Fréttablaðið - 13.01.2014, Blaðsíða 16
13. janúar 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
ÞETTA GERÐIST 12. JANÚAR 1977
Lokkaprúður álfur kemur í heiminn
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR GUNNARSSON
Berjarima 4, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 2. janúar. Útförin fer fram
frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 15. janúar kl. 15. Blóm og
kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins
látna er bent á Hjartaheill.
Svanlaug H. Árnadóttir
Kristín Helga Ólafsdóttir Hafþór Freyr Sigmundsson
Guðrún Halldóra Ólafsdóttir Kjartan Jónsson
Árni Baldvin Ólafsson Bryndís Eva Sverrisdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR
(EDDA)
Rofabæ 31, lést þriðjudaginn 7. janúar á Landspítalanum
Fossvogi. Útför hennar fer fram í Ríkissal Votta Jehóva,
Hraunbæ 113, þriðjudaginn 14. janúar kl. 14.00.
Katrín Ásgeirsdóttir Guðmundur Ólason
Lára Ásgeirsdóttir Brandur Einarsson
Hólmfríður Ásgeirsdóttir
Magnús Guðmundsson
Lára G. Nielsen
barnabörn og barnabarnabörn.
MERKISATBURÐIR
1559 Elísabet I. krýnd í Westminster Abbey.
1610 Galíleó Galílei uppgötvaði Kallistó, fjórða tungl Júpíters.
1898 Grein Zola, J áccuse, birtist í frönsku blaði.
1930 Fyrsta myndasagan um Mikka mús kom út.
1942 Fulltrúar níu þjóða sem hersetnar voru af Þjóðverjum sam-
þykkja að þeir verði lögsóttir fyrir stríðsglæpi að styrjöld lokinni.
1949 Fyrsta íslenska talmyndin í litum og fullri lengd, „Milli
fjalls og fjöru“ eftir Loft Guðmundsson, frumsýnd.
1953 Josip Broz Tito kosinn forseti Júgóslavíu.
1964 Karol Wojtyla verður biskup í Kraká. Hann varð seinna
Jóhannes Páll páfi.
1968 Tet-sóknin hefst í Víetnam.
1975 Guðmundur Sigurjónsson verður stórmeistari í skák, 27
ára gamall. Hann var annar Íslendinga til þess að ná þessum titli.
Fyrstur var Friðrik Ólafsson.
1976 Jarðskjálfti upp á 6,2 stig á Richter veldur skemmdum á
Kópaskeri.
2002 Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, féll í yfirlið eftir
að saltkringla stóð í honum.
„Við foreldarnir erum
náttúrulega að vinna
hörðum höndum við
að láta þetta ævin-
týri verða að veru-
leika því þetta er svo
ómetanleg lífsreynsla
fyrir þau. Svo erum
við með svo unga
krakka að v ið
reynum að safna
styrkjum
hjá
menn-
ingarsjóðum, hjá ríkinu og stórfyr-
irtækjum til að styðja við bakið á
þeim,“ segir Sigríður Valdís Berg-
vinsdóttir, hársnyrtir á Passion á
Akureyri.
Sigríður Valdís á son í leik-
listarhópnum Sögu sem undir-
býr þátttöku í viðamiklu sam-
norrænu leikverki undir stjórn
danska leikstjórans Jóakims.
Eftir 12 ára hlé fer unglinga-
leikhúsið, Fenris af stað
að nýju en upphaflega
verkið var sýnt árið
1985.
Hugmyndin er að
setja upp eitt leik-
verk sem ungmenni
alls staðar að frá
norrænu löndunum
taka þátt og leika
ja fn a n á s í nu
eigin tungumáli
en þema verksins
er unglingurinn.
„Við foreldrarnir
erum búnir að
ráða Grétu Krist-
ínu Ómarsdóttur,
sem er bæði leik-
stjóri verksins hér
heima og umsjón-
armaður krakk-
anna þegar þau
verða á ferðalag-
inu, því við getum
ekki ferðast með
þei m.“ Verk ið
verður sýnt víðs
vegar á Norður-
löndunum en ferða-
lagið byrjar á Íslandi
og verður sýnt á Hofi á
Akureyri, í Reykjavík og á
LuNGA á Seyðisfirði. Þaðan
mun leiðin liggja í Norrænu
þar sem við tekur tíu daga ferðalag
um Norðurlöndin.
Jóakim, leikstjóri Ragnarock, er
upphafsmaður Fenris-verkefnisins
sem hann hefur tileinkað ungu leik-
listarfólki. Upphafið má rekja til
lauslegra tengsla milli sex unglinga-
leikhópa á Norðurlöndum sem urðu
til vegna alþjóðlegs árs unglinga á
vegum Sameinuðu þjóðanna.
Alls taka um 80-100 ungmenni þátt
í Fenris-verkefninu, en auk íslensku
unglinganna eru krakkar frá Fær-
eyjum, Finnlandi, Noregi og Dan-
mörku. Sigríður Valdís segir hópinn
hafa hist á Finnlandi til að stilla
saman strengi rétt fyrir áramót og
það hafi reynst mikið ævintýri fyrir
soninn sem var fjarri fjölskyldu sinni
í fyrsta sinn um áramótin, aðeins 14
ára gamall.
Næsta ferðalag er fyrirhugað um
páskana til Danmerkur í vinnubúðir
og í sumar mun Akureyrarbær taka á
móti 80 ungmennum sem munu án efa
setja svip sinn á bæinn. Krakkarnir
átta sem skipa leikhópinn heita Svan-
ur Berg Jóhannsson, Kristín Tómas-
dóttir, Máney Dís Davíðsdóttir, Frey-
steinn Sverrisson, Axel Gústavsson,
Embla Eir Halldórsdóttir, Kristrún
Jóhannesdóttir og Sveinn Andri Lund.
marinmanda@frettabladid.is
Norræna leikverkið
hefst á Íslandi
Leikhópurinn Saga á Akureyri undirbýr þátttöku í samnorræna verkefninu Fenris sex sem
fer fram um mitt sumar. Verkefnið fer nú af stað aft ur eft ir tólf ára hlé.
FENRIS 2014 Leiklistarhópurinn allur samankominn í Finnlandi.
➜ Danski leikhópurinn Ragnarock
og íslenski leikhópurinn Saga eru
einu leikklúbbarnir sem hafa verið
með í öllum Fenris-verkefnum
frá upphafi, sem hafa verið fimm
talsins.
SIGRÍÐUR VALDÍS
BERGVINSDÓTTIR
Enski leikarinn Orlando Jonathan
Blanchard Bloom fæddist þennan dag
árið 1977. Hann sló í gegn árið 2001
í hlutverki sínu sem hinn hárprúði
álfaprins, Legolas, í þríleiknum The Lord
of the Rings. Árið 2003 lék hann stórt
hlutverk í the Pirates of the Caribbean,
járnsmiðinn Will Turner. Árið 2005 var
Bloom fenginn til að fara með aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni Kingdom of
heaven undir leikstjórn Ridley Scott.
Á síðasta ári stóð Bloom í skilnaði við
eiginkonu sína, hina áströlsku Victoria
Secret-fyrirsætu Miröndu Kerr en saman
eiga þau soninn, Flynn Christopher
Bloom, sem er þriggja ára.