent aðalmanna voru konur í september 2012. Alls voru tæplega 33 þúsund fyrirtæki skráð í hlutafélagaskrá í desember í fyrra. Samtals sitja rúmlega 50 þúsund aðalmenn í stjórnum þessara fyrirtækja. Af þeim eru um 38.600 karlar en 11.600 konur. Konur eru mun vinsælli vara- menn en aðalmenn í stjórnum. Alls eru um 33 þúsund varamenn skráðir í stjórnir íslenskra fyrir- tækja, þar af rúmlega 14 þúsund konur, eða um 51 prósent. Konur voru um 10 prósent stjórn- armanna í fyrirtækjum árið 2009, þegar Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnulífinu og Við- skiptaráð efndu til sérstaks átaks til að hvetja fyrirtæki til að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja. Þeim hefur því fjölgað verulega frá því sem þá var. Samantekt Creditinfo nær til allra fyrirtækja, en lög sem tóku gildi í september á síðasta ári gera þær kröfur að hlutfall hvors kyns í stjórnum fyrirtækja með 50 eða fleiri starfsmenn sé 40 prósent. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, for- maður Félags kvenna í atvinnulíf- inu, segir það ekki koma á óvart að svo litlar breytingar hafi orðið á síðasta ári. Hún segir að sú þróun sem þó hafi orðið gæti tengst því að fyrirtæki sem falli undir lögin hafi breytt samsetningu sinna stjórna. „Andrúmsloftið og vilji til verka er komið, en það átti enginn von á miklum breytingum strax. Við erum að breyta um stefnu á risa- vöxnu skipi og það tekur tíma,“ segir Þórdís. Hún segir vitað að stór hluti íslenskra fyrirtækja sé í eigu karl- manna, og í mörgum tilvikum séu eigendurnir einu stjórnarmennirnir. Herferðin til að auka hlut kvenna í stjórnum og stjórnendastöðum bein- ist að stærri fyrirtækjum með fleiri stjórnarmenn og stjórnendum. Creditinfo vann samantekt fyrir Fréttablaðið í fyrra byggt á upplýs- ingum frá september 2012. Á þeim fimmtán mánuðum sem liðu milli samantekta fyrirtækisins hefur konum í stjórnum fyrirtækja fjölgað um eitt prósentustig. Með hæfilegri einföldun mætti því segja að fjölgi konum með sama hraða á næstu árum muni það taka 32 ár að koma hlutfalli kvenna í stjórnum í um það bil 50 prósent. Þegar einstakir hópar fyrirtækja eru skoðaðir má sjá að hjá Félaga- samtökum og annarri þjónustu- starfsemi eru konur í meirihluta í stjórnum, og eru rúmlega 54 prósent aðalmanna í stjórnum. Hlutfallið er líka talsvert yfir meðaltali hjá fyrir- tækjum sem sinna fræðslustarf- semi, heilbrigðis- og félagsþjónustu og rekstri veitingastaða og veitinga- reksturs, eins og sjá má á meðfylgj- andi mynd. brjann@frettabladid.is Hlutfall kvenna lítið breyst á ári Um 23 prósent stjórnarmanna í íslenskum fyrirtækjum eru konur samkvæmt samantekt sem Creditinfo vann fyrir Fréttablaðið. Konum hefur fjölgað um eitt prósentustig á því rúma ári sem liðið er frá síðustu samantekt. Tekur tíma að breyta um stefnu segir formaður FKA. HLUTFALL KVENNA Í STJÓRNUM FYRIRTÆKJA* *Miðað við stöðu hlutafélagaskrár 11. desember 2013 Hlutfall kvenna Fjöldi fyritækja Hlutfall karla 54.1% 45.9% 598 839 4.916 3.408 4.413 2.104 2 3.224 71 84 49 37.2% 62.8% 36.1% 63.9% 31.0% 69.0% 29.1% 70.9% 27.4% 72.6% 25.4% 74.6% 22.9% 77.1% 22.7% 77.3% 21.8% 78.2% 20.4% 79.6% 20.0% 80.0% 17.6% 82.4% 16.6% 83.4% 15,5% 84,5% 7.4% 92.6% 23.1% 76.9% 32.920 15,5% 84,5% 20.0% 80.0% 18.9% 81.1% 13,8% 86,2% 412 1.382 662 1.525 312 2.162 1.969 901 3.887 Félagasamtök og önnur þjónustustarfsemi Fræðslustarfsemi Heilbrigðis- og félagsþjónusta Rekstur gististaða og veitingarekstur Heild- og smásöluverslun, við- gerðir á vélknúnum ökutækjum Menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta Fasteignaviðskipti Óþekkt starfsemi Framleiðsla Landbúnaður, skógrækt og fi skveiðar