Fréttablaðið - 13.01.2014, Side 18
FÓLK|HEIMILI
Amma mín og nafna, Unnur Guð-mundsdóttir, gaf mér þessa fallegu kaffikönnu þegar ég
byrjaði að búa fyrir allmörgum árum
síðan en ég hef alltaf verið svag fyrir
svona lagi á kaffikönnum,“ segir Unnur
en viðurkennir að kannan hafi lent í
geymslunni fyrstu árin. „Það var svo í
fyrra að ég var að taka til í geymslunni
að ég rakst á könnuna á ný og ákvað í
framhaldinu að gera eitthvað við hana,“
segir hún. Unnur hefur gaman af að
skoða vefsíður og bækur sem gefa hug-
myndir að verkefnum á heimilinu. „Það
er skemmtilegt að sjá hvað er hægt að
gera margt fínt úr gömlum munum sem
margir myndu henda,“ segir hún en
þegar hún gróf upp kaffikönnuna mundi
hún eftir síðu sem gaf hugmynd að því
hvernig hægt væri að búa til óvenju-
lega lampa úr gömlum eldhúsmunum.
„Þarna var komið fullkomið hlutverk
fyrir kaffikönnuna hennar ömmu.“
Unnur fór í IKEA og keypti hefðbund-
inn lampastand og skerm. „Síðan fékk
ég góða hjálp frá körlunum í vinnunni
til að bora gat á botninn og lokið á
könnunni og lítið gat á hlið hennar fyrir
rafmagnssnúruna. Síðan fór lampa-
standurinn inn í könnuna og þessi fíni
ugluskermur yfir,“ segir hún brosandi
en lampinn fær heiðurssæti á heimilinu
þar sem allir koma auga á hann. Unnur
fær iðulega hrós fyrir hinn huggulega
ljósgjafa og hún hefur gaman af að
segja söguna á bak við hann. Lampinn
góði stendur henni enn nær nú, en
amma Unnar og upphaflegur eigandi
könnunnar féll nýlega frá. „Lampinn er
því falleg minning um góða konu,“ segir
Unnur og brosir.
■solveig@365.is
KAFFIKANNAN
VARPAR NÝJU LJÓSI
HEIMILI Unnur Sigurþórsdóttir breytti fallegri gamaldags kaffikönnu í fínasta
stásslampa með einföldum hætti. Lampinn er falleg minning um góða konu.
LAMPINN FÍNI
Unnur Sigurþórs-
dóttir breytti kaffi-
könnu ömmu sinnar
og nöfnu í fallegan
lampa.
MYND/GVA
Flottar kökur
í afmælið
VIFTUR
Smiðjuvegur 4a, 200 Kópavogur, græn gata
HljóðlátarVerð frá 7990
viftur.is
handhægi
D-vítamín
úðinn,
hámarksnýting
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum.
Eru ekki allir
örugglega
að fá sér
D vítamín
núna?
3
mánaða
skammtur
www.gengurvel.is
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
ÚTSALAN ER HAFIN
30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum
Verslunin Belladonna
Efnt verður til málþings um Hörpu, tónlistar- og
ráðstefnuhús í Reykjavík, fimmtudaginn 16. janúar
klukkan 15-17 í Norðurljósum.
Á málþinginu, sem ber heitið Skóflustunga,
verður rætt um áhrif Hörpu og Mies van der
Rohe-verðlaunanna á byggingarlist og mannlífið í
Reykjavík.
Málþingið er haldið í tengslum við afmælis-
sýningu Mies van
der Rohe-verð-
launanna,
Að móta
Evrópu:
Bygg-
ingarlist í 25 ár - Mies van der Rohe-verðlaunin
1988-2013, sem opnaði í Hörpu 16. nóvember og
lýkur nú í vikunni, 16. janúar.
Þátttakendur í málþinginu eru valinn hópur
fólks sem hefur fjölbreytta aðkomu að Hörpu.
Dagskráin hefst með stuttum framsögum frum-
mælenda og í kjölfarið verður efnt til hringborðs-
umræðna sem verður stjórnað af Hjálmari Sveins-
syni borgarfulltrúa og fyrrum útvarpsmanni. Rætt
verður um áhrif Hörpu og Mies van der Rohe-verð-
launanna, á byggingarlist og mannlífið í Reykjavík.
Málþingið er samstarfsverkefni Hörpu, Hönnun-
armiðstöðvar Íslands og Arkitektafélags Íslands.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.
MÁLÞING Í HÖRPU UM HÖRPU