Fréttablaðið - 13.01.2014, Side 58
13. janúar 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 26
FÓTBOLTI Lítið var um óvænt
úrslit í ensku úrvalsdeildinni um
helgina. Liðin í toppbaráttunni
unnu öll sína leiki og Arsenal, sem
var á toppnum fyrir helgina, getur
endurheimt efsta sætið með sigri á
Aston Villa í kvöld.
Chelsea fór á toppinn á laugar-
daginn með sigri á Hull en
Manchester City hrifsaði efsta
sætið til sín í gær er liðið vann
Newcastle á útivelli, 2-0. Sigurinn
var þó umdeildur en Cheick Tiote
skoraði mark í stöðunni 1-0 sem
var dæmt af vegna rangstöðu. Lík-
lega hefði átt að dæma markið gilt.
Síðara mark City var svo skorað í
uppbótartíma.
„Ég skil ekki þessa ákvörðun,“
sagði Alan Pardew, stjóri New-
castle, eftir leikinn. „Þetta var
röng ákvörðun hjá dómaranum og
því miður hafði hún mikil áhrif.
Þetta var glæsilegt mark og hefði
átt að gilda.“
Liverpool sýndi svo mátt sinn og
megin í síðari leik gærdagsins með
5-3 sigur á Stoke. Það var fyrsti
sigur Liverpool á Britannia-leik-
vanginum í úrvalsdeildarleik.
Luis Suarez skoraði tvívegis
fyrir Liverpool og er nú kominn
með 22 deildarmörk. „Við gerðum
mistök í vörninni sem við þurfum
að skora en það var frábært að
koma hingað og skora fimm mörk,“
sagði Brendan Rodgers, stjóri
Liverpool.
Manchester United vann sinn
fyrsta sigur á árinu þegar að
liðið hafði betur gegn Swansea á
laugar daginn, 2-0. - esá
Liverpool skoraði fi mm og City á toppinn
Toppliðin unnu öll í ensku úrvalsdeildinni um helgina en Arsenal getur komist aft ur í efsta sætið í kvöld.
Bókaðu golfferðina þína á www.gbferdir.is eða í síma 534 5000
og kynna:
frá kr. 99.000-
pr. mann í tvíbýli
GOLFFERÐIR
ÚRSLIT
EM Í HANDBOLTA
A-RIÐILL
TÉKKLAND - AUSTURRÍKI 20-30 (9-14)
DANMÖRK - MAKEDÓNÍA 29-21 (12-8)
STAÐAN
Austurríki 1 1 0 0 30-20 2
Danmörk 1 1 0 0 29-21 2
Makedónía 1 0 0 1 21-29 0
Tékkland 1 0 0 1 20-30 0
B-RIÐILL
ÍSLAND - NOREGUR 31-26 (16-10)
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson
9/2 (11/3), Ásgeir Örn Hallgrímsson 6 (9), Rúnar
Kárason 4 (7), Snorri Steinn Guðjónsson 3/2 (5/3),
Þórir Ólafsson 3 (6), Arnór Atlason 3 (9), Aron
Pálmarsson 2 (3), Vignir Svavarsson 1 (2), Gunnar
Steinn Jónsson (1).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 15 (40/3,
38%), Aron Rafn Eðvarðsson 1/1 (2/2, 50%).
Hraðaupphlaup: 6 (Guðjón Valur Sigurðsson 3,
Ásgeir Örn 1, Arnór 1, Vignir 1).
Fiskuð víti: 6 (Guðjón Valur 1, Ásgeir 1, Snorri
Steinn 1, Vignir 1, Róbert 1, Gunnar Steinn 1).
Utan vallar: 10 mínútur.
Noregur - Mörk (skot): K. Kjelling 7 (9), H. Reink-
ind 6 (9), H. Tvedten 4/4 (7/5), A. Lindboe 3 (3), C.
O‘Sullivan 3 (5), M. Gullerrud 1 (1), S. Sagosen 1 (1),
B. Myrhol 1 (4), K. Björnesen (1), E. Hansen (4).
Varin skot: Magnus Dahl 18/2 (36/4, 50%), Ole
Erevik 5 (18/2, 28%).
Hraðaupphlaup: 4. Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: M. Gubica og B. Milosevic, Króatíu.
SPÁNN - UNGVERJALAND 34-27 (17-10)
STAÐAN
Spánn 1 1 0 0 34-27 2
Ísland 1 1 0 0 31-26 2
Noregur 1 0 0 1 26-31 0
Ungverjaland 1 0 0 1 27-34 0
NÆSTU LEIKIR
UNGVERJALAND - ÍSLAND MIÐ. KL. 17.00
NOREGUR - SPÁNN MIÐ. KL. 19.15
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
HULL - CHELSEA 0-2
0-1 Eden Hazard (56.), 0-2 Fernando Torres (87.).
SOUTHAMPTON - WEST BROM 1-0
1-0 Adam Lallana (66.).
TOTTENHAM - CRYSTAL PALACE 2-0
1-0 Christian Eriksen (50.), 2-0 Jermain Defoe (72.).
FULHAM - SUNDERLAND 1-4
0-1 Adam Johnson (29.), 0-2 Ki Sung-Yueng (41.),
1-2 Steve Sidwell (52.), 1-3 Johnson (69.), 1-4
Johnson, víti (85.).
EVERTON - NORWICH 2-0
1-0 Gareth Barry (23.), 2-0 Kevin Mirallas (59.).
CARDIFF - WEST HAM 0-2
0-1 Carlton Cole (42.), 0-2 Mark Noble (93.).
MANCHESTER UNITED - SWANSEA 2-0
1-0 Antonio Valencia (47.), 2-0 Danny Welbeck (59.).
NEWCASTLE - MANCHESTER CITY 0-2
0-1 Edin Dzeko (8.), 0-2 Alvaro Negredo (95.).
STOKE - LIVERPOOL 3-5
0-1 Sjálfsmark (5.), 0-2 Luis Suarez (32.), 1-2 Peter
Crouch (39.), 2-2 Charlie Adam (45.), 2-3 Steven
Gerrard, víti (51.), 2-4 Suarez (71.), 3-4 Jonathan
Walters (85.), 3-5 Daniel Sturridge (87.).
STAÐA EFSTU LIÐA
Man. City 21 15 2 4 59-23 47
Chelsea 21 14 4 3 40-19 46
Arsenal 20 14 3 3 39-18 45
Liverpool 21 13 3 5 51-26 42
Everton 21 11 8 2 34-19 41
Tottenham 21 12 4 5 26-25 40
Man. United 21 11 4 6 35-24 37
HANDBOLTI „Þetta var flott byrjun og ég var
ánægður með strákana. Það gerðu allir það sem
ætlast var til af þeim. Það voru allir að skila
sínu í þessum leik,“ sagði fyrirliðinn Guðjón
Valur Sigurðsson eftir sigurinn sæta á Norð-
mönnum í gær.
Guðjón sagði að allir leikmenn Noregs væru
miklir heiðursmenn en hann hefur ekki sömu
sögu að segja af norska handboltasérfræðingn-
um sem sagði þetta íslenska landslið vera það
lélegasta sem Ísland hefði teflt fram á öldinni.
„Það er æðislegt að hlusta á svona sérfræð-
ing. Ég efast um að norsku leikmennirnir séu
glaðir með þetta. Norsku leikmennirnir bera
virðingu fyrir okkur. Það þurfti enga auka-
hvatningu fyrir þennan leik en það var ágætt
að fá hana samt,“ sagði fyrirliðinn og glotti við
tönn.
„Við spiluðum af svipaðri getu og ég bjóst við
en ég átti ekki von á þessari frábæru byrjun.
Norðmenn eru með mjög frambærilegt lið og
við vissum að þetta yrði slagur. Við réðum
vel við allt þeirra og hleyptum þeim aldrei of
nálægt okkur.“
Spila ekki nema ég treysti mér til þess
Óvissa var um hvort Guðjón Valur gæti spil-
að á þessu móti og fáir bjuggust við honum í
þessum leik. Það var ekki að sjá að skortur á
undirbúningi hamlaði hornamanninum frábæra
því hann var stórkostlegur í leiknum og skoraði
níu mörk. „Mér leið bara vel og ég spila ekki
nema ég treysti mér algjörlega til þess. Þegar
ég haltraði aðeins þá rákum við hnén saman.
Þetta var ekki kálfinn sem hefur verið að trufla
mig. Ég er í fínu lagi og fer ekki í treyju nema
ég sé klár í að spila.“
Varnarleikurinn frábær frá upphafi
Landsliðsþjálfarinn Aron Kristjánsson var
óspar á brosið eftir leik. Eftir mjög erfiðan
undir búning fyrir EM blómstruðu strákarnir
hans gegn Noregi í gær.
„Við vissum eiginlega ekki alveg við hverju
mátti búast. Við vorum mjög vel undirbúnir
fyrir þennan leik. Áttum fín svör við þeirra
leik og varnarleikurinn var frábær frá upp-
hafi. Við gátum því refsað með hraðaupphlaup-
um. Sóknar leikurinn var svo mjög beittur nán-
ast allan leikinn,“ sagði Aron en hann gat ekki
kvartað yfir ótrúlegri byrjun sinna manna.
Ungverjar með klóka leikmenn
„Það var búið að vinna í því að stilla spennu-
stigið vel fyrir fyrsta leikinn og það virðist
hafa virkað,“ sagði þjálfarinn en umræða var
í Noregi um lélegt íslenskt lið. Gat hann ekki
nýtt sér það? „Jú, að sjálfsögðu. Við nýttum
okkur það og fleira. Við reyndum að vekja dýrið
í okkur fyrir leik og það gekk upp. Dýrið var til
staðar en samt yfirvegun.“
Ungverjar bíða handan við hornið og verður
mikil vinna hjá þjálfarateyminu að undirbúa
liðið fyrir þann leik, en hvað þarf helst að bæta?
„Þeir eru öðruvísi lið. Hávaxnari, sterkir en
seinir á fótunum. Vörnin verður að halda gegn
þeim enda þeir með klóka leikmenn,“ sagði
Aron en hann var sjálfur klókur í dag. Rúllaði
liðinu vel og skipti rétt inn á. Klassaframmi-
staða hjá honum rétt eins og hjá leikmönnunum.
henry@frettabladid.is
Náðum að vekja dýrið í okkur
Þjálfarinn Aron Kristjánsson og Guðjón Valur Sigurðsson fyrirliði voru með báða fætur á jörðinni en eðli-
lega afar kátir með fl ottan sigur á Noregi. Ummæli um lélegt íslenskt landslið höfðu áhrif á íslenska liðið.
Í HÁLOFTUNUM Guðjón Valur Sigurðsson skorar hér eitt af níu mörkum sínum í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
22 MÖRK Luis Suarez fagnar öðru
marka sinna í gær. NORDICPHOTOS/GETTY