Opinber stjórnsýsla og almannatryggingar Upplýsingar og fj arskipti Fjármála- og vátryggingastarfsemi Vatnsveita, fráveita,meðhöndlun úrgangs og afmengun Flutningar og geymsla Rafmagns-, gas- og hitaveitur Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð Námugröft ur og vinnsla hráefna úr jörðu Öll fyrirtæki 1.928 tonn af kartöflum voru flutt inn fyrstu tíu mánuði síðasta árs. Það er mun minna en á sama tímabili árið áður, þegar flutt voru inn 3.161 tonn. Heimild: Hagstofa Íslands Andrúms- loftið og vilji til verka er komið, en það átti enginn von á miklum breytingum strax. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnulífinu Veðurspá Miðvikudagur 8-15 m/s, hvassara SA-til. VONSKUVEÐUR SYÐRA Áfram hvasst á sunnanverðu landinu næsta sólarhringinn og stormur eða rok við suðurströndina. Úrkoma verður að mestu bundin við suðaustan og austanvert landið en úrkomulítið í öðrum landshlutum. 1° 18 m/s 3° 18 m/s 5° 15 m/s 6° 25 m/s Á morgun 8-18 m/s, en 15-25 syðst á landinu. Gildistími korta er um hádegi 0° -1° 0° -2° -2° Alicante Basel Berlín 17° 10° 4° Billund Frankfurt Friedrichshafen 4° 7° 9° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 3° 3° 21° London Mallorca New York 11° 18° 10° Orlando Ósló París 25° -7° 11° San Francisco Stokkhólmur 16° -4° 2° 16 m/s 3° 18 m/s 0° 13 m/s 3° 16 m/s 0° 10 m/s 1° 16 m/s -6° 18 m/s 0° -1° 1° -2° -3° Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður STJÓRNMÁL Leiðtogar Samfylkingar, Bjartrar Framtíðar og Pírata vilja halda þjóðar- atkvæðagreiðslu um áframhald aðildar- viðræðna við Evrópusambandið (ESB) samhliða sveitarstjórnarkosningum sem munu fara fram í vor. Árni Páll Árnason, formaður Sam- fylkingar, segir tímasetninguna góða því þá ættu skýrslur aðila vinnumark- aðarins annars vegar og ríkisstjórnar- innar hins vegar um stöðu við- ræðnanna að liggja fyrir. Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, er einnig hlynntur því að kjósa samhliða sveitar- stjórnarkosningum og Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata, tekur í sama streng. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs, segir það koma til greina að halda atkvæða- greiðsluna í vor. „Einhvern botn þarf að fá í málið því við getum ekki verið í ein- hverju limbói með það,“ segir hún. Bjarni Benediktsson, for maður Sjálfstæðisflokksins og efnahags- og fjármálaráð- herra, segir ríkisstjórnar- flokkana ætla að bíða eftir skýrslu sem verið er að vinna um málið áður en ákvörðun um atkvæðagreiðslu verði tekin. „Það hefur ekki verið rætt neitt á milli stjórnarflokkana varðandi framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Bjarni. Ekki náðist í Sigmund Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra við vinnslu fréttarinnar í gær. Hann sagði í há degisfréttum RÚV í gær að hann teldi að þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB ætti að snúast um það hvort Íslendingar vilji ganga í sambandið eða ekki, en ekki hvort halda eigi viðræðum áfram. - hg Ríkisstjórnarflokkarnir hafa ekki rætt framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB: Vilja kjósa um aðildarviðræður í vor BJARNI BENEDIKTSSONÁRNI PÁLL ÁRNASON AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Hólmfríður Bjarnadóttir, eða Hófý eins og við flest þekkjum hana, fararstjóri Bændaferða, verður á skrifstofu Bændaferða 13. - 17. janúar kl. 10:00 - 16:00. Það er því alveg upplagt að kíkja í Síðumúlann í kaffi, hitta Hófý og fá upplýsingar um ferðirnar. Bændaferðir · Síðumúla 2 F E R Ð I R F Y R I R A L L A Hófý, fararstjóri Bændaferða verður á skrifstofunni 13. - 17. janúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.