Fréttablaðið - 13.01.2014, Page 8
13. janúar 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR |
LOKSINS
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
0
9
2
3
BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000
GE bílar / Reykjanesbæ / 420 0400 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar
/ Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – IB ehf. / Selfossi / 480 8080
SEM GÆTI BORGAÐ
SIG AÐ TAKA
BÍLALÁN
Renault Clio Authentic – Verð: 2.440.000 kr.
Bensín, beinskiptur / 4,7 l/100 km*
Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 1.464.000 kr.
NÚLLVEXTIR BL: 976.000 kr. til 36 mánaða.
Vaxtalaus afborgun: 27.111 kr. á mán.
Dacia Duster 4WD PLUS – Verð 3.990.000 kr.
Subaru XV 4WD – Verð 5.390.000 kr.
Dísil, beinskiptur með extra lágum gír / 5,3 l/100 km*
Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 2.394.000 kr.
NÚLLVEXTIR BL: 1.596.000 kr. til 36 mánaða.
Vaxtalaus afborgun: 44.333 kr. á mán.
Sjálfskiptur, bensín / 6,6 l/100 km*
Innborgun 60% / Gamli bíllinn þinn og eða reiðufé: 3.234.000 kr.
NÚLLVEXTIR BL: 2.156.000 kr. til 36 mánaða.
Vaxtalaus afborgun: 59.888 kr. á mán.
HAFÐU SAMBAND VIÐ SÖLUMENN Í SÍMA 525 8000 EÐA SENDU
OKKUR FYRIRSPURN Á bl@bl.is. NÁNARI UPPLÝSINGAR UM
NÚLLVEXTI BL ER AÐ FINNA Á www.bl.is
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
/
N
úl
lv
ex
tir
B
L
gi
ld
a
ek
ki
m
eð
ö
ðr
um
ti
lb
oð
um
.
Með nýju núllvaxtaláni BL getur þú fengið allt að 40% af verði bílsins að
láni vaxtalaust til allt að 36 mánaða. Engir vextir, engin verðtrygging, enginn
þinglýsingarkostnaður og ekkert smátt letur. Sem sagt, engin óvissa og það
sem meira er – þú ekur um á nýjum bíl í fullri ábyrgð. Farðu á bl.is og kynntu
þér frábæran möguleika til að kaupa nýjan bíl.
NÚLLVEXTIR BL – loksins bílalán sem gæti borgað sig að taka.
HÖLDUM AFTUR AF
VERÐHÆKKUNUM
Nú er brýnt að íslensk fyrirtæki, sveitarfélög og ríki leggi sitt af mörkum til að
skapa stöðugt verðlag. Verðhækkanir á innlendum vörum og þjónustu senda
mjög neikvæð skilaboð út á vinnumarkaðinn enda er lág verðbólga ein helsta
forsenda nýgerðra kjarasamninga.
Horfum fram á veginn og sýnum ábyrgð!
SAMFÉLAG „Fjölskyldur ætt-
leiddra barna á Íslandi eru
sterkar og vel er haldið utan um
börnin. Undantekningarlaust fá
þau mikinn stuðning á heimilum
sínum og þeim
gengur yfirleitt
vel í skóla.“
Þetta segir
Hanna Ragnars-
dóttir, prófessor
í fjölmenningar-
fræðum við upp-
eldis- og mennt-
unarfræðideild
Háskóla Íslands,
sem ásamt Elsu
Sigríði Jónsdóttur hefur rann-
sakað fjölskyldur ættleiddra
barna og aðlögun barnanna og
reynslu þeirra af skólagöngu frá
2005. Um er að ræða langtíma-
rannsókn.
Að sögn Hönnu nær rannsóknin
til tveggja hópa barna sem voru
ættleidd til Íslands 2002 og 2004
og eru 10 börn í hvorum hópi.
„Það er ekki hægt að alhæfa út
frá þessu þar sem þetta eru ekki
mörg börn. Við vitum ekki hversu
vel þetta endurspeglar aðlögun
þeirra hundraða barna sem hafa
verið ættleidd hingað til lands en
þessi börn virðast standa sterk.“
Hún segir að það hafi í raun
komið sér á óvart hvað börnun-
um gengur vel í skóla þótt þau
hafi alist upp í öðru tungumála-
umhverfi fyrsta árið. „Þau komu
til Íslands frá átta og hálfs mán-
aðar aldri til 17 mánaða. Það er
ákveðinn styrkur í því að þau
hafi haft íslensku sem móður-
málsumhverfi frá því að þau voru
svona ung.“
Atvik sem snerta litarhátt og
uppruna hafa komið upp í skól-
unum sem börnin ganga í en tekið
hefur verið á þeim, að því er
Hanna greinir frá. „Börnin vita
öll um uppruna sinn og ekkert
er falið fyrir þeim. Atvikin sem
koma upp eru rædd bæði heima
og í skólanum.“
Hanna tekur það fram að
áhugavert verði að fylgjast með
börnunum og hvernig sjálfsmynd
þeirra verður þegar þau komast
á unglingsárin. „Þessi elstu voru
12 ára þegar við töluðum við þau
síðast og þau virðast dugleg og
ánægð. Rannsóknir sem gerðar
hafa verið erlendis hafa leitt í
ljós að á unglingsárunum reyni á
að vera ættleiddur. Þetta er við-
kvæmur aldur. Þótt börnin séu
mjög meðvituð um uppruna sinn
vakna ýmsar spurningar, eins og
til dæmis hvað það þýði í raun að
vera ættleiddur og hverjir blóð-
foreldrarnir séu. Þau vita mis-
mikið um blóðforeldra sína.“
ibs@frettabladid.is
Ættleiddum börn-
um vegnar vel hér
Fjölskyldur ættleiddra barna eru sterkar og börnin fá mikinn stuðning á heimilum
sínum. Börnunum gengur vel í skóla og eru meðvituð um uppruna sinn. Ýmsar
spurningar kunna að vakna á unglingsárunum, segir fjölmenningarprófessor.
ÆTTLEIDD BÖRN
Íslenskir foreldrar
með ættleidd
börn í Peking í
Kína.
HANNA
RAGNARSDÓTTIR