Fréttablaðið - 13.01.2014, Page 55
MÁNUDAGUR 13. janúar 2014 | MENNING | 23
Hafin er sameiginleg póstatkvæðagreiðsla um nýjan
kjarasamning Eflingar-stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins
Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og
nágrennis við Samtök atvinnulífsins fyrir störf á
almennum vinnumarkaði.
Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í ofangreindum félögum
sem vinna eftir þessum samningi og greiddu félagsgjöld til
einhvers þessara félaga í okt/nóv. sl.
Kjörgögn og kynningarefni hefur verið sent út samkvæmt
kjörskrá.
Fái einnhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki send
kjörgögn, getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns
stéttarfélags og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt
atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem sanni
afdregin félagsgjöld í okt/nóv. 2013.
Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu
til kl. 12.00 miðvikudaginn 22. janúar en þá lýkur atkvæða-
greiðslu um samninginn.
Athugið. Til þess að tryggt sé að atkvæðið berist kjörstjórn
fyrir lok tímafrests þá er nauðsynlegt að póstleggja svar-
umslagið í síðasta lagi laugardaginn 18. janúar.
En þeir sem það vilja geta skilað svarumslaginu á skrifstofu
félaganna til kl. 12.00 miðvikudaginn 22. janúar en þá lýkur
atkvæðagreiðslu um samninginn.
Efling-stéttafélag
Verkalýðsfélagið Hlif
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis
Nýr kjarasamningur
á almennum vinnumarkaði
– Póstatkvæðagreiðsla er hafin
Reykjavík, 9. janúar 2014.
Kjörstjórn
Flóabandalagsins
Skoðaðu úrvalið á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Verð: 10.270.000 kr.
Volvo XC90 Momentum D5 AWD UUV86
Skráður des. 2012, 2,4TDCi dísil, sjálfsk.
Ekinn 40.000 km.
Tilboð: 2.750.000 kr.
Mazda3 Advance UZR99
Skráður mars 2013, 1,6TDCi dísil, beinsk.
Ekinn 35.000 km.
Ásett verð: 2.950.000 kr.
Verð: 1.990.000 kr.
Ford Fiesta Trend BHV32
Skráður maí 2013, 1,0i bensín, beinskiptur.
Ekinn 34.000 km.
Tilboð: 2.990.000 kr.
Ford Focus Trend Edition JTE22
Skráður apr. 2013, 1,6TDCi dísil, beinsk.
Ekinn 31.000 km.
Ásett verð: 3.190.000 kr.Við tökum notaðabílinn þinn uppí á hagstæðu verði og þú getur fengið milligjöfina lánaða - möguleiki á engri útborgun.
Fylgstu með á
FACEBOOK
Notaðir bílar
- Brimborg
Nýlegir bílar hafa mun lægri rekstrarkostnað en eldri bílar. Viðhaldið er minna og eyðslan lægri.Kynntu þér málið!
LÆKKAÐU
REKSTRARKOSTNAÐINN
Mikið úrvalnýlegra bíla
Tilboðsbílarnir fara
beint á Facebook!
Í ábyrgð
Í ábyrgð Í ábyrgð
Í ábyrgð
Urður Hákonardóttir tónlistarkona
býr til tónlist í danssýningunni
Óraunveruleikjum. Sýningin er
samstarf hennar og dansaranna
Þyri Huldar Árnadóttur, og Val-
gerðar Rúnarsdóttur, og verður
frumsýnd á fimmtudaginn.
„Þetta er eiginlega í fyrsta sinn
sem ég bý til tónlist alveg ein opin-
berlega,“ segir Urður, en hún er í
hljómsveitinni Gus Gus.
„Ég kynntist Þyri Huld þegar
Gus Gus gerði sýninguna Á vit
með Reykjavík Dance Production.
Þá bar ég ekki ein ábyrgð á tónlist-
inni, eins og núna. Í gegnum Þyri
og hina dansarana kynntist ég Val-
gerði, en ég hafði kannast við hana
í gegnum tíðina. Við vorum allar
spenntar fyrir því að gera eitthvað
saman.“
Í Óraunveruleikjum lögðu stelp-
urnar upp með að rannsaka hver
væru mörk hins raunverulega
heims og óraunveruleikans. „Þetta
er auðvitað mjög vítt efni, og við
komumst ekki að neinni niðurstöðu
beinlínis. Allt í heiminum heyrir
auðvitað undir raunveruleika og
óraunveruleika. Það er ekki allur
heimurinn undir í verkinu samt
sem áður, þetta er enginn enda-
punktur í stúdíu á alheiminum,
heldur okkar ferðalag í gegnum
þessar pælingar. Á æfingaferlinu
var ímyndaraflið okkur hugleikið,
og einnig tálsýnir og sjónhverf-
ingar. Þetta þróaðist út í einhvers
konar leiki. Það er einkar viðeig-
andi, því í leikhúsi á maður á að
leika sér. Við erum að leika okkur
og hvetjum áhorfendur til að leika
sér.“
Urður er ánægð með samstarf-
ið við Þyri og Valgerði. „Þær eru
æðislegir listamenn. Við höfum
verið mjög samstíga í öllu sem við
höfum gert. Ég fór ekki bara heim
og bjó til lag. Öll tónlist hefur orðið
til á æfingum þar sem dansinn
varð til. Við höfum allar verið með
puttana í öllu. Þó að ég hafi umsjón
með tónlistinni þá eiga þær líka
einhvern heiður að henni, og það er
eins með annað í sýningunni.“
Hópurinn frumsýnir Óraunveru-
leiki í Kassanum í Þjóðleikhúsinu
fimmtudaginn 16. janúar. Aðrar
sýningar eru 17., 25., og 26. janúar.
Aðeins þessar fjórar sýningar.
ugla@fréttabladid.is
Samstíga listakonur
í Óraunveruleikjum
„Í fyrsta sinn sem ég bý til tónlist alveg ein opinberlega,“ segir Urður Hákonar-
dóttir í Gus Gus. Hún bjó til danssýninguna Óraunveruleiki.
Við höfum allar verið
með puttana í öllu. Þó að
ég hafi umsjón með
tónlistinni þá eiga þær líka
einhvern heiður að henni,
og það er eins með annað í
sýningunni.
Urður Hákonardóttir
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI.